Jakki
1940

In preservation at
National Museum of Iceland
Kremlitaður jakki með kraga, axlarstykkið er dökkblátt að lit. Teygjur eru við mjaðmir og jakkinn rykktur að neðan. Ermafaldar eru einnig rykktir, ísaumaður blámálaður viðarhnappur lokar klauf á sitt hvorri erminni. Tveir miðar eru í hálsmáli jakkans. Sá fremri er hvítur á lit og minni að gerð. Hann er merktur stærðinni "44" í rauðum stöfum. Aftari miðinn er gráleitur og merktur með hvítum og rauðum stöfum. Á honum stendur efst "Cravenette", fjögurra stafa ógreinilegt orð í hástöfum er við hliðina á, líklega "REGS". Fyrir neðan stendur "SHOWERPROOF for SPORTSWEAR". Jakkinn er renndur upp með silfurlituðum rennilás, auk þess er brjóstvasa lokað með samskonar rennilás. Í brjóstvasanum er íslensk mynt, 1 eyrir frá 1942. Jakkinn er enskur og fremur smágerður, að líkindum kvenjakki. Lengd jakkans, mæld frá hálsmáli, er 47 cm. Breidd hans er 38 cm. Lengd erma, mæld frá handvegi, er 43 cm. Á jakkanum eru fjölmargar undirskriftir fólks, ritaðar með bláu bleki. Áritanirnar eru á bakstykki, framstykki og á kraganum en ermar og axlarstykki eru ekki árituð. Ofarlega fyrir miðju á bakinu er áritað með stærri stöfum leiðarlýsingin "København - Stokholm - Happeranda - Petsamo" og fyrir neðan "Island."
Um er að ræða undirskriftir fjölda fólks sem var um borð í strandferðaskipinu Esju í svonefndi Petsamoferð sem farin var árið 1940. Esja sigldi til Petsamo, sem var þá í Norður-Finnlandi, til þess að sækja 258 Íslendinga sem höfðu orðið innlyksa í Evrópu á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Eftir miklar viðræður höfðu íslensk stjórnvöld fengið leyfi breskra og þýskra yfirvalda til að sækja Íslendinga á Norðurlöndum sem vildu komast heim, en Þjóðverjar höfðu hernumið Danmörku og Noreg í apríl sama ár. Í kjölfar hernáms Danmerkur var utanríkisþjónustan stofnuð hérlendis og má því segja að um eldskírn hennar hafi verið að ræða, en þetta var fyrsta stóra borgaraþjónustuverkefnið sem hún tók að sér. Þann 20. september 1940 hélt Esja loks af stað frá Reykjavík ásamt 33 áhafnarmeðlimum. Gekk ferðin vel allt þar til þýskar herflugvélar hófu að sveima í kringum skipið. Skutu þær úr vélbyssum fyrir framan skipið og skipuðu áhöfninni loks að sigla Esju til Þrándheims, þar sem skipið var hertekið. Eftir fjögurra daga kyrrsetningu skipsins hélt það að lokum aftur af stað. Um var að ræða mikla hættuför enda þurfti bæði að varast tundurdufl og flugvélar sem gætu hæft skipið fyrir mistök.
