Folk Customs Response

01.01.2015 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1982)
Dating
period: 01.01.2015 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-645
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan. Reyni að borða sem mest af svokölluðu whole-foods plant based mataræði sem er skilgreint sem svo að borða plöntumiðað mataræði sem samanstendur af grænmeti, ávöxtum, kornmeti, hnetum og baunum og inniheldur ekki mikið unna matvöru. Ég er alltaf vegan, en ekki alltaf wfpb þó ég reyni að tileinka mér það mikið. Ég reyni að borða mat sem er ræktaður í nærumhverfinu ef ég get og lífrænt ræktaða einnig.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
7 ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég varð vegan af umhverfis- og dýraverndunar ástæðum og reyni að borða sem mest af óunni matvöru af heilsu ástæðum. Ég held mig við það vegna þess að það er ekki erfitt og er lítil fórn sem ég get fært fyrir umhverfið og dýrin. Líður meira að segja ekki eins og fórn lengur.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ekki alveg viss hvar ég heyrði um það fyrst. Breytingin átti sér stað í skrefum. Þegar ég var yngri var ég grænmetisæta í svona 3 ár. Seinna meir fann ég hvernig það togaði í mig aftur. Ég byrjaði svo á einhverju eins og meatless mondays og slíku og að auka almennt grænmetisfæði í mataræðinu mínu. Svo varð ég grænmetisæta og fann að breytingin yfir í vegan var svo lítil að ég varð vegan u.þ.b. 3 mánuðum eftir að ég varð grænmetisæta.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég lít ekki lengur á það sem neina fórn að sleppa dýraafurðum, ég hreinlega lít ekki á það sem mat lengur. Líkamlega líður mér mun betur, minni bjúgur og ég er næstum aldrei jafn slenaður af seddu eftir máltíðir eins og áður fyrr. Ég hef svo sem alltaf elskað grænmetismat en nú fæ ég craving í tofu, brokkolí, grænkál etc. þannig að mögulega hefur bragðskyn breyst eitthvað.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Dags daglega í Krónunni, Bónus, Hagkaup og Vegan búðinni. Ég versla þær vörur sem eru á innkaupalistanum, reyni að forðast impulse kaup. Verðlag skiptir þó auðvitað máli og uppruni að einhverju leiti. Þegar kemur að unninni matvöru þá skiptir máli að hafa greinargóðar upplýsingar á pakkanum (t.d. til að forðast óvegan mat og líka til að geta valið hollari kost ef um fleiri en einn er í boði).

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Gott, sérstaklega með tilkomu asísku markaðanna. Það er þó auðvitað alltaf dálítið leiðinlegt að sjá hversu takmarkað úrvalið er af grænmeti ræktuðu á Íslandi. Þegar keypt er mjög viðkvæm ferskvara (eins og t.d. aspas) sem þarf að flytja langar leiðir með flugi þá verður kolefnisfótsporið mun stærra en það þarf að vera. Það er einnig líka ömurlegt að það er varla hægt að fá íslenskt grænmeti sem er ekki pakkað í plast.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mikinn áhuga á mat. Mér finnst mjög gaman að elda, prufa nýjar uppskriftir og sérstaklega gaman að fara út fyrir uppskriftir: blanda saman fleirum en einni og gera hlutina dálítið eftir mínu eigin höfði.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Hann þarf að vera bragðmikill. Krydd þurfa að vera í réttum hlutföllum og oft einhver chili-hiti. Áferðin má ekki vera of einsleit og maturinn þarf að vera litríkur og fallegur á að horfa. Maturinn þarf að vera ferskur og helst smá bit í grænmetinu (þó það fari algjörlega eftir grænmeti, uppskrift og stemningu).

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferskur matur er alltaf betri en annar matur. En oft er gott að kaupa unna vöru eins og hakk eða einhverja sojabita og gera uppskriftir sem minna á kjötrétti sem maður naut áður (borgara, lasagna, osfrv.).

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei ég held barasta ekki. Það eru komnar svo margar góðar vörur sem minna kjöt og slíkt að það er alltaf hægt að gera frábærar vegan útgáfur af gömlum uppáhalds réttum. Það er kannski einna helst að það þurfi að þróa vegan ost meira til að geta gert góðar pítsur eða grillaðar samlokur, en þó hafa verið miklar framfarir þar undanfarin ár.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda flesta daga vikunnar heima hjá mér og þarf ekkert öðruvísi eldhús eða tól til að geta gert það. Það eina sem ég á sem er ekki til á öllum heimilum (en ætti að vera til á öllum heimilum) er tortillu pressa. En hún er ódýr og það fer lítið fyrir henni.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ekki svo oft. Það er auðvelt að fá góðan vegan mat á Íslandi í dag. Mér finnst frábært að fara á Jömm eða Junkyard þegar mig langar í borgara, Mandí þegar mig langar í hollari skyndibita en borgara og svo asíska staði (t.d. Dragon Dim Sum).

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það var skortur á framboði og skilning, en ekki lengur. Framboðið er mikið og skilningurinn er allur annar og miklu meiri en hann var áður. Það er ekkert í mínu daglega lífi sem er hindrun þegar kemur að mataræði mínu.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý einn.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Upplifi ekkert annað en stuðning og skilning. Það skiptir auðvitað máli.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Þær geta gert það. En það er hægt að gera svo hátíðlegan mat sem passar vel inní þessar hefðir. Jafnvel svo að allt meðlæti getur verið vegan og það eina sem vegan og ekki-vegan fólk borðar öðruvísi er aðalrétturinn. Svo eru komnar kjötlíkis vörur sem minna mjög á ýmsar hefðbundnar jólavörur (t.d. hangikjötslíki og slíkt)

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Hef yfirleitt upplifað góð viðhorf og hef alltaf boðist til að hjálpa til/gera eitthvað sjálfur til að létta undir. Þegar ég býð fólki í mat þá elda ég vegan og allir eru sáttir.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Ég hef ekki tekið eftir neinum viðhorfum gagnvart því að vera vegan karlmaður í mínu nærumhverfi. En ég hef séð á netinu allskyns áhugaverða eitraða karlmennsku þar sem það þykir eitthvað ókarlmannlegt að borða ekki kjöt t.d.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Í "Vegan Ísland" Facebook hópnum. Annars bara einfaldlega gúggla ég.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur er fjölbreyttur og plöntu-miðaður. Sama hvort fólk hættir að borða kjöt eða ekki þá hafa allir gott af því að borða meira af grænmeti, meira af ávöxtum, meira af baunum, meira af lítið unnu kornmeti og meira af hnetum.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Já mér finnst það, en þó ekki þannig að ég vilji vera að predika. Það er mjög mikilvægt, framtíðarinnar vegna, að fólk almennt minnki neyslu dýraafurða og ef ég get miðlað af einhverri þekkingu eða reynslu til þess að hjálpa fólki þá er það frábært. Dæmi um þetta hefur verið að tala við fólk um það að það getur fengið öll næringarefni út plöntu-miðuðu mataræði (en passa verður þó B12) og að það mataræði sé muuuun minna skaðlegt náttúrinni en hefðbundið kjötmiðað mataræði.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, svo lengi sem ég lifi.

Við hvað starfar þú?
Doktorsnemi og kennari.

Hver er menntun þín?
Meistaragráða.