Innsigli

1925 - 1961
In preservation at
National Museum of Iceland
Innsigli eða signet, með fangamarkinu "KHB". Innsiglið hefur sexstrent skaft og hringlaga skjöld. Það er grennst ofan við skjöldinn en gbreikkar út með skaftinu. Endi skaftsins hefur rétthyrnda skreytingu á hverri hlið, bogadregið skreyti er ofan við þá rétthyrndu. Skaftið er 8 cm að lengd, breiðast er það 2,5 cm. Skjöldurinn er 2,4 cm að þvermáli. Hringur er greyptur í skjöldinn, meðfram brún hans. Stafirnir "KHB" eru greyptir í miðju skjaldarins og smáskreyti er í kringum þá. Fangamarkið stendur fyrir Karlmannahattabúðina, verslun Ragnhildar Runólfsdóttur (f. 1886, d. 1963). Ragnhildur fæddist í Ásgarði í Landbroti og var dóttir hjónanna Runólfs Árnasonar (f. 1853, d. 1897) og Vilborgar Ásgrímsdóttur (f. 1857, d. 1946). Fluttist fjölskyldan að Eintungnahálsi á Síðu 1889, en eftir andlát fjölskylduföðursins tvístraðist fjölskyldan. Ragnhildur var tökubarn í Blesahrauni á Síðu og síðar í Prestbakkakoti. Þá var hún vinnukona á Litlu-Heiði, svo Felli í Mýrdal og síðar Syðri-Brú í Grímsnesi. Árið 1910 fluttist hún til Reykjavíkur og lærði kjólasaum. Stundaði hún iðn sína þar um tíma, þar til 1920 þegar hún hélt til Kaupmannahafnar og lærði karlmannahattagerð hjá Tengesdal Rasmussen hattamakara. Eftir heimkomuna opnaði Ragnhildur verkstæði til hattaviðgerða á Vatnsstíg 3 sem hún rak næstu fjögur árin. Árið 1925 stofnaði Ragnhildur verslunina Karlmannahattabúðina. Búðin var til húsa í Hafnarstræti 18 frá upphafi, en árið 1955 flutti hún í Thomsenssund við Lækjartorg og var hún þar starfrækt allt til ársins 1961. Lengst af verslaði Ragnhildur með margs konar fatnað og fylgihluti. Aðallega var um karlmannsvörur að ræða, en eftir síðari heimsstyrjöldina jókst framboð af kvenfatnaði í versluninni. Síðustu árin voru smávörur til saumskapar áberandi. Ávallt hélt Ragnhildur þó áfram með hattaviðgerðir sínar.  Gefandi er Jón Örn Bjarnason (f. 1950). Ragnhildur var systir Vilborgar Runólfsdóttur (f. 1884, d. 1965), móðurömmu gefanda. Komst innsiglið þannig í hans hendur. (Upplýsingar fengnar frá gefanda).

Main information

Dating
1925 - 1961
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-65-3
Dimensions
8 x 2.5 cm Lengd: 8 Breidd: 2.5 cm
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Innsigli
Keyword:
Signet, óþ. notkun