Folk Customs Response

01.01.2021 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1967)
Dating
period: 01.01.2021 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-654
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða kannski 90 % vegan mat og þar fyrir utan smá af mjólkurvörum, aðallega ost og einstaka sinnum jógúrt. Einu sinni í mánuði fisk sem ég veiði sjálf og spari spari rækjur og humar. Ég elda mest frá grunni úr hráefnum en nota af og til oumph eða tilbúið dót til tilbreytingar. Samt bý ég líka til mitt gerfikjöt ef mig langar í svoleiðis, kannski gera steikur fyrir hátíðir og þ.h. Ég rækta talsvert af grænmeti, rótarávöxtum og kryddi og að auki nýti ég villtar jurtir talsvert á vaxartíma þeirra en safna þeim einnig og þurrka og frysti. Þetta eru kerfill, njóli, hvönn og fleira. Þá kaupi ég grænmeti af bónda í nágrenninu, og frysti það til vetrarins. Mér finnst gaman að elda og nýti mikið af austurlenskum, og suður amerískum kryddum. Kryddið gerir það að verkum að maður getur gert ótrúlega fjölbreytta rétti úr tiltölulega fáum hráefnum. Ég hugsa að 70% af því sem við borðum sé úr gulrótum, kartöflum, brokkoli, lauk, tómötum, kókosmjólk, baunum og byggi.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég hætti að borða kjöt fyrir ári, en hef alltaf borðað mikið af grænmeti og svoldið af fiski. Reyndar er ég í augnablikinu að prófa veganúar í fyrsta sinn, en það útheimtir mjög litlar breytingar á matarræði mínu. Sem krakki ólst ég upp við að það var hrásalat með nánast öllum mat og það lagði línurnar held ég. Börnin mín uppkomin ólust upp við mikið grænmetisfæði en líka kjöt og fisk en þau hafa bæði ákveðið að vera vegetarian og vegan.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Það er aðallega af heilsuástæðum og umhverfisástæðum. Þetta hefur aldrei verið nein sérstök ákvörðun fyrr en ég ákvað að hætta alfarið að borða kjöt og það er algjörlega af umhverfisástæðum. Mér finnst þetta gott matarræði og finnst ég alltaf vera að borða veislumat svo það er auðvelt að halda sig við það.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Sem krakki var lítið um grænmetisfæði en eins og áður sagði ólst ég upp við að borða hrátt grænmeti og mamma ræktaði gulrætur, kartöflur og rófur og ég geri það líka... og fleiri tegundir samt. Breytingin að sleppa kjöti og fara að elda rétti eingöngu úr grænmeti varð þegar ég var með vinkonu í sumardvöl sem kenndi mér að nota krydd og búa til góða grænmetisrétti. Það var algjör vendipunktur. Áður fannst mér að ég yrði alltaf að hafa oggólítið af kjöti eða fiski, annars væri þetta ekki matur eða þannig. Það má segja að læra að elda grænmetisrétti og nota krydd sé lykilatriðið í því að ég fór að sleppa kjöti og fiski. Eldri dóttir mín varð svo vegan fyrir 6 árum og síðan þá höfum við haldið allar stórhátíðir vegan. Árið 2020 var bjó hún svo hjá okkur svo við elduðum flest vegan svo þegar hún fór aftur þá vorum við bara búin að koma okkur upp rútínu að nota vegan lausnir í mat.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Fyrst þegar ég fór að elda og borða alveg vegan mat fannst mér mikilvægt að eiga oumph og gervikjöt til að grípa í, en núna er ég mikið að færast frá því að kaupa tilbúið og bý stundum til sjálf bæði veganosta og gerfikjöt. Ég hef líka tekið meðvitaða ákvörðun um að minnka að kaupa hráefni sem kemur langt að og kaupi íslenskt þegar ég get og úr nærumhverfinu þegar það er í boði. Áhersla á að nýta villtar plöntur kom fyrir 2 árum þegar ég fór að vinna matvælaverkefni með kerfil og það hefur leitt mig út í að nota í meira mæli allskonar plöntur sem alla jafnan eru ekki mikið étnar. Á sumrin moka ég allskonar jurtum í matinn.