Folk Customs Response

01.01.2012 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1979)
Dating
period: 01.01.2012 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-649
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég skilgreini mataræði mitt ekki á neitt sérstakan hátt. Ég reyni hins vegar að borða 95% grænkerafæði. Stundum fæ ég mér egg, ca 2 í mánuði og einstaka sinnum fisk, ca 2 í mánuði. Ef ég borða kjöt þá vel ég einungis íslenskt lambakjöt, hreina íslenska afurð sem er óunninn. Fyrir fjölskylduna kaupi ég einstaka sinnum kjúkling og pylsur en annars hreint lambakjöt. Aldrei svínakjöt, kalkún, eldislax eða erlent kjöt.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Þessi þróun byrjaði fyrir 10 árum síðan, ca 2012 þegar ég veiktist vegna álags sem fylgdi námi. Ég fann að ég þurfti að breyta mataræðinu en svo hafa siðferðislegar ástæður einnig leikið stórt hlutverk í vali mínu á mat fyrir mig og fjölskylduna. Hefur verið í stöðugri þróun þar sem ég bæti og breyti til.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hef alltaf verið viðkvæm í maga. Við fæðingu melti ég ekki brjóstamjólk og var gefin þurrmjólk (1979). Í æsku fann ég svo ekki mikið fyrir meltingaróþægindum en ég er alin upp á "venjulegu" íslensku heimili. Fékk reyndar aldrei sælgæti,gos, sykrað morgunkorn eða brauðálegg nema á afmælum eða jólum. Þegar ég var í háskólanámi á árunum 2007-2012 fór að bera meira á þessum einkennum. Ég tengdi það álagi. Með breyttu mataræði lagaðist meltingin en svo fléttuðust ýmsar siðferðislegar ástæður ennfremur inn í ákvörðun mína.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Breytingin gerðist hægt og rólega, ég hlustaði á líkamann.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já áherslurnar hafa breyst. Fyrst var ég fókuseruð á eigin heilsu en nú hugsa ég líka um umhverfismál og réttindi dýra. Ég borðaði lengi vel fisk en kaupi núna aðeins villtan lax eða fisk sem er veiddur á sjálfbæran hátt. Aldrei eldislax. Ég hef ekki keypt svínakjöt í mörg ár enda er aðbúnaður þeirra hörmulegur. Ég kaupi aldrei innflutt kjöt.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Líkamleg heilsa er betri ef ég passa mataræðið og áhugamálin snúast um umhverfisvernd m.a.