Fólk kom víða að og safnaðist saman í hópa sem leiddir voru af fyrirfram ákveðnum fararstjórum, þeim H. J. Hólmjárn forstjóra og Finni Jónssyni alþingismanni. Leiðin var löng og tók ferðalagið sinn tíma. Hópurinn sem hélt af stað frá Kaupmannahöfn taldi rúmlega tvö hundruð konur, karla og börn. Lagði hópurinn af stað 25. september með bát frá Kaupmannahöfn til Málmeyjar í Svíþjóð. Þaðan tók fólkið lest til Stokkhólms en þegar þangað var komið bárust fréttir af kyrrsetningu Esju og var því ákveðið að hinkra þar þangað til frekari fréttir bærust. Var því dvalið í viku í Stokkhólmi. Í Stokkhólmi bættist fólk í hópinn sem kom víðs vegar að frá Svíþjóð og Noregi. Þann 29. september barst skeyti með þeim upplýsingum að Esjan væri laus úr haldi og myndi halda áfram för sinni. Áætlað var að Esjan myndi koma að Petsamo þann 1. október, en þar sem ekki var unnt að tryggja skaranum gistingu þar, ef seinkun yrði á komu skipsins, lögðu ferðalangarnir því af stað þann 2. október með lest til Haparanda á landamærum Finnlands og áfram að endastöð járnbrautarlestarinnar í Rovaniemi. Þar bættist síðasti ferðalangurinn í hópinn. Farið var með langferðabílum síðasta spölinn, þá rúmu 500 kílómetra sem eftir voru ferðarinnar, milli Rovaniemi og Petsamo. Var fólk því afar fegið að sjá Esjuna liggja við höfn í Petsamo, þó síðasti hluti ferðarinnar væri enn eftir.
5. október var loks lagt af stað frá Petsamo. Þrátt fyrir sjóveiki sumra var góður andi í hópnum. Tóku farþegarnir sér ýmislegt fyrir hendur til þess að stytta sér stundir, haldnar voru kvöldvökur, stofnaður sönghópur, gefið út blað og töfrabrögð sýnd - enda alls kyns kúnstugir einstaklingar með í för sem tóku að sér að halda uppi gleðskapnum. Þröngt hefur verið á þingi, en einungis voru um 120 kojur í skipinu.
Á heimleiðinni þurfti skipið að taka krók til Kirkwall á Orkneyjum, sökum eftirlits Breta sem átti að fara þar fram. Þar voru þó einungis vegabréf farþeganna skoðuð. Esja kom að höfn í Reykjavík þann 15. október 1940. Farþegarnir fengu þó ekki að fara frá borði strax því Bretar vildu yfirheyra alla sem voru um borð áður en þeir fengju að fara í land, þar sem það hafði ekki verið gert í Kirkwall. Nokkrum dögum síðar höfðu flestallir fengið að fara frá borði, nema þeir sem Bretum þóttu grunsamlegir fyrir einhverra hluta sakir. Þrír þeirra voru að lokum fluttir til Bretlands og fangelsaðir þar, þeir Bjarni Jónsson læknir og sjómennirnir Ragnar Karlsson og Hafsteinn Axelsson. Sjómönnunum tveimur var að lokum sleppt þann 21. desember, en Bjarna 1. janúar 1941. Eini flugumaður Þjóðverja sem vitað er til að hafi verið með í för, Gunnar Guðmundsson, fékk þó að fara í land óáreittur, en við stríðslok var hann dæmdur fyrir njósnir í Danmörku.
Jakkinn var í eigu Franch Michelsen (f. 1913, d. 2009) úrsmiðs, en hann var um borð í Esju í Petsamoförinni. Sonur hans, Frank Úlfar Michelsen afhenti safninu jakkann fyrir hönd fjölskyldunnar. Sú saga fylgir jakkanum að ónefnd kona um borð hafi átt jakkann og fengið samferðafólk sitt til þess að rita nöfn sín á hann. Farþegarnir munu hafa skrifað nöfn sín á jakkann um borð í Esju. Óvíst er hvernig jakkinn rataði í eigu Franch og ekki er vitað hvaða konu um ræðir. Ýmis skjöl tengd Petsamoferðinni fylgdu jakkanum, svo sem söngbók og sendibréf. Skjölin voru afhent Þjóðskjalasafni Íslands til varðveislu. Fleiri dæmi eru um að fólk hafi safnað undirskriftum samferðafólks síns á Esju í þessari háskaför, svo sem í bækur og á dúka.
