Folk Customs Response

01.01.2008 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1987)
Dating
period: 01.01.2008 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-703
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég myndi lýsa mér sem Grænkera/vegan. Ég borða nánast alltaf 100% Vegan fæði en er sveigjanleg af og til með mjólkurvörur þegar ekki er góður vegan valkostur í boði fyrir mig. Ég myndi aldrei borða kjöt eða fisk undir nokkrum kringumstæðum nema til að hreinlega bjarga eigin lífi.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Í um það bil 14 ár. Frá því ég var barn hefur mér þótt kjöt og fiskur fráhrindandi og alltaf borðað lítið af því. 2007/2008 tók ég þá ákvörðun að gerast grænmetisæta og nokkrum árum síðar gerðist ég vegan.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Frá því að ég man eftir mér þá truflaði það mig að borða kjöt og fisk því ég fann til með dýrunum sem barn. Ég man að mér fannst sérlega einkennilegt að fólk borðaði börn dýranna fyrst og fremst: kjúklingar, lömb, folaldakjöt, ungnautahakk. Þegar ég varð eldri og sjálfstæðari fannst mér ég hafa svigrúm til að lifa meira í takt við eigin gildi og hætti smám saman að borða kjöt og fisk, endanlega í kringum tvítugt. Þá fór ég að kynna mér meira áhrif matarræðis á umhverfi og siðferði í kringum matvælaframleiðslu og smám saman færðist ég í átt að Vegan matarræði. Ég hef haldið mig við grænmetisfæði allar götur síðan og get ekki ímyndað mér að það muni nokkurn tímann breytast fyrst og fremst þar sem það fæli í sér breytingu á mínum grundavallargildum og siðferðisvitund. Einnig sökum þess að mér líður almennt vel á grænmetisfæði, finnst það bragðgott og er við góða heilsu.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég heyrði fyrst formlega um Vegan mataræði í gegnum mannin minn. Þegar við byrjuðum saman þá fann ég heima hjá honum nokkrar matreiðslubækur um grænmetisfæði en hann hafði á sínum tíma gælt við þá hugmynd að gerast grænmetisæta. Við þetta þá fannst mér eins og það yrði allt í einu raunverulega valkostur fyrir mig að gerast formlega grænmetisæta og þar sem slík tilhneiging hafði alltaf blundað í mér þá held ég að ég þurfti bara smá ytra samþykki á því að þetta væri eitthvað sem væri mögulegt og eðlilegt. Ég gerðist grænmetisæta á einni nóttu. Breytingin í átt að Vegan mataræði gerðist smám saman eftir það eftir því sem ég fór að afla mér meiri upplýsinga og velta fyrir mér fleiri þáttum í tengslum við matvælaframleiðslu.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nei ég held að viðhorf mín hafi alltaf verið hin sömu en kannski fyrst og fremst að afstaða mín hefur mildast með árunum til fólks sem borðar kjöt og kannski einnig til sjálfrar mín að það er erfitt að fylgja eftir Vegan lífstíl 100% og betra kannski að gera bara alltaf sitt besta hverju sinni.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég er í meiri sátt við sjálfa mig eftir að ég byrjaði að vera vegan og ég er stolt af sjálfri mér að standa "réttu megin sögunnar" að mínu áliti. Ég hef líka fengið marga í kringum mig til að taka upplýstari ákvarðanir um eigið mataræði með því að vera fyrirmynd. Áhugamál og félagslíf hafa lítið breyst. Vinkonur mínar og fjölskylda alltaf tekið þessu frekar vel og ekkert mál að fara saman út að borða eða bjóða í mat, fólk tekur tillit til mín. Ég losnaði við tvo líkamlega kvilla með mjög áberandi hætti eftir að ég breytti matarræði. Ég losnaði við járnskort þegar ég gerðist grænmetisæta og ég losnaði við exem þegar ég gerðist vegan.