Ragnhildur Runólfsdóttir

22.10.1886 - 6.3.1963
Roles
Verslunarkona
Place
Staður: Hafnarstræti 18, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Ragnhildur fæddist 22. október 1886 í Ásgarði í Landbroti, dóttir Runólfs Árnasonar (f. 1853, d. 1897) og Vilborgar Ásgrímsdóttur (f. 1857, d. 1946). Ragnhildur var yngst þeirra fjögurra systkina sem upp komust, en eldri voru Ásgrímur (f. 1882, d. 1901), Vilborg (f. 1884, d. 1965) og Sigríður (f. 1885, d. 1962). Árið 1889 fluttist Ragnhildur með fjölskyldunni að Eintungnahálsi á Síðu. Eftir andlát föður hennar tvístraðist fjölskyldan. Árin 1898-1899 var Ragnhildur á Blesahrauni (Efri-Mörk) á Síðu sem tökubarn, og árið eftir í Prestsbakkakoti, en fluttist síðan að Litlu-Heiði í Mýrdal árið 1900. Hún var vinnukona á Litlu-Heiði 1901-1904, svo að Felli í Mýrdal 1904-1907. Þá fluttist hún að Syðri-Brú í Grímsnesi þar sem systir hennar var til heimilis, og var vinnukona þar 1907-1910, en fluttist þá til Reykjavíkur. Næstu árin bjó hún oftast á Vesturgötu 18, á heimili systur sinnar og mágs, Vilborgar Runólfsdóttur og Árna Eiríkssonar (f. 1868, d. 1917), kaupmanns og leikara. Ragnhildur lærði kjólasaum og stundaði þá iðn um nokkurra ára skeið. Um 1920 sigldi hún til Kaupmannahafnar og lærði karlmannahattagerð hjá Tengesdal Rasmussen hattamakara. Eftir heimkomuna opnaði hún verkstæði á Vatnsstíg 3 og rak það í fjögur ár. Árið 1925 stofnaði hún verslunina Karlmannahattabúðina. Þá verslun rak hún til 1961. Verslunin var til húsa í Hafnarstræti 18 til 1954, en árið 1955 flutti hún í Thomsenssund við Lækjartorg og var þar upp frá því. (Upplýsingar um ævi Ragnhildar fengnar frá Jóni Erni Bjarnasyni (f. 1950), en Ragnhildur var systir Vilborgar móðurömmu hans).
Related objects