Jakkinn sjálfur er í góðu ásigkomulagi en blekið er víða tekið að dofna. Er því erfitt að greina allar undirskriftirnar en þó er ljóst að þær eru ritaðar með mismunandi höndum. Stuðst var við lista yfir farþega og áhafnarmeðlimi sem Davíð Logi Sigurðsson birti í bók sinni Þegar heimurinn lokaðist. Ekki eru öll nöfnin á listanum á jakkanum en jafnframt má greina undirskriftir á jakkanum sem ekki eru í bókinni. Að auki var stuðst við ljósrit af minnisblokk sem innihélt undirskriftir fólks úr förinni, en ljósritið fylgdi jakkanum og var einnig í eigu Franchs. Undirskriftirnar í ljósritinu eru þó töluvert færri en þær sem eru á jakkanum sjálfum, en komu til góðra nota þegar undirskriftir á jakkanum voru illgreinanlegar. Samtals eru undirskriftirnar sem enn má greina 213 talsins; 14 þeirra eru á kraganum, 95 á framhlið og 104 á bakhlið. Hér að neðan er greint frá undirskriftunum líkt og þær eruru ritaðar á jakkann og frekari upplýsingum um einstaklinginn ef unnt var að finna þær.
Undirskriftir á kraga
Ásg. Sigurðsson skipstjóri (Ásgeir Sigurðsson (skrifar tvisvar á jakkann), f. 1894, d. 1961) Áhöfn
Ben. Árnason (Benedikt E. Árnason, f. 1913, d. 1984) Danmörk
Edith Guðmundsson (Edith Valborg Guðmundsson Black, f. 1911, d. 1968) Danmörk
Eggert Guðmundsson (Eggert F. Guðmundsson, f. 1906, d. 1983) Danmörk
Inger Margrethe Halldórsson (Inger Margrethe Erichsen Halldórsson, f. 1908, d. 1987) Danmörk
Ingibjörg Sigurðardóttir (f. ?, d. ?) Svíþjóð
Jón E. Jónsson (Jón Einar Jónsson frá Danmörku, f. 1901, d. 1961) eða (Jón Elías Jónsson áhafnarmeðlimur, f. 1912, d. 1942), báðir skrifa undir en óvíst hvor á hvaða undirskrift
Jón Eðvaldsson (f. 1892, d. 1974) Svíþjóð
Lárus Scheving (Lárus Scheving Jónsson, f. 1912, d. 1993) Danmörk
Sig. Pjetursson skipstjóri m/s Gullfossi (Sigurður Pétursson, f. 1880, d. 1956) Danmörk
Sigurgeir Guðnason (f. 1896, d. 1977) Danmörk
[…] Andrésson (Else Margrethe Andrésson Jensen, f. 1899, d. 1952) eða (Pétur Magnús Andrésson, f. 1933, d. 2005) Danmörk
[…] Kjartansson (líklega Hertha Kjartansson Schultz, f. 1910, d. 1982) Danmörk
Ógreinileg undirskrift
Undirskriftir á framhlið
Aðalsteinn Björnsson I vjelstjóri m/s Esjan (Aðalsteinn Björnsson, f. 1896, d. 1971) Áhöfn
Amy (Amelie Engilberts, f. 1934, d. 2007) Danmörk
Arnar Jónsson (Arnar Örlygur Jónsson, f. 1914, d. 2008) Danmörk
Auður Bjarnadóttir (f. 1912, d. 1998) Áhöfn
Á. Garibaldason (Ásgrímur Garibaldason, f. 1901, d. 1985) Svíþjóð
Árni Jónsson (f. 1914, d. 2008) Danmörk
Baldvin Guðmundsson (líklega Jón Baldvin Guðmundsson, f. 1914, d. 1959), Danmörk
