Folk Customs Response

01.01.2020 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1984)
Dating
period: 01.01.2020 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-661
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég skilgreini mataræði ekki sérstaklega en reyni að hugsa vel um heilsuna og borða fjölbreytt og lítið kjöt. Við erum í áskrift hjá Austurland Co-op og reynum að borða eitthvað af lífrænt ræktuðu grænmeti.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Kannski undanfarin tvö ár af einhverri alvöru. Ég hætti að drekka og fór að hugsa betur um heilsuna.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Tók heilsuna fastari tökum, hætti áfengisneyslu. Ég minnkaði kjötbeysluna líka vegna þess að ég er með bakflæði og fann mikil einkenni ef ég neytti kjöts óhóflega. Ég held mig við mataræðið vegna þess að mér líður betur, betri svefn, betri hægðir, betri húð og geð.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
meiri samfélagsleg meðvitund og áhrif frá vinum og fjölskyldu hafa fært matarvenjur fjölskyldunnar í þessa átt. Breytingin er smám saman að gerast.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nú eigum við alltaf til jurtamjólk en við kaupum ennþá kúamjólk og aðalrétturinn inniheldur oft ekki dýraprótein. Hugsunarhátturinn er því gjörólíkur því sem áður var.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Sjá fyrra svar.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla aðallega í Krónunni. Verðlag og uppruni skipta máli en ég reyni að kaupa staðgóðan og hollan mat öðru fremur. Uppröðun, markaðssetning og auglýsingar hafa auðvitað líka áhrif.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég eyði einhverjum tíma í að skoða uppskriftir og prófa nýtt. Mér finnst gott að borða mat en hversdagslega er þetta oft mikið Maud og barnið fær oft fkesr einfaldan mat.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Alltsaman! Léttur bragðgóður og sterkur matur, mikil og fersk brögð og góð áferð.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Fersk matvæli er oftast best en það skiptir líka máli hvernig þau eru unnin, sursað grænmeti finnst mér til dæmis æði. Ég hef ekki alltof miklar áhyggjur af viðbættum efnum þar sem svoleiðis er ekki stór hluti af mataræðinu.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda 3-4 sinnum í viku. Það þarf að vera pláss og áhöld.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Kannski einu sinni í mánuði á veitingastað. Er svo flex að það er ekkert mál.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Vei ekki

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
3 a heimili, eitt barn. Allir á svipuðu fæði.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Upplifi stuðning ng og það skiptir máli

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei ég hef ekki aðlagað sérstaklega fyrir utan áfengið.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Nei engar ráðstafanir

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Reddit.com

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Líf sem er meðvitað um þær auðlindir sem það byggir á og forðast ofnotkun.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Það sem tekur tillit til vistkerfisins og viðheldur heilsu neytandans Og dregur úr lyfjanotkun.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei. Er lítið fyrir áróður.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já

Við hvað starfar þú?
Listamaður og veitingamaður

Hver er menntun þín?
Meistarapróf í listum