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Þetta hefur gerst á það löngum tíma að ég get ekki greint neinar breytingar sérstaklega. En áhuginn og hegðun mín við að gramsa í jurtum (illgresi mest) í nærumhverfinu eykst bara og ég er alltaf að mastera eitthvað nýtt þar.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég bý úti á landi þar sem er ein Krambúð með óheyrilega háu verði. Ég versla mest í Bónus, Krónunni og Costco. Svo skreppur maður í Krambúðina dýru þegar allt ferska grænmetið er uppurið og mann vantar eitthvað smálegt. Þetta er svona mest það sama sem ég kaupi en það er alltaf til mikið af þurrvöru og dósavörum, og frostvöru. Verðlag skiptir máli og ég kaupi ekki vörur frá fyrirtækjum fv. Monsanto núverandi Beyern af pólitískum ástæðum. Svo vel ég lífrænt þegar það er í boði og íslenskt ef það er í boði. Ég les allar umbúðaupplýsingar í þaula. Eflaust hefur uppröðun í búð einhver áhrif á mig en ég kem samt oftast með það sama heim. Ég er sérfræðingur í að hundsa auglýsingar og tek lítið eftir þeim.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er eiginlega í fyrra svari.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mikinn áhuga á mat og matargerð og það er mikilvægt í lífi mínu. Ég pæli mikið í næringarfræði og ólíku hráefni. Ég eyði kannski ekki miklum tíma i að hugsa um mat þannig séð, en ég er góður kokkur og elda úr ólíkindalegasta hráefni. Ég kíki oft á uppskriftir til að fá hugmyndir en á erfitt með að fara eftir þeim í einu og öllu. Í langflestum tilfellum elda ég bara eitthvað sem mér dettur í hug eftir skapi og lagerstöðu hráefna og einungis fáir réttir hafa nafn og eru borðaðir reglulega. Annars bara spilað af fingrum fram.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Mér finnst þetta allt skipta máli. Fjölbreytni í samsetningum og krydd skipta miklu máli. Þá finnst mér áferð skipta máli líka, t.d. ef maður er með eitthvað mjúkt eins og dahl þá þarf að vera eitthvað sem er hart undir tönn með til að vega upp á móti kássunni, þétt brauð eða ristaðar hnetur. Útlit er líka talsvert og mér finnst ferskt krydd ofan á og ristuð fræ og hnetur oft gera punktinn yfir i-ið.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Gæða matvæli eru hrá upprunaleg hráefni, baunir, bygg, hrísgjón, mjöl í bakstur, ferskt eða frosið ómeðhöndlað grænmeti. Engin aukaefni og ekki unnið. Vissulega nota ég samt unnar vörur, t.d. er soyasósa og næringarger í mörgum mat, kryddblöndur og grænmetiskraftur. Unnin matvæli eru svo með svona til tilbreytingar, vegan pulsur, oumph, soyjahakk og falafel.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda alla daga heima hjá mér. Ég er með mjög stórt og gott eldhús en hef alveg eldað í litlum og lítið búnum. Góðir hnífar, rifjárn, blender og eða matvinnsluvél eða töfrasproti og kaffikvörn eru kannski svona mest notað. Annars get ég eldað með pott, hníf og sleif ef svo ber undir.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Þar sem ég bý fer ég afar sjaldan út að borða. En í Rvk fer ég oft enda þá í helgarskreppiferð og nýti þá tækifærið að kaupa tilbúinn mat eða fara út að borða og spara tímann í oft erilsömum ferðum. Ég fer á Gló, Thai staði, Loving Hut, Vegan world piece, nings, Mandy. Já það er bara nokkuð auðvelt ef maður er vegetarian en aðeins meira mál ef maður er vegan.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Að það væri hægt að kaupa tilbúinn mat á fleiri stöðum, t.d. á landsbyggðinni þar sem úrvalið er mjög takmarkað og erfitt að ferðast og ætla að kaupa sér mat á veitngastöðum. Ef tilbúnar vörur væru betur merktar hvort þær væru vegan eða ekki myndi hjálpa mikið til. Áður en dóttir mín varð vegan þá hélt ég t.d. að sumt væri örugglega vegan eins og vín sem er búið til úr þrúgum, en það er ekki svo. Og svo annað sem maður heldur að sé örugglega ekki vegan eins og smjördeig er allt vegan. En þarna þarf að stauta sig í gegnum allar innihaldslýsingar sem er tímafrekt.