Baldvin Kristins (Baldvin Marinó Kristinsson, f. 1917, d. 1993) Danmörk
Birgitta (Birgitta Engilberts, f. 1934, d. 2009) Danmörk
Bjarni Jónsson (stýrimaður á Gullfossi, f. 1889, d. 1974) eða (læknir, f. 1909, d. 1999) Danmörk
Bragi Agnarsson (Aðalsteinn Bragi Agnarsson, f. 1915, d. 1999) Áhöfn
Broddi Jóhannesson (f. 1916, d. 1994) Danmörk
Davíð Gíslason (f. 1891, d. 1945) Danmörk
E. Guðnason (Eggert Guðnason, f. 1914, d. 1993) Áhöfn
Erasmus Erasmusson (f. 1889, d. 1942) Danmörk
Finnur Jónsson (f. 1894, d. 1951) Svíþjóð
Fr. Halldórsson (Friðrik Halldórsson, f. 1907, d. 1944) Áhöfn
Friðgeir Grímsson (f. 1909, d. 2005) Danmörk
Friðgeir Ingimundarson (f. 1915, d. 2011) Svíþjóð
Friðrik Óskar Jónsson (f. 1914, d. 1991 - óstaðfest að hann hafi verið um borð)
Fritz Kjartansson (f. 1907, d. 1951) Danmörk
Gerður Gunnars. (Gerður Gunnarsdóttir, f. 1917, d. 1961) Danmörk
Gísli Halldórsson (f. 1914, d. 2012) Danmörk
Grétar Símonarson (f. 1920, d. 2004) Danmörk
Grímur Þorkelsson (f. 1895, d. 1968) Áhöfn
Guðm. Jónasson (Guðmundur Jónasson, f. 1918, d. 2016) Danmörk
Guðni J. Guðbjartsson IV. Vélstjóri (Guðni J. Guðbjartsson, f. 1916, d. 2004) Áhöfn
Guðný Jónsd. (Guðný Jónsdóttir, f. 1915, d. 1997) Danmörk
Guðrún Hólm (Guðrún Hólm Sigurgarðsdóttir, f. 1910, d. 1986) Danmörk
Guðrún Jónsdóttir (f. 1915, d. 1998) Danmörk
Gunnlaugur B[…] (Gunnlaugur P. Blöndal, f. 1893, d. 1962) Danmörk
Halldór E[…]sson (Halldór Erlendsson, f. 1919, d. 1975) Danmörk
Harry Fredriksen (f. 1913, d. 1975) Danmörk
Hilmir Ásgrímsson (f. 1920, d. 2009) Svíþjóð
Ingibergur Jónasson (f. 1912, d. 1978) Danmörk
Ingólfur Jónsson (f. 1921, d. 1941) Danmörk
Jón E. Jónsson (Jón Einar Jónsson frá Danmörku, f. 1901, d. 1961) eða (Jón Elías Jónsson áhafnarmeðlimur, f. 1912, d. 1942), báðir skrifa undir en óvíst hvor á hvaða undirskrift
Jón Engilberts (f. 1908, d. 1972) Danmörk
Jón Guðmundsson (Balbo) (líklega Jón Ísfeld Guðmundsson, f. 1909, d. 1992) Danmörk
Jónína Guðmundsdóttir (Jónína S. Guðmundsdóttir, f. 1916, d. 2006) Noregur
Jósep Gíslason (Jósef Gíslason, f. 1886, d. 1961) Danmörk
Jörundur P[…] (Jörundur Pálsson, f. 1913, d. 1993) Danmörk
Kári Gunnarsson (f. 1921, d. 1995) Danmörk
Klemens Tryggvason (f. 1914, d. 1997) Danmörk
Kristjana Jónsdóttir (f. 1920, d. 2010) Danmörk
Kristján Richter (f. 1937) Danmörk
Kristján Sigurjónsson (f. 1905, d. 1982) Áhöfn
Lárus Pálsson (f. 1914, d. 1965) Danmörk
María Sveinbjörnsdóttir (María Viktoría Sveinbjörnsdóttir, f. 1914, d. 1990) Danmörk
Oddur V. Hjálmarsson (Oddur Vagn Hjálmarsson, f. 1912, d. 1979) Svíþjóð
Ólafur Jónsson (f. 1922, d. 2005) Danmörk
