Folk Customs Response

04.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1958)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-644
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða flest allan grænmetismat. Ég borða ekki dýr.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
2 til 3 ár

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Mér finnst umgengni við dýr á frekar lágu plani. Ég held að ég eigi ekki eftir að borða dýr aftur.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Mér var búið að blöskra framkoma okkur gagnvart dýrum í þónokkurn tíma. Ég hitti grænmetisætu sem var svo elskuleg að nenna að svara spurningum mínum og þar með var ég orðin grænmetisæta.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Mér líður betur, sef betur og er öll mun léttari á mér. Meira úthald. Borða minna af óhollum mat.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Líkamleglíðan ét betri og ég er ánægðari.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég get verslað í allflestum verslunum. Ég les mikið hvað stendur á pakkningum þegar ég er að skoða vörur sem ég hef ekki keypt áður.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er mjög gott aðgengi að hráefni þar sem ég bý

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég vil eyða eins litlum tíma og ég kemst uppmeð í eldamennsku. Ég er svo heppin að þar sem ég vinn er boðið uppá mjög flottan grænmetimat á góðu verði

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Mér finnst mjög mikilvægt að matur líti vel út að áferðin sé falleg því ég borða líka með augunum

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Vil helst ekki að vara sé ofmikið unnin og ég vil helst ekki of mikið af aukaefnum

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég sakna einskins

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda þegar ég á frí

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer ekki oft út að borða. Hef ekki lent í vandræðum fæ alltaf mat sem hentar mér

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Ég verð ekki vör við hindranir

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Bý ein með tveimur kisum

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Upplifi algjöran stuðning frá öllum

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei ekki þurf að aðlaga neitt

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Það er alltaf nóg fyrir mig að borða þarf ekki að gera ráðstafanir

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Bara tekið eftir tillitsemi í minn garð

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Netinu

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að eiga fyrir mat og reikningum

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Matur sem er ekki bransanum er hollur

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Ég er ekki að fræða neinn um neitt nema ég sé spurð

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei

Við hvað starfar þú?
Ritari á sjúkrahúsi

Hver er menntun þín?
Viðskiptafræðingur