Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1977)
Dating
period: 01.01.2019 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-653
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
út af heilsu stráksins míns þá byrjuðum við að spá mikið í mat, hann er á mun strangara mataræði en við hin en við reynum að elda mat þannig að allir geti borðað hann þá er ekkert korn í matnum, engin mjólk og enginn sykur eða neitt sætt svo sem döðlur eða þannig. Þetta var mjög erfið breyting en seinna febrúar 2019 verð ég mjög veik og þarf mikið af sýklalyfjum sem fara með flóruna, sem lýsir sér þannig að ég fæ mikinn bjúg og mikla vanlíðan ef ég borða eitthvað sem á ekki við mig en almennt korn er algjör bannvara get borðað glútenlast haframjög í litlum skömmtum, chiafræ og þannig. Lítið af mjólkurvörum og ekki salgæti en t.d. hlaup og dót með mikið af efnum og þannig, get borða hreint súkkulaði í litlum skömtum t.d. Held að það sé engin skilgreining á þessu fæði þannig lagað skylt Ketó nema ávextir og allt grænmeti leyft jú og smá súkkulaði
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Síðan mars 2019
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
sjá fyrra svar
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
sjá fyrra svar
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
er farin að þola betur mjólkurvörur þannig að ég er farin að svindla meira þannig lagað fæ mér meir ost og stelst í is
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ef ég borða eitthvað sem á ekki við mig þá fæ ég mikinn bjúg og vanlíðan
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Krónan býður upp á ágætt úrval af lífrænum vörum og þeir eru ódýrari en Netto en fer samt í Netto til að kaupa hluti sem eru ekki til í Krónunni t.d. lífrænt örbylgjupopp og snakk, lífræn haframjólk. Kaupi lífrænt þegar ég get svo sem haframjöl, egg, haframjólk chiafræ og hampfræ, einnig íslenskt þegar ég get það er bæði betra á bragðið og minni efni þó það sé ekki lífrænt. Myndi kaupa meira lífrænt ef ég hefði efni á því en ég þyrfti sirka eitt núll fyrir aftan launin mín til að það yrði að veruleika
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er orðið miklu betra aðgengi en var googla mikið uppskriftir og renni yfir hráefni ef þetta hentar okkur þá er bara um að gera að prufa.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Fólki mitt verður frekar leitt á því að borða það sama og við erum 5 þannig að maður reynir að prufa nýja hluti til þess þau verið ekki leið á hlutunum, við maðurinn minn eldum 3-4 sinnum í viku til skiptis en eldum mikið og reynum að hafa afganga daginn eftir, honum finnst samt mun skemmtilegra að elda en mér og nennir allskonar sem ég nenni ekki eldar t.d. alltaf jólamatinn sem tekur BARA 2 daga að gera, en er t.d. búin að þróa sína eygin fyllingu. Hugsum í raun allt of mikið um mat þannig lagað
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Auðvitað þarf þetta allt að vera gott bragð, lykt útlit, samt summar kássur/gúllas að fá nein útlitsverðlaun en er mjög gott á bragðið, en það eru fyrst og fremst innihaldaefni sem skipta máli þa getur þú byrjað að spa í hinu.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Reyni að kaupa lítið unnar vörur, einnig þar sem við borðum kjöt reyni ég að spá í hvernig líf viðkomandi dýr hefur átt. Kaupum bæði lamb og folaldakjöt af bændum sem við þekkjum og borðum mest af þvi. Borða helst ekki svínakjöt, stelst reyndar stundum til að borða beikon en annars er það eitthvað sem ég myndi ekki velja mér bæði út af velferð dýrsins og bragði. Brúneggjamálið varð samt til þess að maður ber mun minna traust til eftirlitsstofnanna en áður
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
SÚRDEIGSBRAUÐ, sakna þess mikið, það er bara frábærlega gott á bragðið og í raun ekkert sem kemur í staðinn fyrir það, baka mitt eigið brauð úr glútenlausu haframjög og chiafræ og eitthvað þannig það er svona allt í lagi en það er alltaf barningur þannig lagað hvað á ég að borða er það er ekki elduð máltíð.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
eldum 3-4 sinnum í viku til skiptis hjónin, jurtarjómi, mjörlíki og kaldar sósur sem ekki innihalda mjólk eða korn þarf að vera til staðar í eldhúsinu og hrein matvara t.d. ekki smjörsprautað eða reykt eða eitthvað þannig