Ólafur Sigurðsson (vélstjóri, f. 1901, d. 1975 eða háseti, óþekkt) Áhöfn
Ólöf Kr. Richter (Ólöf Kristín Ólafsdóttir Richter, f. 1914, d. 1938) Danmörk
Pjetur Pjetursson (Pétur Pétursson, f. 1918, d. 1996) Danmörk
Ragnar Guðlaugs (Ragnar Guðlaugsson, f. 1897, d. 1977) Danmörk
Ragnar Sigurðsson (skipverji á Snæfelli, óþekkt) Svíþjóð
Regína Benediktsdóttir (f. 1917, d. 2004) Danmörk
Regína Þórðardóttir (f. 1906, d. 1974) Danmörk
Rósa Níelsdóttir (Sigurrós Rósa Einarsdóttir (Níelsdóttir), f. 1918, d. 2002) Danmörk
S. Guðbjartsson (líklega Sigurður Guðbjartsson, f. 1900, d. 1959) Áhöfn
Sig. Einarsson (Sigurður Einarsson, f. 1880, d. 1967) Danmörk
Sig. Jónsson (Sigurður Jónsson, óþekkt) Áhöfn
Sig. Ó. K. Þorbjarnarson (Sigurður Ólafur Kristinn Þorbjarnarson, f. 1913, d. 1988) Áhöfn
Sighv. Bjarnason (Sighvatur Bjarnason, f. 1919, d. 1998) Danmörk
Sigríður Axelsd. (Sigríður Axelsdóttir, f. 1920, d. 1997) Danmörk
Sigríður Magnúsdóttir (f. 1911, d. 2000) Danmörk
Sigurgeir P. Gíslason (f. 1916, d. 2003) Svíþjóð
Stefán Björnsson (f. 1908, d. 1994) Danmörk
Stefán Guðmundsson (Stefán Viggó Guðmundsson, f. 1918, d. 2007) Danmörk
Steinunn Hafstað (Steinunn Alda Hafstað, f. 1919, d. 2005) Danmörk
Sveinn Þórarinsson (f. 1899, d. 1977) Danmörk
Thordarson (líklega Sigvaldi Thordarson, f. 1911, d. 1964) Danmörk
Tove Engilberts (f. 1910, d. 1995) Danmörk
Unnur H. Eiríks. (Unnur Hulda Eiríksdóttir, f. 1914, d. 1995) Danmörk
Valborg […] (Valborg Sigríður Línberg Óladóttir, f. 1883, d. 1955) Áhöfn
Vera Pálsdóttir (f. 1919, d. 2014) Danmörk
Þ. Guðmundsson (óþekkt)
Þ. Ragnar Jónasson (Þorleifur Ragnar Jónasson, f. 1913, d. 2003) Danmörk
Þorbjörg Sturlu (Þorbjörg Sturludóttir, f. 1890, d. 1973) Danmörk
Þórarinn Ólafsson (f. 1912, d. 1995) Danmörk
Þórdís Jóhannsdóttir (Þórdís Ágústa Jóhannsdóttir, f. 1920, d. 1954) Danmörk
Þórunn Hafstein (Þórunn J. Hafstein, f. 1912, d. 1998) Danmörk
J[…] […] (óþekkt)
[…] […]dóttir (óþekkt)
[…] […]dsson (óþekkt)
[…] Árnadóttir (Þórunn Hekla Árnadóttir, f. 1922, d. 2010) eða (Þóra Árnadóttir, f. 1914, d. 1996) eða (Guðbjörg Rakel Árnadóttir (f. 1916, d. 1997) Danmörk
[…] Guðmundsdóttir (óþekkt)
[…] Sig[…] (óþekkt)
Adda Þorvaldar (líklega Sigurbjörg Þorvaldsdóttir, f. 1918, d. 2007) Danmörk
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Undirskriftir á bakhlið
Alma Leifsson (Alma Dóróthea Andersen Leifsson, f. 1902, d. 1989) Danmörk
Auður Guðjónsdóttir (f. 1918, d. 2001) Svíþjóð
Augusta Hallgrímsson ([…]) (Guðrún Ágústa Hallgrímsson (líklega gælunafn í sviga), f. 1907, d. 1980) Danmörk
Axel Björnsson (f. 1895, d. 1967) Svíþjóð
