Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Dating
period: 01.01.2021 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-622
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða mjólkurlaust fæði af heilsufarsástæðum. Þá er átt við mat án alls sem inniheldur nokkuð mjólkurtengt, s.s. mysumjöl, smjör, mjólkurfitu og fleira sem stundum sést á umbúðum matvæla.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
1 ár
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hef lengi verið með miklar bólgur í líkamanum og er enn í því ferli að finna út af hvaða mat mér verður illt, en mjólkurvörur svöruðu allra best tilraunum mínum. Þetta er að læknisráði og hefur haft talsvert miklar heilsufarbreytingar í átt til batnaðar. Ekki er aðeins um að ræða viðkvæmni fyrir laktósa, svo virðist sem laktósafríar vörur hafai svipað slæm áhrif á mig.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég man ekki hvenær ég heyrði fyrst af svona fæði. Samkvæmt læknisráði fastaði ég algerlega í 4 daga, svo tók ég hægt og rólega inn fæðutegundir og skráði samviskusamlega í langan tíma. Það liggur fyrir að ég er viðkvæm fyrir einhverju fleiru, en við erum ekki búin að finna út úr því.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég get alveg sneitt hjá mjólkurvörum með því að biðja um vegan valkosti á veitingastöðum og í verslunum, en það kemur mér á óvart hversu lítinn skilning fólk hefur á því að það geti verið vont að neyta mjólkurvara og það virðist oft ekki skilja að smjör og ostur fellur undir þetta. Það kemur mér hins vegar á óvart hversu erfitt er að fá vegan valkosti á vetiingastöðum. Ég fór í ferð um Norðurland (Blönduós, Skagaströnd, Skagafjörð) í haust og endaði á að hafa haframjólk með mér á kaffihús, þar sem ekkert þeirra bauð upp á slíka kosti.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Eðlilega finn ég heilsufarsbreytingar, m.a. minni verki í líkamanum. Til að mynda minni verkjum í liðum og kviðarholi. Þær breytingar sem ég hef fundið fyrir félagslega eru helstar þær að veganistar reyna endalaust að fá mig yfir, eins og sértrúarsöfnuður hreinlega, en ég hef ekki hugsað mér að hætta að borða fisk, kjöt og egg. Allt það get ég fengið íslenskt og stóran hluta heimafengið. Ég hef verið í meðferð hjá h sem er að aðstoða og finnst það alveg merkilegt hvað hún finnur upp á því að fá mig til að borða mat sem er framleiddur í suður Ameríku, s.s. avocado og kínóa, en ég endaði á að segja henni að ég ætlaði að taka hana á orðinu og fá mér rófur og bygg. Sorrí með mig, en ég get hvorki hugsað mér að borða mat sem hefur farið heiminn á enda eða sem er búinn til í þeim tilgangi að líkjast öðrum mat.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla mest í Bónus og þá í Nettó. Svo versla ég beint frá bændum, þegar það býðst. Ég er vanaföst í innkaupaferðum og legg mig fram að kaupa ekki mikið af unnum mat. T.d. lítið af pakkaréttum, pasta, "matarlíki" (mat sem á að líta út og smakkast eins og einhver annar matur), sem og ég forðast að kaupa ísraelskan mat. Eins og aðrir sem þurfa að sneiða hjá vissum mat þá er ég sérfræðingur í innihaldslýsingum. Því miður er einn galli á þeim, en framleiðendum er leyfilegt að skrifa "krydd" á vörur, en ég er með ofnæmi fyurir rósmarín og get oft ekki áttað mig á því hvort það er í mat eða ekki. Enda oftast á að kaupa ekki vörur sem eru samsettar. Ég les ekki blöðdin, horfi ekki á línulegt sjónvarp og legg mig fram um að lesa ekki auglýsingar á netinu, þannig að ég er oft algerlega ómeðvituð um eitthvað sem "allir vita". Sem er frá mér séð kostur. Uppröðun í búðinni skiptir mig ekki miklu máli, ég versla meira eins og veiðimaður en blómatínslumanneskja.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Framboðið í matvörubúðinni í héraðinu er fáránlegt, þegar kemur að mínu mataræði. Ég get keypt 12 tegundir af jurtamjólk, en ekki eina af jurtasmjöri. Ég get keypt 68 tegundir af snakki, en ekki algengar tegundir fersks grænmetis. Hvað þá íslensks. En það er val verslunarkeðjunnar og ég virði það og versla annars staðar. Ferðast 100km til að versla í matinn.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Elda á hverjum degi, elska góðan mat, finnst gaman að prófa nýtt. Ver amk einum klukkutíma á dag í að elda.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Góður matur er ferslur, bragðmikill, seðjandi og fallegur. Alls ekki vanmeta fegurð mats. Ég til dæmis held að fæstir ætu hrútspunga ef þeir væru ekki formfallegir.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Lítið unninn, heimafenginn, heimaeldaður, ferskur og gjarnan íslenskur matur. Ég hef algjöra óbeit á gerfibragði í mat, t.d. gerfi jarðarberjabragði og melónubragði.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Já, osta. Þeir gera mat oft mun bragðbetri og fyllri.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Á hverjum degi. Ég þarf ekkert sérstakt, nema til að kæla eða hita mat.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ef ég fer út að borða, sem er ekki oft, þá vel ég eitthvað spennandi sem ég hef ekki smakkað áður. Vel yfirleitt staði sem bjóða upp á eitthvað ferskt og fer út á stöðum þar sem mínum þörfum er ekki sýndur skilningur.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Ef framleiðendur mundu hætta að troða mjólkurdufti í ótrúlegustu matværi þá væri veröldin góð. Hvers vegna þarf t.d. mjólkurduft í lakkrís, eða pylsur?
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum 2, bæði á sextugsaldri. Minn maður borðar bara venjulegan mat.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Upplifi stuðning alls staðar frá.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Þetta er góð spurning. Möndlugrautur er til dæmis nauðsynlegur, en má alveg vera vegan. Hangikjötið get ég borðað með melónum eða perum, í stað uppstúfs. Maður á ekki að mála sig inni í einhvejrum kreddum.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Flestir koma af fjöllum að taka á móti mér í veislum, sumir verða alveg miður sín. Í síðustu viku gat ég bara borðað brauð með sultu í veislu. En mér er sama og finnst fólk ekki eiga að vera að eltast við mínar þarfir sérstaklega.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
nei
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Á goolge.
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að geta gert tiltekna hluti áfram til eilífðar án þess að skemma umhverfið, nær og fjær.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur er ferskur, lítið unninn og etinn í passlega litlu magni.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Nei. Ég veit um skemmtilegri umræðuefni.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já.
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
nei
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
nei.
Við hvað starfar þú?
ferðaþjónustu
Hver er menntun þín?
MA í skapandi atvinnugrein

Questionnaire
Record type