Folk Customs Response

01.01.2012 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1961)
Dating
period: 01.01.2012 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-707
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Fjölbreytt, mikið af grænmeti og ávöxtum, lífrænt og íslenskann uppruna ef hægt er, forðast verksmiðjuunnar vörur. lítið kjöt en borða villt s.s. hreindýr og fugla. Íslenskt lamb. Helst eitthvað sem ég rækta sjálf eða tíni í náttúrunni s.s.grænmeti, fjallagrös .sveppi og ber. Ekki ákveðið mataræði sem slíkt bara hollt.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Talsvert lengi sl. 10 ár alltaf meira og meira forðast unnin matvæli og velja frekar lífrænt. Nú er líka betra úrval af lífrænt ræktuðu hér úti á landi.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Aðallega heilsunnar vegna, ég finn að þetta hentar mér betur þar sem ég er með liðagigt og ýmis óþol fyrir efnum í unnum matvælum.Ég held áfram þar sem þetta gerir mér gott og færi mig smá saman út í lífrænt og grænt mataræði vegna umhverfisins. Ég reyni að rækta grænmeti sjálf og borða það sem er í nærumhverfinu til að minnka kolefnissporið.Við hjónin eru með kartöflugarð, grænmetisgarð, býflugnarækt, íslenskar hænur og berjaland í bakgarðinum. einnig erum við með skógrækt og þar finn ég góða sveppi stunda fjallgöngur og finn mér fjallagrös.Einnig rækta ég bæði fjölærar kryddjurtir og sái árlega bæði inni og úti.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég hef aðallega lesið mér til um málið og breytingin kom smá saman yfir langt tímabil.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Áherslurnar hafa breyst þannig að ég minnka alltaf dýrarótein og borða meira grænmeti. Þó borða ég enn fisk og kjöt en mun minna og þá ekki unnar vörur.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég upplifði strax breytingar á liðheilsu og líka er maður glaðari að geta nýtt frá eigin ræktun.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla stundum í heimabyggð en oftast í nettó Glerártorgi. Einstaka sinnum í Costcó en þeir hafa oft lífrænar vörur s.s. hnetur og fl. Ég les oftast upplýsingar á pakkningum og reyni að velja lífrænt og sem fæst innihaldsefni. T.D ef keyptur er kjúklingur sem gerist orðið sjaldan þá kaupi ég aldrei vöru þar sem sprautað hefur verið salt/sykurvatin í hann, bara 100% kjúkling.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það hefur verið frekar lélegt og dýrt en 50 km. eru í betri búðir.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef mikinn áhuga á mat og matargerð. Elska að prófa nýjar uppskriftir og hafa matarboð.( Ekki gengið vel í Covid). Held að það fari minnst 2-3 tímar dag hvern í innkaup, umhugsun og matartilbúning. Svo fer tími í að rækta og hugsa um plönturnar.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
gott bragð þar sem hráefnin fá að njóta sín án þess að kafna í kryddi. Fjölbreytt áferð og litríkt útlit finnst mér best.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
gæða matvæli eru þau sem eru sem minnst unnin eða bætt í aukaefnum. Fersk og lífræn ef mögulegt er.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Enginn söknuður.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda flesta daga heima, Góðir hnífar eru málið hjá mér og pottar og pönnur mikilvæg.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer sjaldan, reyni að velja staði sem bjóða uppá mat í hollari kantinum s.s. Krúsku ef ég kem til höfuðborgarinnar eða Gandi en þeir vinna allt frá grunni í indverskan mat. Einnig hef ég gaman að því að fara fínt út að borða en það er sjaldan.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Úrvalið mætti vera betra á heimaslóð.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég elda oftast.Við erum tvö flesta daga nú orðið en barnabarn oft hjá okkur.Á sumrin og um jól /páska eru oft fleiri af fjölskyldunni heima, T.D síðustu jól vorum við sex í mat alla hátíðina.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ég upplifi mikinn stuðning og flestir hrósa matnum. Unga kynslóðin þ.e. barnabarnið hefur gagnrýnt að það sé orðið of mikil áhersla á grænmeti hér á bæ.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Matarhefðir skipta miklu máli og hef ég ekki breytt þeim nema var t.d. áður með hamborgarahrygg á páskum en nú get ég ekki hugsað mér að borða þannig mat.Er svo heppin að jólamáltíðin er villisveppasúpa og villigæs sem ég held mér við.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Þegar ekki er covið held ég matarboð og ég hef ekki þurft að gera sérstakar ráðstafanir því tengt .Ef ég er boðin í mat hef ég getað aðlagað mig oftast vel þá það sem hentar eða læt mig hafa það sem er á boðstólum og geri ekki sérstakar kröfur.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
nei ekkert tengt kyni.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Helst les ég uppskriftir í bókum og svo á miðlum s.s. matarvef mbl og fl.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að geta haft sem mest frá sér eða nærumhverfinu til að nærast og dafna.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
það þarf að huga að því að matur innihaldi öll næringarefni sem líkaminn þarfnast, sé án aukaefna og lífrænn. Hollur er hreinn matur.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

tala nú ekki mikið um þetta við aðra en fólkið mitt í fjölskyldunni og reyni að útskýra fyrir t.d. barnabarninu um áhrif eiturs í náttúrunni og hollustu matvæla.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já ég ætla að efla mig frekar í ræktun og sjálfbærni í mat.Sé fyrir mér að halda þessu áfram meðan ég get.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
það þarf að fræða meira um sjálfbærni og hvað við getum gert sjálf til að varðveita haf og land til komandi kynslóða.

Við hvað starfar þú?
Hjúkrun/ eftirlaun

Hver er menntun þín?
Háskólapróf og tvær diplomur í framhaldsmenntun.