Folk Customs Response

12.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1958)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-688
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ætli ég sé ekki flexitarian, því ég sæki mikið í grænmeti, korn og baunir. Hef lítinn áhuga á kjöti en borða kjöt ef mér er gefið kjöt, elda það aldrei sjálf. Eldamennska er stór þáttur í heimilishaldinu og hefur alltaf verið. Þess vegna eldar maðurinn minn reglulega kjötmáltíðir, um helgar aðallega, en þá fylli ég diskinn minn af grænmeti og borða kjötið svona með. Borða fisk örugglega þrisvar í viku, alla vega, þ.á.m. skelfisk. Reyni að forðast sykur eins og hægt er. Borða eitthvað af ávöxtum en mér finnst úrvalið hér á landi ekki gott, vond epli, þreyttar appelsinur, bláber full af rotvarnarefnum o.s.frv. Kaupi þó reglulega frosið mangó í þeirri veiku von að það sé ekki með eiturefnum. Kaupi íslenskt lífrænt grænmeti fyrst og fremst og aðrar íslenskar matvörur.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Nokkuð lengi, en síðustu ár hefur kjötneyslan farið hratt minnkandi og einnig hef ég orðið meira meðvituð um vistvænan lífsstíl.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Meiri meðvitund um loftslagsvána og kannski eru það dætur mínar sem hafa haft áhrif á mig, önnur borðar ekkert kjöt og hin borðar aðeins fuglakjöt.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Smám saman, hafði aldrei heyrt orðið flexitarian fyrr en nýlega þó ég hafi áður tekið slíkt upp. Þetta er þróun hjá mér, mjög hæg nokkuð langt aftur, en kjötneyslan minnkaði nokkuð hratt síðustu tvö ár.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Aðallega hvað varðar kjötneyslu, sbr. svarið hér á undan og er líka orðin allt of þreytt á lélegum ávöxtum!

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Nei, ég get ekkert fullyrt um það, hef alltaf verið hraust.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Kaupi mest í Bónus og vel íslensk matvæli, helst lífræn og án sykurs og bætiefna. Borða lítið eða ekkert unnin matvæli, eldum allan mat úr náttúrulegum hráefnum. Kaupi líka í Krónunni, Hagkaup og Melabúðinni. Mér finnst gott að versla í Bónus svo það er alltaf fyrsta val, m.a. vegna verðsins. Það er nokkuð merkilegt en mér finnst ávextirnir ekkert betri í dýrari verslunum, í raun eru þeir betri í Bónus því þeir eru geymdir í kæli þar, sem skiptir miklu máli, t.d. eplin eru þá köld og þannig haldast þau betur safarík. Samt hafa ekki fengist góð epli undanfarið, hvorki í Bónus né annars staðar.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott, mikið úrval verslana á svæðinu, en þó ekki í göngufæri í dagsins önn.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Mikinn áhuga, finnst gaman að elda, gaman að prófa uppskriftir. Til dæmis hef ég engan áhuga á skyndimat, kaupi í raun aldrei slíkt, því ég skil ekki þessa hugsun, skyndimatur! Mér finnst óhugsandi að flýta mér að redda mat og skutla honum ofan í mig! Þá vil ég nú frekar bara kaupa mér góðar hnetur eða eitthvað annað hollt, en annars tek ég alltaf nesti með mér í vinnuna, annað hvort afganga eða bara soðið egg og grænmeti. Það er síðan mikil slökun að koma heim eftir vinnudag og elda góðan og næringarríkan mat, sérstaklega grænmeti í alls konar útgáfum það er veisla.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Fjölbreyttur matur, alls konar grænmeti, baunir, fiskur og ég elska hollar sósur. Góður matur er hollur, bragðgóður og best er að gefa sér tima til að borða og njóta. Elska líka hnetur og gróft korn.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Lífræn, hrein og íslensk, það er toppurinn á öllu.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Svona þrisvar í viku, þarf að hafa úrval af grænmeti og elska sveppi, nota mikið grænmetiskraft, salt og pipar og gott þegar hægt er að fá íslenskan chili, á alltaf alls konar baunir og skelfisk í frysti.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei, miklu sjaldnar nú, en fór reglulega áður fyrr, en þá var Jómfrúin í uppáhaldi, og er enn þá, lyktin og stemningin engu lík, panta mér alltaf rauðsprettuna, hún er bara snilld.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
úrvalið af ávöxtum er til skammar! Það mætti vera meira af íslensku, hreinu og lífrænu hráefni.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Þrjú á heimilinu.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Á tímabili hætti ég alveg að borða kjöt, en það var félagslega ekki þægilegt. Það eru svo margar kjötuppskriftir sem eru stór þáttur í heimilishaldinu sem ég vil ekki eyðileggja, er orðin of gömul líka til að fara alla leið, hefðirnar eru dýrmætar. En ef ég byggi ein eða með dætrum mínum væri aldrei kjöt á borðum :)

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já mjög miklu, en grænmeti og sveppir verða alltaf fyrirferðameiri, líka á hátíðum.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Nei, ég borða það sem mér er boðið.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Mjög víða, alls konar vefsíður, erlendar og íslenskar.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að ganga ekki á náttúruna, endurvinna o.þ.h.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Lífrænt, hreint hráefni, mest grænmeti, korn og baunir.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei, ég geri það ekki mikið en það þyrfti að koma á átaki, vegna loftslagsbreytinganna.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já algjörlega

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Mjög gaman að taka þátt

Við hvað starfar þú?
Lektor í HÍ

Hver er menntun þín?
doktorsgráða