Main information
Gender / Year of Submittee
Karl (1982)
Dating
period: 01.01.2015 - 01.01.2023
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-639
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða algerlega dýraafurðalaust alla daga. Hef gert það síðan áramótin 2015/2016 Ætli mataræðið myndi ekki flokkast undir grænkera/vegan hugmyndafræðina.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Síðan áramótin 2015/2016
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Það byrjaði vegna eigin heilsu. Ég gerði tilraunir með útilokun á ákveðnum hlutum eins og mjólkurvörum og þessháttar vegna mögulegs fæðuóþols og komst að því að ég er með óþol gagnvart ákveðnum fæðuflokkum sem eru gríðarlega algengir í stórum hluta af svona almennri "dagsdaglegri" földaframleiddri fæðu. Eftir að hafa gert þessar tilraunir með útilokanir í nokkra mánuði og komist að því að mér fannst ég ekki eiga í erfiðleikum með að sleppa þessum hlutum vegna þess hve miklu betur mér leið án þeirra var í raun ekki aftur snúið, sér í lagi eftir að ég fór að kynna mér aðbúnað og aðferðir við ræktun og slátrun dýra og áhrifin sem þetta hefur á umhverfið okkar, jörðina. Ástæðurnar fyrir því að ég held mig við mataræði án dýra er því þreföld, 1. Mín eigin heilsa(og það að betri eigin heilsa þýðir minna álag á heilbrigðiskerfið okkar) 2. Sameiginlegt umhverfi okkar allra og 3. Siðferðisleg vegna umbúnaðar og meðferðar á dýrum við ræktun þeirra.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Vegan eða mataræði og lífsstíll án dýraafurða hefur verið í umræðunni í mörg ár. Ég hef orðið var við þetta mestmegnis vegna heilsufarslegra ástæðna. Breytingin átti sér stað seinnipart árs 2015 og ég varð alfarið dýraafurðalaus um áramótin 2015/2016. Ætli það flokkist þá ekki sem smám saman.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Áherslur mínar og viðhorf gagnvart mataræðinu mínu hafa eingöngu orðið jákvæðari og ég hef styrkst í þeirri trú og vitneskju um að ég sé að gera "rétt" með þessari ákvörðun minni um að alfarið sneiða hjá dýraafurðum.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Mér finnst ég vera léttari á mér, bæði andlega og líkamlega og eiga auðveldara með að tækla hluti hvort sem þeir eru vegna vinnu eða "lífs".

Questionnaire
Record type