Folk Customs Response

01.01.2015 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (2002)
Dating
period: 01.01.2015 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-700
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan/grænkeri og huga mikið að því að nota sem minnst plast. Ég hef verið vegan frá því ég var 12, 13 og er núna að verða 20 svo fyrir mér er það bara basic grunnur. Veganismi er í sjálfu sér ekki mataræði heldur sú afstaða að ég eigi ekki að skaða neinn ef þess þarf ekki eða að forðast það af fremsta megni að skaða ekki dýr. Mataræðið mitt er mjög fjölbreytt og breytist eftir árstíðum, hvað er til eða í hvernig stuði ég er

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Hef verið vegan í 7 ár

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hef alla mína tíð þurft að geta réttlætt allt sem ég geri og áhrif þess sem ég geri á annað í kringum mig. Þar af leiðandi um leið og ég áttaði mig á því að ég var ekki sammála því að til þess að ég fengi mat þyrfti að drepa og beita dýrum ofbeldi, svo að það þurfi ekki að vera þannig þá varð ég vegan.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég hef alla mína tíð þurft að geta réttlætt allt sem ég geri og áhrif þess sem ég geri á annað í kringum mig. Þar af leiðandi um leið og ég áttaði mig á því að ég var ekki sammála því að til þess að ég fengi mat þyrfti að drepa og beita dýrum ofbeldi, svo að það þurfi ekki að vera þannig þá varð ég vegan. Ég er ekki viss hvernig ég kynntist veganisma, ábyggilega bara með því að spyrja mömmu mína út í eitthvað sem ég hef heyrt einhversstaðar annarsstaðar.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já, fyrst var þetta voða einfallt, ég vil ekki skaða dýr svo ég sleppi því en síðan þá hafa komið í ljós ýmsar aðrar góðar ástæður t.d. umhverfisvernd

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ekki eitthvað sem ég get tengt við mataræði fyrir utan það að áður en ég fékk að verða vegan (þar sem ég var barn og þurfti leyfi foreldra minna) þá kveið mér mikið fyrir því að borða og borðaði því lítið annað en ávexti og brauð en það lagaðist um leið og ég fékk að vera vegan (fékk leyfi fyrir því þar sem ég gat eldað sjálfur og sýndi framm á það)

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
1. Veganbúðin, 2. Krónan/Nettó 3. Hagkaup/Bónus og svo versla ég umbúðalaust í heilsuhúsinu eða nándinni þegar ég get það. Verð skiptir mig máli og meiri hluti innkaupakörfunnar eru á ávextir, grænmeti, baunir... En svo líka ýmist annað t.d. frosnar vörur, snarl, ... Ég reyni eftir fremsta megni að kaupa vörur frá góðum fyrirtækjum, versla t.d. ekki við fyrirtæki sem stunda mikið ofbeldi gagnvart dýrum (þ.m.t. fólki) eða jafnvel frá áhveðnum löndum (eins og Ísrael)

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Bara flott :)

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mikinn áhuga á mat :D og elda mikið, gæti alveg hugsað mér að verða kokkur. Finnst skemmtilegra að elda en að borða (leiðist það stundum). Ég eiði oft tíma í að hanna uppskriftir (mest bara í huganum).

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Það fer svo mikið eftir því hvað þú ert að gera (: en það er endalaust hægt að leika sem með mismunandi kridd og áferðir til þess að gera nákvæmlega það sem þér langar

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Þætti voða gaman að fá fjölbreyttara úrval af íslensku grænmeti og ávöxtum svo baunum og allskonar!

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei (ojj)

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Flestar máltíðir (er mikið með nesti og hef vanist því). Ég get unnið með allskonar en þúst hnífur, skurðabretti, eitthvað hita element, ískápur voða næs...

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Já yfirleitt 1x í viku, mér finnst það oftast lítið mál en mætti vel vera ennþá auðveldara (en ég veit núna hvað ég vil helst forðast) elska alla 100% vegan staðina Jömm, Loving hut, Vegan world peace, Mama, Junkyard (rip), en líka margir óvegan staðir með mjög fína valkosti.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Að fara í mat hjá sumu fólki en þá aðalega vegna þess að þau geta bara ekki leyft mér að gera mitt í friði þá eða njóta bara með mér eða tala um veganisma á uppbyggilegan hátt (ekki bara tuð og afsakanir, nenni ekki að heyra það)

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý með Mömmu og systur minni, þær eru ekki vegan en það hefur samt alltaf gengið fínt :) nýlega flutti kærastið mitt til mín (erum að bíða eftir að fá okkar eigin íbúð afhenda) og hán er vegan sem er mjög gaman

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Nánasta fjölskylda er yfirleitt fín en þar fyrir utan reyni ég að forðast það að vera neitt að ræða það mikið. Auðvitað væri næs ef fólk gæti bara sýnt mér virðingu. Mest bara óþolandi tuð og mér svo jafnvel kennt um þrátt fyrir að vera mjög mjög sjaldan sá sem byrjar umræður

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei ekki þannig en hef veganæsað flestar hátíðarmáltíðir með góðum árangri (að mínu og annara (óvegan) mati)

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Það er mjög mismunandi en mér leyðist að fara í matarboð þar sem er ekki hægt að gera ráð fyrir mér (væri alveg sáttur með eitthvað keypt frosið og hent inn í ofn þess vegna) og mæti því sjaldan til fólks sem viðist ekki finnast það skipta miklu máli (hef verið vegan það lengi að þau ættu alveg að geta fundið út úr þessu, nú eða spurt mig :))

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Jájá hef alveg fengið það að það sé nú ekkert voða karlmannlegt að vera vegan, þá gefið í skyn að mín karlmennska sé ekki nógu góð að einhverju leyti (ég ögra henni samt alveg líka á aðra vegu) en það er asnalegt og ég nenni ekki að pæla í því

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég googla yfirleitt bara það sem mig langar að gera, skoða nokkrar uppskriftir og hanna mína eigin. Veganistur eru líka snillingar.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Hugsaðu um hvað þú ert að gera og sýndu öllu virðingu, ef þú sýnir virðingu þá held ég að þú getir ekki gert neitt slæmt?

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Það sem nærir þig og lætur þér líða vel, það er mismunandi eftir fólki hvernig það lítur út. Ég vil taka það framm að það eru til nokkrar ástæður fyrir því að einhver geti ekki verið vegan en í þeim tilfellum þarftu að gera það sem þú þarft til að halda í heilsuna þína. Þær undantekningar eru samt ekki algengar.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Já mér finnst það mikilvægt og vildi að öll myndu kynna sér veganisma að alvöru. En ég er samt ekki að fara að kynna hann hvar eða hvenær sem er

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Eflaust en nenni ekki að skrifa meira

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Eh veit ekki

Við hvað starfar þú?
Er starfsmaður hjá skátafélagi og er í skóla

Hver er menntun þín?
Er í skóla