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Það er svo sem auðvelt að fá mat sem henntar mínu mataræði á dýrum stöðum þú getur alltaf fengið þér steik t.d. en margir réttir þarftu að spyrja nákvæmlega hvað er í þeim. Hollum stöfum hefur fækkað mikið eftir covid byrjaði en það er hægt ódýrari veitingastaðir þar sem hægt er að fá mat sem upfyllir mínar þarfir eru Culiacan, Saffran, Gló (samt ekki gott lengur), Serano og Wokon en þoli hrísgrjónanúðlurnar þar og þeir nota góð krydd og sósur annars verð ég venjulega veik af austurlenskum mat af öðrum stöðum. Local er líka staður sem væntnlega væri hægt að fá mat sem uppfyllti skilyrði en þar sem við erum venjulega að kaupa mat fyrir alla og erum með 3 stálpaða stráka sem hafa núll áhuga á sallati þá verða hinir staðirnir frekar fyrir valinu.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
get alltaf keypt mér hummus og gulrætur eða álíka en annars þarf maður bara að plana sig. það eru t.d. til tilbúnir réttir í bónus en flest allt er með glúteni/korni og mjólk, eina sem ég hef fundið er ungversk gúllassúpa. Strákurinn minn sem er óþolsmaður mikill það væri rosalega fínt að geta keypt tilbúinn mat sem er ekki dýr sérstaklega ef það er enginn heima til að elda en hann er álíka liðtækur í eldhúsinu eins og hundurinn og hefur ekki áhuga og nennu á að elda sjálfur
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
við erum 5 í heimili yngsti 17 ára, einn 20 og einn 24 og við hjónin. Eldum oftast sama matinn fyrir alla glúten/korn laust, mjólkur og sykurlaust. En t.d. þegar er spagettí þá eru útbúnir 2 réttir, fyrir mig og óþolsgaurinn 20 ára þá er súkíní pasta og salsasósa í réttinum en hinn rétturinn er með venjulegu spagettí rjóma og allskonar.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Það hefur engin verið leiðinlegur við mig í vinnuni t.d. en er oftast með það sama mitt skrítna brauð eða gulrætur og hummus, er komin með ógeð á eggjum. En venjulega er matur í vinnunni sem er mjög góður en ég bara þoli ekki. Sennielga er enginn að gagnrýna mig af því að þetta er innan gæsalappa ekkert val, ekki heldur einhver klikkaður kúr til að missa kíló eða þannig, ef ég ætla að fúnkera þá verð ég að borða svona. Allir hafa sýnt þessu skilning sérstaklega t.d. mamma og pabbi það er erfiðara að bjóða okkur i mat en mörgum öðrum, þau eru orðin mjög góð í að búa til sósu með engu hveiti (nota maismjöl) og engum mjólkurvörum nota jurarjóma í staðinn. Í eftirrétt eru yfirleitt líka keypt fesk bláber og jarðaber sem eru í boði ásamt t.d. Ísnum eða kökunni. Það væri erfiðara ef fólk tæki ekki tillit til manns en mér finnst umburðarlindi yfir allskonar hafa líka færst yfir á mat, ekki bara skilgreinigu á kyni eða kynhneigð, þannig að barátta fyrir allskonar hefur líka haft góða hliðarverkun fyrir aðra.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Þolum ekki reykt eða eitthvað þannig en við höfum yfirleitt kalkún, bara passa að hann sé ekki smjörsprautaður og þá getur þú bara haft þetta eins og þú villt. Það tekur tíma að þróa góða sósu sem er mjólkur og hveitilaus en þær eru ordnar fínar í dag
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Hef ekki lent í veseni allir sem bjóða okkur í mat vita af þessu, t.d. köku afmæli þá er ég oft búin að borða áður og strákurinn tekur með sér mat t.d. Wokon Annars spyr fólk bara, komum oft með okkar eigin sósu. Bara það t.d. að hafa ostinn sér en ekki í sallatinu skiptir öllu
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei en ég veit að þetta hefur verið erfitt fyrir strákinn og hann hefur borðað mat sem hann vissi að hann yrði veikur af, af því að honum fannst svo erfitt að vera öðruvísi en strákarnir en þetta er eitthvað að lagast með auknum aldri hjá honum
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Mákona mín er búin að lesa sig mikið til og hún hefur hjálpað okkur mikið, mér féllust hedur fyrst þegar þurfti að breyta svona miklu í mataræðinu. Einnig hefur Ásdís grasalæknir hjálpað okkur mikið. Svo googlar maður mikið
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Fyrir mér er fullkomin sjálfbærni torfbær og sjálfþurftarbúskapur en ég efa að það sé hægt ná því og nútíma lífstíl. Æskilegast væri að rækta sjálfur en ég er ekkert sérstaklega góð í því, fuglarnir átu öll jarðaberin mín, fékk reyndar góða hindberja uppskeru. En svona fyrir utan að ræka sjálfur þá væri ákveðn sjálfbærni að kaupa innlent, því minna þurfum við að treysta á aðra því lengri keðja því meira sem getur farið úrskeiðis og meiri mengun
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur í mínum huga er litið/ekkert unninn og helst lífrænn eða þar sem lítið er notað af efnum eða keyptu fóðri t.d. Íslenskir tómatar eða lambakjöt.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Er búin að tala við þá sem skipta máli annars nenni ég ekki veseni
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
já, svindla samt stundum og finn vel fyrir því
Við hvað starfar þú?
Sérræðingur á lífeyrissviði
Hver er menntun þín?
BS í viðskiptafræði

Questionnaire
Record type