Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1997)
Dating
period: 01.01.2016 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-685
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan, þ.e. sneiði framhjá öllum dýraafurðum í mínu mataræði og reyni líka að gera það í almennri neyslu (kaupi t.d. ekki leður).
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég var grænmetisæta frá júlí 2015 til maí 2016 og hef verið vegan frá maí 2016.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég ákvað að prófa að verða grænmetisæta þar sem æskuvinkona mín hafði ekki borðað kjöt lengi af siðferðisástæðum. Fyrst sleppti ég kjöti, síðan fiski og síðan öllum dýraafurðum. Upphaflega grænmetisætuákvörðunin var ekki drifin af neinum hugsjónum en síðan fór ég að leyfa sjálfri mér að sjá siðferðisvinkilinn, þ.e. að mannskepnan þarf ekki og ætti ekki að slátra dýrum sér til matar, og á endanum varð ég vegan því ég sjá að mjólk og aðrar „óbeinar“ dýraafurðir væru litlu skárri en sjálft kjötið.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég heyrði sennilega fyrst um vegan á netinu. Fyrst tók ég út fisk, síðan kjöt og loks allar dýraafurðir, eins og ég lýsti í kafla 1.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Mínar skoðanir hafa aðeins styrkst, ég hef alltaf kallað mig dýravin en finnst ég ekki hafa raunverulega lifað eftir því fyrr en ég sneri bakinu við kjöti og öðrum dýraafurðum. Ég tel að það sé auðveldara að finna samkennd með dýrum og óþörfum örlögum þeirra þegar maður er hættur að borða kjöt því þá er maður ekki jafnaugljós sökudólgur og þátttakandi í þjáningunni sem á sér stað, en það getur verið erfitt að horfast í augu við það og sjálfan sig.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég hef ekki fundið fyrir miklum breytingum. Ég borða vissulega fjölbreyttari mat og mun meira af grænmeti og baunum, sem verður að teljast hollt.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla langmest í Krónunni og Bónus. Ég spái lítið í lífrænan mat, aðallega því hann er ansi dýr, og reyni að halda mig í ódýrari vörum. Ég prófa iðulega nýja vegan kosti sem fjölgar nánast daglega, t.d. vegan hamborgara eða þvíumlíkt. Annars kaupi ég oftast svipaða hluti: grænmeti, stundum sojakjöt (t.d. oumph) og vegan mjólkurvörur, t.d. smjör og ost.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er mjög gott og verður sífellt betra.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Mér finnst mjög gaman að elda þótt ég eldi ekki heima á hverju kvöldi. Ég elda talsvert af asískum mat en líka mexíkönskum og ítölskum. Oftast tekur mig ekki mjög langan tíma að elda en mér finnst þó gaman að leggja mikið í eldamennskuna og hafa fjölbreytt meðlæti. Ég reyni að vera dugleg að prófa nýjar uppskriftir og baka líka talsvert.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Minn uppáhaldsmatur er bragðmikill, helst aðeins sterkur, litríkur, og hefur fjölbreytta áferð.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Best er þegar grænmetið er sem ferskast og kemur t.d. úr íslenskum gróðurhúsum. Ég borða þónokkuð af unnum mat en hann er þó ekki endilega óhollur, t.d. oumph, sem er fyrst og fremst úr sojabaunum.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei, ég get ekki sagt það. Einstaka sinnum hugsa ég um reyktan lax en vegna þess hve ákveðin ég er í siðferðissjónarmiðum mínum hefur mér aldrei dottið í hug að „svíkja lit“ - það er einfaldlega ekki þess virði.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda nokkrum sinnum í viku og baka líka. Ég nota mest einföld og algeng tól eins og pönnur, potta og ofninn og áhöld en hef líka keypt sérhæfðari tæki, t.d. hrísgrjónapott sem ég nota talsvert.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer stundum út að borða, oftast á Fönix sem er kínverskur veitingastaður sem er með frábæra vegan rétti. Loving hut er líka asískur staður sem er alveg vegan og ég fer líka stundum á íslenska vegan staðinn Jömm, sem er með sveittari rétti eins og hamborgara. Það er sjaldnast neitt mál að fá vegan rétti á veitingastöðum á Íslandi en þeir eru mjög misgóðir og mismikill metnaður lagður í þá.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Helstu hindranirnar eru „óþarfa“ innihaldsefni úr dýraafurðum í vörum sem eru annars vegan, t.d. mjólkurduft sem má t.d. finna í súkkulaði og snakki. Gelatín í nammi er líka óþarflega algengt.

Questionnaire
Record type