Folk Customs Response

01.01.2018 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1961)
Dating
period: 01.01.2018 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-706
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er næst því að vera vistkeri, en er samt að mestu vegan. Borða ekkert kjöt og engar mjólkurafurðir, en sjávarfang svo lengi sem það er ekki úr eldi. Ég er líka með glúten ofnæmi og get ekki borðað sykur.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Síðan 2018.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Árið 2016 byrjaði heilsunni að hraka og ég hélt að ástæðan væri hækkandi aldur. Tveimur árum síðar voru bólgurnar í líkamanum orðnar svo slæmar að ég átti erfitt með jafn einfalda hluti og að klæða mig eða lyfta kaffibolla. Í október 2018 greindist ég með sjálfsofnæmissjúkdóminn liðagigt (Rheumatoid Arthritis). Það vildi mér til happs að nokkrum mánuðum fyrr var ég kynnt fyrir ótrúlegri konu, sem hafði náð bata eftir áratuga heilsuleysi með hjálp breytts mataræðis og lifnaðarhátta. Konan sem gaf mér nýtt líf heitir Hildur M. Jónsdóttir. Ég var ein af þeim fyrstu sem hún hjálpaði til betri heilsu og nú hef ég verið svo til einkenna- og lyfjalaus í 2 ár. Ég held mig við það vegna þess að það eru stórkostleg lífsgæði að lifa án verkja og þurfa ekki á lyfjum að halda.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Sá auglýsingu á netinu sumarið 2018 og fór á námskeið. Breytinging gerðist hægt. Þetta er engin skyndilausn heldur lífstílsbreyting til frambúðar svo það tók um hálft ár að breyta mataræðinu.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nei.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Já, ég léttist um fjölda kílóa - þó þetta sé alls ekki megrun - er orkumeiri og fókusinn betri. Mesta breytingin er á bragðlaukunum, sumt af því sem mér fannst áður gott get ég ekki hugsað mér að borða núna, en svo er ég sólgin í ýmislegt sem mér fannst áður vont. Ég get ekki einu sinni séð hrátt kjöt án þess að verða ómótt. Naga nú sellerí sem snakk, en það hafði mér alltaf fundist vont.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla venjulega í Krónunni, Nettó og Vegan búðinni. Einfaldlega vegna þess að þar fást vörurnar sem ég nota. Mest af því sem ég kaupi er ferskmeti og helst það sem kemur stutt að. En ég þarf líka að gæta þess að ekkert innihaldi viðbættan sykur eða aukaefni og það er flóknast. Lestur á innihaldslýsingum tekur mikinn tíma.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég bý í Reykjavík, svo það er orðið ágætt. Kemst þó eðlilega ekki í hálfkvisti við úrvalið í London þar sem ég bjó áður og maður gat fengið allt beint frá býli og heim að dyrum.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Mjög mikilvægur. Ég hef alltaf haft áhuga á mat og matargerð, en nú held ég úti vefsíðu sem heitir PurelySigga.com eða Sæluréttir Siggu. Hún er með uppskrifum sem ég hef þróað fyrir fólk í sömu stöðu og ég er í - en líka fyrir þá sem vilja bæta grænmeti í mataræðið og hugsa um hvað þeir setja ofan í sig.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskleiki og samsetning kryddtegunda. Mér finnst líka mikilvægt að það sem ég borða ilmi vel og sé fallegt.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferskleiki og að varan sé án aukaefna.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ekki lengur.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég er með lítið og gamalt eldhús, en gæti ekki verið án matvinnsluvélar, hrærivélar og blandara. Við eldum flesta daga.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei, mjög sjaldan því það er dýrt. Og svo er erfitt að fá mat sem hentar mínu mataræði þó það hafi lagast mikið á undanförnum árum.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Ef hætt yrði að blanda alls kyns óþarfa í matvæli, eins og sykri, þykkingar- og rotvarnarefnum.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum bara tvö hjónin núna en uppkomin börn koma mjög oft í mat. Við borðum sama mat og synir og tengdadætur eru vegan líka svo það einfaldar hlutina.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Mikinn stuðning frá fjölskyldu og vinum. Það skiptir miklu máli. Ég hef fundið fyrir fordómum frá fólki sem þekkir mig ekki og það er óþægilegt að þurfa að svara fyrir það sem margir kalla dynti og sérvisku - þegar það eina sem ég er að gera er að huga að heilsunni. Ég er fegin að þurfa ekki að díla við fordóma meðal fjölskyldu og vina.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Þær skipta mig ekki miklu máli, enda hef ég þurft að breyta öllu. Það er samt bara skemmtileg ögrun t.d. að búa til bolludagsbollur sem eru glútenlausar og vegan.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég held mjög oft matarboð, en við erum sjaldan boðin í mat - enda martraðarpar, ég með mitt mataræði og maðurinn minn kokkur.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei, man ekki eftir því.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
https://www.heilsubankinn.is/hildur/ og svo ótal erlendar vefsíður. Engar sérstakar, bara það sem ég finn hverju sinni.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að reyna að nota sem mest úr nærumhverfinu, ég er með gróðurhús og ræktunarkassa og reyni að rækta sem mest sjálf. Líka mikilvægt að nýta allt til að koma í veg fyrir matarsóun og kaupa eins lítið og ég get af því sem kemur langt að. Það er erfitt fyrir mig þar sem allt efni í glútenfrían bakstur kemur langt að.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Það er mjög persónubundið hvað hentar hverjum og einum, en hollt er í mínum huga sérstaklega ferskmeti og matur sem er unnin frá grunni. Grænmeti.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Já, því mig langar til að hjálpa öðrum til betri heilsu. Það hef ég þegar gert með uppskriftunum mínum og það gleður ósegjanlega að fá bréf og skilaboð frá notendum.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei, man ekki eftir neinu.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei, mjög góð spurningaskrá.

Við hvað starfar þú?
Ég starfa við skrif.

Hver er menntun þín?
Ég er kvikmyndafræðingur.