Folk Customs Response

01.01.1990 - 01.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Dating
period: 01.01.1990 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-624
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég leitast við að borða hollan mat og hef nokkur atriði í huga: Upphaflega hreifst ég af Slow food hugmyndafræði um mataræði og hef hana á bak við eyrað alla daga. Ég aðhyllist þó enga öfga og er alltaf forvitin að prófa nýja hluti. Ég vinn t.d. með fólki sem er vegan og finnst sjálfsagt að prófa þeirra mat þó niðurstaðan sé sú að hann heillar mig ekki. Mitt framlag er að fækka kjöt- eða fiskmáltíðum og borða grænkerafæðí helst tvisvar í viku. Ég get þó ekki hugsað mér að sleppa eggjum og mjólkurvörum - heldur ekki þessa daga. Mín hugmyndafræði er annars þessi: 1) Hreinn matur - ekki unninn. Ég elda sjálf "from scratch" og forðast allt með mörgum innihaldsefnum. Ég hef mikið yndi af eldamennsku, sem skiptir mína fjölskyldu almennt miklu máli, þ.e. að njóta þess að elda úr góðum hráefnum og njóta þess að borða. 2) Staðbundinn matur. Aftur hef ég í huga að maturinn minn ferðist sem styst, bæði af umhverfisástæðum og einnig vil ég gjarnan vita hvaðan hann kemur og ekki spillir fyrir ef ég veit hver framleiddi matinn. Það eru ýmsar tegundir grænmetis sem ég sleppi algerlega ef ekki er hægt að fá það íslenskt. Ég rækta bæði grænmeti og kryddjurtir og nýti mér ríkulega við matseldina. 3) Bragðgóður matur. Með góðum hráefnum er alltaf hægt að gera góða hluti. Það er alls engin þörf á dýrum hráefnum, raunar finnst mér afskaplega gaman að elda úr því sem ég kalla auðmjúkt hráefni. Mér finnst firra að borða mat sem mér finnst ekki góður 4) Ég er ekki ósnortin af kenningum um hollustu mataræðis og á heildina litið tel ég mig borða hollt. Ég hef þó alltaf dálítið samviskubit yfir að borða ekki enn meira grænmeti en ég geri.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Dvöl á Ítalíu á níunda áratug síðustu aldar gerbreytti minni sýn á mat og það að njóta matar. Áratug síðar kynntist ég Slow food og hef haft þau (ofangreind) sjónarmið að leiðarljósi síðan.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Mikill og almennur áhugi á matseld, hollustu og gæðum matar. Svo er það líka nett nautnahyggja sem ræður för.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég heyrði um Slow food ca 1994 og veittist auðvelt að laga hugmyndafræðina að því sem ég var að gera svona almennt í matseldinni.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég er fædd 1962 - á tímabili hefðbundins heimilismatar. Móðir mín eldaði en á unglingsárum tók ég við og fór að elda reglulega, henni til mikillar gleði, enda hafði hún litla ánægju af matseldinni.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Mér finnst alltaf gaman að tala um mat en hef enga sérstaka þörf fyrir að telja fólk á mitt mataræði. Ég virði skoðanir annarra þó ég sé innilega ósammála bæði um hollustu og hugmyndafræði.