Ásg. Sigurðsson (Ásgeir Sigurðsson (skrifar tvisvar á jakkann), f. 1894, d. 1961) Áhöfn
Ásta Einarson (Ásta Sveinbjörnsson Einarson, f. 1877, d. 1959) Danmörk
Baldur Ólafsson (Baldur Rafn Ólafsson, f. 1911, d. 2001) Danmörk
Bía Bjarnad. (líklega Fríður Bjarnadóttir, f. 1911, d. 1978) eða (Jóhanna Bjarnadóttir, f. 1903, d. 1981) Áhöfn
Björn Jóhannesson (f. 1914, d. 1990) Danmörk
Björn Sigurðsson (f. 1913, d. 1959) Danmörk
Brandur Jónsson (f. 1911, d. 1982) Danmörk
Camillus Bjarnars. (Camillus Wich Benediktsson Bjarnarson, f. 1905, d. 1976) Danmörk
Einar S. Elíasson (Einar Sölvi Elíasson, f. 1915, d. 2011) Svíþjóð
Eiríkur Leifsson (f. 1901, d. 1963) Danmörk
Elín Jóhannsson (Elín Elísabet Júlíusdóttir (gift Ólafi Jóhannssyni), f. 1912, d. 1992) Danmörk
Elín Söebech (Elín Söebech Eiríksdóttir, f. 1900, d. 1987) Danmörk
Elísabet Guðmunds (Elísabet Guðmundsdóttir, f. 1906, d. 1947) Danmörk
Erla Cortes (f. 1939, d. 2006) Danmörk
Esther Blöndal (f. 1915, d. 2004) Danmörk
Eva Vernharðs. (Eva Vernharðsdóttir, f. 1907, d. 1998) Danmörk
Franch Michelsen (f. 1913, d. 2009) Danmörk
G J Cortes (Gunnar J. Cortes, f. 1911, d. 1961) Danmörk
G. Jónmundsson (Guðmundur Jónmundsson, f. 1901, d. 1956) Danmörk
G. Thorkels (líklega Guðrún Lilja Þorkelsdóttir, f. 1914, d. 1990) Danmörk
Georgía Björnsson (Georgía Björnsson Hoffman-Hansen, f. 1884, d. 1958) Danmörk
Guðbjörg Milner (Guðbjörg Kristjánsdóttir Milner, f. 1910, d. 2004) Danmörk
Guðbrandur Þ. Sæmundsson (líklega Guðbrandur Þorkell Sæmundsson, f. 1915, d. 1983) Áhöfn
Guðjón Guðbjörnsson (f. 1897, d. 1976) Svíþjóð
Guðjón Vigfússon (f. 1902, d. 1996) Svíþjóð
Guðrún Björnsdóttir (Guðrún Salvör Björnsdóttir, f. 1914, d. 2011) Danmörk
Guðrún Björnsson (Guðrún Valdimarsdóttir (gift Jóhannesi Björnssyni), f. 1917, d. 2010) Danmörk
Guðrún Guðmunds (Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1915, d. 1997) Danmörk
Guðrún Pálsdóttir (Guðrún Pálína Pálsdóttir, f. 1909, d. 2000) Danmörk
Guðrún S. Gísladóttir (Guðrún Soffía Gísladóttir, f. 1912, d. 2003) Danmörk
Guðrún Tulinius (f. 1919, d. 2000) Danmörk
Gunnar Jóelsson (Gunnar Viggó Jóelsson, f. 1918, d. 1990) Danmörk
Gústa Bjarman (Ágústa Kolbeinsdóttir Bjarman, f. 1892, d. 1966) Danmörk
H J Hólmjárn. (Hólmjárn J. Hólmjárn, f. 1891, d. 1972) Danmörk
H. Elíasson (Hjörleifur Elíasson, f. 1922, d. 1972) Danmörk
Hafsteinn Axelsson (f. 1922, d. 1982) Noregur
Hanna Davíðsson (Jóhanna Christine Davíðsson, f. 1888, d. 1966) Danmörk
Haraldur Sigurðsson. (vélstjóri á Gullfossi, f. 1883, d. 1954) eða (læknir, f. 1900, d. 1976) Danmörk