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við búum bara tvö að staðaldri heima. Ég borða ekki kjöt og elda mest. Maðurinn minn borðar kjöt annarsstaðar en eldar líka kjötlaust eða vegan heima og allir eru sáttir. Þegar dæturnar eru heima er alltaf veganmatur. Það er bara mikil sátt um þetta alltsaman.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Veit ekki hvað segja skal. Það eru alltaf einhverjir sem eru með athugasemdir um eitthvað, en ég get alveg svarað þeim ef ég nenni og sleppi því ef ég nenni ekki. Það kemur fyrir að ég læt eitthvað fara í taugarnar á mér eins og þegar það er ýjað að því að maðurinn minn fái ekki að borða kjöt heima hjá sér og þá þurfi nú að stöffa hann upp af kjöt annarsstaðar. Eða athugasemd sem ég fékk í mötuneyti vinnustaðar míns nú rétt fyrir jól hvort ég leyfði mér ekki einu sinni að borða kjöt á jólunum. Svona algjört skilningsleysi á að þetta sé eitthvað sem maður vill en ekki einhver meinlæta uppátæki sem maður sé alltaf við það að springa á limminu.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Helda að þetta hafi komið fram áður. Heima eldum við vegan um hátíðir og höfum gert í næstum 10 ár áður en vegan barnið varð vegan var hún grænmetisæta.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
En ef maður fer eitthvað í veislu er þetta stundum svona ergilegt að það sé t.d. skinka í öllum heitum réttum og brauðtertum.. Að fara í veislur hefur samt breyst bara á sl. 2-3 árum og einnig þegar maður fer á ráðstefnur, þá er nú eiginlega alltaf eitthvað vegan í boði. Ég hef samt meira verið áhorfandi af þessu en endilega upplifað sjálf. Í veislum eru oftast kökur sem ég get étið þó þær séu ekki vegan en dóttirin hefur mörgum sinnum mætt í veislur þar sem ekkert hefur verið vegan.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei get ekki sagt það. En hef tekið eftir að það eru fleiri konur en karlar vegan.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég bara gúgla ef mig vantar upplýsingar eða innblástur, engar sérstakar vefsíður. Hef keypt nokkar sértækar bækur, s.s. um vegan ostagerð og seitangerð en annars er ég bara nokkuð vel upplýst.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að neyta eins lítils af öllu og mögulegt er. Að endurvinna það sem hægt er og skapa nýtt úr hráefni sem annars fer í rusl. Að rækta matvæli og nýta mat vel og lifa heilbrigðum lífstíl í sátt við náttúruna.. frekar en fólkið.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fjölbreytt grænkerafæði úr heilu og upprunalegu hráefni, helst lífrænt ræktað og úr nánasta umhverfi.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Já og nei, ég nenni ekkert sérstaklega að tala um matarræðið en kem því að þegar mér finnst það við hæfi að kjötframleiðsla sé afar þung á vogaskálum umhverfismála. Þar sem ég bý í bænda- og sjómannasamfélagi er það ekkert alltaf vinsælt og ég þarf að velja svoldið hvað ég tjái mig mikið þar sem ég verð líka að búa í samfélaginu. Ég kem þessum sömu sjónarmiðum samt skýrt til skila í starfi mínu sem kennari og hef sýnt nemendum kvikmyndir um þauleldi dýra og afleiðingar kjötframleiðslu fyrir umhverfið.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, held að það muni bara aukast þær áherslur sem ég er byrjuð með eins og að borða illgresi og úr nærumhverfinu eins og fjöruplöntur og þang og þara.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Ekkert sem mér dettur í hug.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei það var bara gaman að taka þátt og gangi þér vel.

Við hvað starfar þú?
Listgreinakennari, hönnuður og rek fyrirtæki.

Hver er menntun þín?
BA í myndlist, M.Art.Ed í listkennslu og MA í hönnun.