Folk Customs Response

01.01.2018 - 01.01.2023
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Dating
period: 01.01.2018 - 01.01.2023
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-630
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég skilgreini mataræðið mitt ekki á ákveðin hátt en hef áður verið grænmetisæta og vegan. Í dag er ég ekki að stressa mig á ákveðinni skilgreiningu en ég borða ekki kjöt og reyni að borða eins lítið af mjólkurvörum eins og ég get. Ég borða fisk og egg. Ég var alveg vegan í 2 ár en þegar ég missti eldmóðinn í því og var að ströggla við að borða nógu mikið ákvað ég að byrja að borða fisk og egg. Mér fannst alltaf mjög auðvelt að vera vegan en undir lokin var ég ekki að fá nógu mikið af næringu og í samfélaginu í dag finnst mér auðveldara að vera ekki 100 prósent vegan.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég hætti að borða kjöt á 18 ára afmælinu mínu og það eru 5 ár síðan. Síðan þá hef ég aldrei borðað kjöt og finnst mjög ólíklegt að ég muni einhverntíman borða kjöt aftur.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ástæðan fyrir því að ég hætti að borða kjöt eru út frá umhverfissjónarmiðum og svo þegar ég var hætt gat ég ekki ímyndað mér að borða aftur kjöt. Þegar ég áttaði mig á þeim miklu umhverfisáhrifum og stóra kolefnisspori sem fylgir því að borða kjöt ákvað ég að hætta að borða kjöt. Mér fannst kjöt aldrei sérstaklega gott svo þetta var auðveld breyting fyrir mig. Ég held mig við ákvörðunina vegna þess að mér líður betur með það að vita að það er lægra kolefnisspor af mataræðinu mínu og að ég lágmarka þá þjáningu sem mataræðið mitt veldur öðrum dýrum. Mér þykir mjög vænt um dýr og jörðina og langar að gera mitt besta til þess að lágmarka þjáningu og lágmarka kolefnissporið mitt.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég er ekki viss hvenær ég heyrði fyrst af þessu mataræði en ég man eftir að hafa séð heimildamyndina Cowspiracy sem opnaði augun mín fyrir umhverfisáhrifunum og dýraníðinni sem fylgir því að borða dýraafurðir. Ég byrjaði fyrst á að prófa plöntumjólk í staðinn fyrir kúamjólk og ákvað svo á 18 ára afmælinu mínu að hætta að borða kjöt og hef aldrei litið til baka.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Mér finnst ég ekki lengur sjá kjöt sem mat og upplifi ákveðið ógeð af því að sjá kjöt út í búð eða í ísskápnum heima. Þegar ég sé lambahrygg þá gæti þetta allt eins verið mannahryggur fyrir mér. Get ekki ímyndað mér að borða þetta.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Fyrst þegar ég var vegan upplifði ég mig miklu léttari, líkamlega. Ég missti bara örfá kíló en upplifiði eins og það hefði byrði verið lyft af mér. Ég var í íþróttum og fannst ég geta hoppað hærra og hlaupið lengur.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla mest í krónunni og í Bónus. Ég reyni að lágmarka kostnað eins og ég get því ég er háskólanemi og því ræður verð oft því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna. Ef það er til lífrænn eða vistænni kostur þá vel ég hann ef verðmunurinn er ekki mikill. Markaðssetning og auglýsingar hefur klárlega áhrif á mig og ef það er nýr drykkur eða nammi þá er ég líkleg til þess að prófa það. Ég er meðvituð um greenwashing en finn líka að það hefur áhrif á mig og vörur sem líta umhverfisvænni út þrátt fyrir að vera það ekki í raun eru líklegri til að enda í körfunni minni heldur en vörur sem líta ekki umhverfisvænar út. Ég reyni alltaf að velja íslenskar vörur og sérstaklega grænmeti og ávexti.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég bý í Reykjavík og aðgengi að mínu mataræði er mjög gott. Það er auðvelt að finna valkosti í staðinn fyrir kjöt.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef ekki mikinn áhuga á matargerð og eyði ekki miklum tíma í að hugsa um eða laga mat. Mér finnst samt gaman að borða góðan mat.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Það sem einkennir góðan mat er góð lykt og bragðgott. Áferð á mat er líka mikilvæg