Haukur Jacobsen (Haukur Egilsson Jacobsen, f. 1921, d. 1997) Danmörk
Helena Zöega (Helena Geirsdóttir Zöega, f. 1920, d. 2001) Danmörk
Helgi […] (Helgi Halldórsson, f. 1912, d. 1978) Danmörk
Inga Jónsdóttir (líklega Jónína Ingunn Jónsdóttir (síðar Inga Blandon), f. 1919, d. 2012) Danmörk
Ingibergur Vilmundars. (Ingibergur Vilmundarson, f. 1918, d. 1986) Svíþjóð
Ingibjörg Jónsdóttir (Ingibjörg H. Jónsdóttir, f. 1919, d. 1988) Danmörk
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir (f. 1909, d. 1971) Noregur
Ingibjörg Vernharðs (Ingibjörg Vernharðsdóttir, f. 1918, d. 2004) Danmörk
Jóh. Björnsson (Jóhannes Björnsson, f. 1907, d. 1966) Danmörk
Jóhann Þorsteinsson (f. 1910, d. 2006) Noregur
Jón Jónsson (Jón Örn Jónsson frá Danmörku, f. 1938, d. 2020) eða (Jón Jónsson skipverji á Snæfelli frá Svíþjóð, óþekkt)
Jón Jónsson (Jón Örn Jónsson frá Danmörku, f. 1938, d. 2020) eða (Jón Jónsson skipverji á Snæfelli frá Svíþjóð, óþekkt)
Jón Pétursson (f. 1912, d. 2001) Danmörk
Jón Sigtryggsson (f. 1908, d. 1992) Danmörk
Jón Steingrímsson (f. 1914, d. 2004) Danmörk
Kaj Ólafsson (Jens Kaj Ólafsson, f. 1906, d. 1968) Áhöfn
Kjartan Guðmundssson (f. 1914, d. 1988) Danmörk
Kjartan Milner (Kjartan Milner Eðvarðsson, f. 1907, d. 1953) Danmörk
Kjartan R. Guðmundsson (f. 1906, d. 1977) Danmörk
Klara Svanlaugs. (Hulda Klara Svanlaugsdóttir, f. 1914, d. 2011) Danmörk
Kristbjörn Tryggvason (f. 1909, d. 1983) Danmörk
Kristján Aðalsteinss (Kristján Aðalsteinsson, f. 1906, d. 1996) Danmörk
Kristján Jónsson (skipverji á Snæfelli, óþekkt) Svíþjóð
Kristján Reynir (Kristján Reynir Guðmundsson, f. 1918) Danmörk
Leifur Sigurbjörnsson (Þorleifur Sigurbjörnsson, f. 1915, d. 1963) Danmörk
Magga Guðjónsson (Sigríður Magnea Halldórsdóttir (í minnisblokkinni skrifar hún Magnea Guðjónsson), f. 1906, d. 1999) Danmörk
Margrét Thorfinnsson (Margrét Ingibjörg Guðmundsdóttir (gift Tryggva Þorfinnsyni), f. 1909, d. 1976) Danmörk
Margrjet Hjaltested Sólmundsson (Margrét Þórdís Hjaltested, f. 1909, d. 2006) Danmörk
Már Ríkarðsson (Ríkarður Már Ríkarðsson, f. 1915, d. 1946) Danmörk
Nana Pétursdóttir (líklega Kristjana Pétursdóttir, f. 1918, d. 1992) Danmörk
Ól Tómasson (Ólafur Tómasson, f. 1908, d. 1977) Danmörk
Ólafur Jóhannsson (1908, d. 1996) Danmörk
Ósk Ólafsdóttir (Guðbjörg Ósk Ólafsdóttir, f. 1921, d. 2000) Danmörk
Óskar Vigfússon (Kristófer Óskar Vigfússon, f. 1937) Danmörk
Páll Ólafsson (f. 1911, d. 19979 Danmörk
Ragna (Ragna Haraldsdóttir, f. 1927, d. 2009) Danmörk
Ragna Eiríks. (Ragnhildur Eiríksdóttir, f. 1916, d. 1968) Danmörk
Ragnar Karlsson (f. 1920, d. 1959) Noregur
