Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1998)
Dating
period: 01.01.2019 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-683
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er pescaterian. Ég er einnig að klára Bs gráðu í líffræði í júní og þar af leiðandi samanstendur mataræðið mitt af bæði heimilismat og svo skyndibita eða einhverju snöggu sem fæst í Hámu. Borða mikið af grænmeti samt sem áður.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Hef verið pescaterian síðan í janúar 2019. Er með endometriosu og las mig til um það og þar las ég vísindagreinar sem ráðlögðu konum með endo að halda sig frá rauðu kjöti. Ég tók hinsvegar allt kjöt út og verkirnir snar minnkuðu, auk þess sem bakflæðið mitt hvarf.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég greinist með endometriosu 2019 og hætti þar af leiðandi að borða kjöt. Það hefur minnkað verkina mína svakalega og þessvegna hef ég haldið mig við það. Þegar ég var að byrja að taka út kjöt þá tók ég einstaka svindl máltíðir, en það leiddi bara af sér mikla verki og þar af leiðandi var ég alfarið hætt því. Ég hef ekki borðað neitt kjöt síðan í mars 2019.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég á margar vinkonur sem að voru vegan, grænmetisætur eða pescaterian áður en ég tók sjálf út kjöt og þeim fannst það ekkert mál. Það hjálpaði helling að hafa vini sem voru með reynslu til að leita ril ef það var eitthvað sem ég átti í erfiðleikum með að skipta út. Ég tek ákvörðun um að hætta að borða kjöt í janúar 2019 en tók einstaka svindl máltíðir eins og kom fram ofar. Var alveg hætt að smakka kjöt í mars 2019.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Óvisvítandi þá leiddi þetta mataræði til meiri umhverfisvitundar, þar sem kjötiðnaðurinn er gríðrlega stór þáttur í mengun á jörðinni.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Á þessum 3 árum þá hef ég borðað meira af grænmeti og léttist einnig í kjölfari. Var sem dæmi tæp 80 kíló í janúar 2019 og er núna um 63kg. Eina breytingin sem eg hef gert var þó bara að taka út kjötið sem óvart leiddi til þess að ég fór að sækja í meira grænmeti og hollari mat.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Það fer í rauninni eftir skapi og einstaka sinnum verði en ég vel mér þá verslun sem ég veit að er ódýrari. Þá td krónan eða bónus í staði fyrir td hagkaup. Ég borða og kaupi til dæmis mikið af pasta, osti, papriku, kartöflum, gúrku, gulrótum, próteinstykkjum, nocco, fisk, blómkáli, ab mjólk og múslí, ávöxtum, vegan hakki og baunum. Markaðssetning vörunnar skiptir mig ekki máli en ég reyni að velja íslenskt frekar en erlent þegar ég get.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég bý í reykjavík og á bíl þannig að það er í raun ekkert sem skertir aðgengi mitt að þeim mat sem ég vil kaupa og elda.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég er ekki mikið í því sjálf að eyða miklum tíma í að elda og fer þá frekar í að elda auðvelda rétti, eins og til dæmis allskonar pastarétti. Það koma tímabil þar sem mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Mjög erfið spurning og fer í raun alveg eftir því hvað ég er að borða. Finnst útlitið skipta minnstu máli þegar ég er að elda sjálf en hins vegar gríðarlega miklu máli þegar ég panta mat á veitingastað
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Mér finnst ferskar vörur auðvitað mest heillandi en fjárhagur háskólanema leyfir það því miður ekki alltaf.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei. Hef ekki fundið fyrir neinu sérstöku crave-i í eitthvað sem ég borðaði áður.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég bý ekki ein svo ég elda mér sjálf sjaldan. En það er heitur matur í kvöldmat heima hjá mér öll kvöld. Mér finnst gott vinnupláss þó mikilvægt þegar ég ætla að fara að elda mér eitthvað, það er meira fráhrindandi að hafa lítið pláss.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer ekki oft út að borða á veitingastaði en þeir skyndibitastaðir sem að ég borða helst á eru subway, falafel vefjur á mandi, grænmetisborgarar á búllunni eða hagavagninum og svo einstaka pizzu. Finnst ekki erfitt að finna mat sem hentar mínu mataræði.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Mér í raun finnst erfiðast að vera boðin í matarboð, þá sérstaklega stór matarboð. Finnst það virkilega óþægilegt að vera með sérþarfir og borða oftar en ekki bara meðlætið þegar ég er boðin í mat.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý með 3 fullorðnum aðillum. Ég er sú eina sem borðar ekki kjöt en það er aldrei neitt vesen þar sem við borðum meira af kjöti en fisk. Ef það er kjöt í matinn þá er nánast undantekningarlaust til afgangar sem ekki innihalda kjöt.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Fyrst þá upplifði ég gagnrýni frá sumum fjölskyldumeðlimum en það var fljótt að breytast. Vinir mínir hafa aldrei sýnt mér annað en stuðning.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei það skiptir mig ekki máli. Mamma til dæmis hefur alltaf haft wellington steik á jólunum en eftir að ég hætti að borða kjöt þá hefur hún bara gert sér deig fyrir mig með fyllingu, þá í raun aðlagaði mamma sig að mínu mataræði.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Fyrst þegar ég hætti að borða kjöt þá olli það mér kvíða að mæta í fjölskyldumatarboð, en ég hef bara borðað meðlætið. Þegar vinir mínir hafa boðið mér í mat þá passa þau að bjóða mér þegar þau ætla að elda eitthvað annað en kjöt.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei, hef ekki tekið eftir því.
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég fæ oft uppskriftir frá vinkonum mínum sem eru duglegri en ég að prófa sig áfram í eldamennsku. Annars stunda ég það oft að elda bara úr því sem er til heima.
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Sjálfbærni í mínum huga er að ganga ekki óhóflega á auðlindir náttúrunnar og minnka neyslu.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Lítið af unnum mat, mikið af grænmeti, ávöxtum og baunum.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Mér finnst bara að fólk eigi að bera virðingu fyrir öðru fólki óháð því sem það borðar.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já algjörlega.
Við hvað starfar þú?
Ég er heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogssvæðis.
Hver er menntun þín?
Er að klára Bs í líffræði við Háskóla Íslands í júní 2022.

Questionnaire
Record type