Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1954)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-704
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er með glúten og laktósaóþol og ræðst öll matreiðsla og matur af því. Borða því ekkert brauðmeti eða mjólkurvörur en í staðinn nota ég mikið hafra-, möndlu-, rís-mjólk og td. vegan ost og rjóma. Að öðru leiti er allur venjulegur matur, fiskur, kjöt, grænmeti, ávextir á borðum.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
síðan árið 1999.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Óþol þýðir að allskonar kvillar í maga og líkama yfir höfuð fylgja og um leið og tiltekin matvæli eru útilokuð úr fæðunni að þá hverfa þessir kvillar. Ég held mig við þetta mataræði vegna þess að ég er 100% hraustari og laus við allskonar vanlíðan.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég fór til næringarþerapista erlendis sem leiddi mig á rétta braut. Breytingin átti sér stað af nauðsyn og eftir einn mánuð þá var líðanin öllu betri.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nei.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Almennt hafa engar breytingar orðið nema til batnaðar. En samt er vandasamt að fara út að borða, fara í veislur og kaupa í matinn alltaf til staðar, því hvorki verslunareigendur eða fólk sem þekkir ekki hvað glúten og laktósafrír matur er.... skilur ekki að hér er ekki um neitt val að ræða. Heldur fylgja þessar fæðutegundir hafa í för með sér mikil vandkvæði og getur jafnvel verið hættulegt fyrir okkur sem svona erum.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla þar sem ég helst finn GF og LF vörur, t.d. Nettó, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Krónan. Ég þarf ævinlega að lesa vel á allar pakkningar og vera frekar vel að mér í allskonar upplýsingum og tæknimáli. Verðlag og uppruni vöru skipta líka máli.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég geri mér far um að kaupa mat sem hentar mér, þegar ég er nálægt verslun sem hefur þessar vörur. En að öðru leyti fer ég ekki verslun nema til að kaupa fisk og kjöt og það er alls-staðar hægt að nálgast þær vörur.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Mjög mikinn áhuga og er stórkostlega mikilvægur í mínu lífi. Mikill tími fer í undirbúning, spekúlasjónir og matarupplifun alla jafna. Ég les uppskriftir en fer yfirleitt frjálslega með í ljósi aðstöðu minnar.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Bragð, lykt, áferð, útlit og ekki síst félagsskapur við matargerð og meðan á máltíð stendur.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Fersk matvæli, helst ekki unnar matvörur (nema einstaka s.s. hráskinka og fl í þeim dúr ) og ekki skemmir að vera matur úr héraði. Svo er heimaræktun á grænmeti og berjum svo og tínsla á villtum berjum, sveppum og fl.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei ekkert sem ég man eins og er.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Daglega. Þarf kannski réttu kryddin, olíuna og góða hnífa, potta og pönnur.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Kannski 6 sinnum á ári. Fer aðeins á staði sem ég get verið viss um að hafi GF og LF mat á boðstólum. Þar sem íslenskir veitingastaðir bjóða ekki uppá matseðla þar sem innihaldið er útlistað að þá gerir það fólki eins og mér erfitt fyrir og það er bæði þreytandi og niðurdrepandi að þurfa alltaf að vera að spyrja og fá nánari lýsingu á innihaldi frá kokkinum (þjónustufólk veit sjaldnast hvað er í matnum)
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það ætti að festa í lög að matseðlar eigi að tiltaka hvað maturinn inniheldur. (s.s. GF, LF, NF, SF, og svo framvegis) Þetta er gert mjög víða á stöðum sem ég farið á í Evrópu, Norðurlöndum og BNA og gerir að verkum að það léttir mjög val og upplifun við að fara út að borða. Íslenskir matstaðir mættu sannarlega bæta sig í þessum málum.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum tvö í heimili núna, vorum áður fjögur. Hin þrjú borðuðu nokkurn veginn það sama og ég en fengu sér skyr, ost og brauð reglulega. Í dag borða hvorugt barna minna brauðmeti af sömu ástæðu og ég en eitthvað lítillega borða þau mjólkurvörur. Það er ekkert mál að búa til mat svo öllum líki og því er engin vandamál að því leiti.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ég fæ algeran stuðning frá fjölskyldu og engum finnst þetta neitt skrítið eða óþægilegt. Öðru máli gegnir um suma i vini og fjar-fjölskyldu sem skilja ekki alveg hvað þetta er og halda að þetta sé val eins og td að vera vegan sem það er ekki. Aðallega er þreytandi að þurfa að útskýra hvað glútenóþol og laktósaóþol er og hvaða afleiðingar matvörur hafa fyrir líkamlega og andlega líðan.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Matarhefðir skipta svolitlu máli.... en mataræði mitt hefur töluvertt breyst frá minni barnæsku, en það hefur líklega breyst meira vegna veru minnar í útlöndum þar sem við kynntumst allskonar mat og venjum viðkomandi lands og við síðan tekið með okkur heim og gert að okkar. Þá helst frá Frakklandi og Ítalíu.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Þegar ég hef veislur og matarboð á mínu heimili að þá fá gestir það sama og ég get borðað og ég ræði það ekkert sérstaklega við fólk. En ef við erum á leið til annars fólks að þá verð ég alltaf að ítreka að ég geti engar mjólkurvörur fengið eða brauðmeti. Oft kem ég sjálf með GF brauð með mér. En annars reyni ég að ræða þetta ekki, enda orðin yfir 20 ár sem ég hef verið svona og flestir vinir vita af því og gera ekkert mál úr því.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei ekki get ég sagt það.

Questionnaire
Record type