Rebekka Gestsdóttir (Rebekka Petra Gestsdóttir, f. 1917, d. 1986) Danmörk
Rúna Cortez (Kristrún Þorsteinsdóttir Cortes, f. 1914, d. 2003) Danmörk
Sigríður Pétursdóttir (f. 1905, d. 1985) Danmörk
Sigríður Vernharðs. (Guðrún Sigríður Vernharðsdóttir, f. 1906, d. 1997) Danmörk
Sigur[…] Gunnlaugsson (líklega Sigursteinn Gunnlaugsson, f. 1896, d. 1959) Svíþjóð
Sigurd (óþekkt)
Stefán Wathne (f. 1917, d. 1976) Danmörk
Steindór Jónsson (Steindór Kr. Jónsson, f. 1918, d. 1981) Svíþjóð
Sv. S. Einarsson (Sveinn Sigurður Einarsson, f. 1915, d. 1988) Danmörk
Tómas Guðjónsson (f. 1907, d. 1983) Danmörk
Tryggvi Steingrímsson (f. 1912, d. 1997) Áhöfn
Valgerður Kristinsdóttir (f. 1894, d. 1987) Danmörk
Valgerður Pétursd. (Valgerður Pétursdóttir, f. 1912, d. 1988) Danmörk
Vésteinn Guðmundsson (f. 1914, d. 1980) Danmörk
Vilhelm Jónsson (Vilhelm Fr. Jónsson, f. 1897, d. 1985) Svíþjóð
Þorbjörg Eldjárn (f. 1914, d. 2013) Danmörk
Þorsteinn Arnalds (Þorsteinn Arnaldsson, f. 1915, d. 2001) Danmörk
Þór Ingimarsson (Þór Ferdinand Ingimarsson, f. 1919, d. 2003) Danmörk
Þórarinn Sigmundsson (f. 1917, d. 1996) Finnland
Þórdís Claessen (f. 1919, d. 2005) Danmörk
[.]. Sigurðsson (óþekkt)
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Ógreinileg undirskrift
Main information
Donor: Frank Úlfar Michelsen
Dating
1940
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2021-14
Dimensions
47 x 38 cm
Lengd: 47 Breidd: 38 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Jakki
References
Petsamójakkinn (2021, 24. janúar). Fyrir alla muni. RÚV.
Unnar Rafn Ingvarsson. (2020). Heimferð Íslendinga frá Petsamo. Þjóðskjalasafn Íslands. Sótt af: https://skjalasafn.is/heimild/heimferd_islendinga_fra_petsamo
Davíð Logi Sigurðsson. (2020). Þegar heimurinn lokaðist: Petsamo-ferð Íslendinga 1940. Sögur útgáfa.
Davíð Roach Gunnarsson og Egill Helgason. (2020, 15. október). 80 ár frá endurkomu Petsamó-ferðarinnar. RÚV. Sótt af: https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2020-10-15-80-ar-fra-endurkomu-petsamo-ferdarinnar
"Esjan" er komin að landi með 258 farþega. (1940, 16. október). Morgunblaðið, bls. 3 og 6. Sótt af: https://timarit.is/page/1242218
Ferðin frá Íslandi til Petsamo. (1940, 16. október). Morgunblaðið, bls. 5. Sótt af: https://timarit.is/page/1242220
Utanríkisráðuneytið. (2020, 15. október). Eldskírn utanríkisþjónustunnar - fyrsta borgaraþjónustuverkefnið. Stjórnarráð Íslands. Sótt af: https://www.stjornarradid.is/raduneyti/utanrikisraduneytid/soguvefur-utanrikisthjonustunnar/stakur-pistill/2020/10/15/Islendingarnir-sem-laestust-inni/













































