Folk Customs Response

01.01.2019 - 01.01.2023
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (Age not defined)
Dating
period: 01.01.2019 - 01.01.2023
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-632
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Mataræði mitt eins og stendur er Pescaterian. Það þýðir einfaldlega það að ég borða ekki kjöt fyrir utan fisk.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég gerðist grænmetisæta fyrir tæplega þremur og hálfu ári en á síðasta ári byrjaðir ég aftur að borða fisk.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Helsta ástæða þess að ég tók upp grænmetisætu mataræði var vegna skoðana minna á dýravelferð og ég tel þetta mataræði einnig mikilvægt í baráttu við loftlagsbreytingar. Það þýðir þó ekki að ég telji að allir þurfi að gerast grænmetisætur, heldur átta okkur á öðrum möguleikum og þannig hafa mun fleiri valmöguleika hvað mat varðar.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég hafði heyrt um þetta mataræði lengi en var alltaf mjög mikið á móti því en það hefur líklega verið vegna fáfræði af minni hálfu. Fjölskylda kærustu minnar var Vegan um tíma og þar lærði ég að matur þarf ekki að innihalda kjöt til að vera seðjandi og góður. Breytingin hjá mér gerðist mjög skyndilega en ég og kærasta mín fórum á ferðalag um austur Afríku árið 2019 og við vildum reyna að minnka hættuna á matareitrun eins og við gátum og töldum því rétt skref að borða ekki kjöt í þeirri ferð. Við héldum mataræðinu síðan áfram þegar við komum heim.