Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Dating
period: 01.01.2012 - 01.01.2022
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-621
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Venjulegur heimilismatur í grunninn en samt glútenlaust, laktósafrítt. Mjög lítið rautt kjöt
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Yfir 10 ár
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Annars vegar vegna óþols en hins vegar vegna umhverfissjónarmiða (kjötlaust)
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Þar sem þetta er ekki sérstakt mataræði sem ber heiti eða yfirskrift þá hef ég ekki heyrt neitt þannig. Þetta koma smátt og smátt, nema þetta með kjötið það sá ég í grein í vísindatímariti um loftslagsmál og snarhætti.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já ég er bara orðin harðari á að hætta kjötáti
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Já, ég er betri í maganum.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Krónunni Verð skiptir máli, ég reyni að spara en líka að skoða hvort varan er Fair Trade, lífrænt ræktuð. Pakkningar úr öðru en plasti (biodegradable er betra en gamaldags plast) pappír Kaupi ekki vörur frá Ísrael. Ef vantar upplýsingar á vöru þá kaupi ég hana ekki. Stundum fæla auglýsingar frá... þoli ekki bull markaðssetningu eins og t.d. á vörum sem innihalda collagen (sem líkaminn getur ekki tekið upp) Eflaust hefur uppsetning áhrif á mig án þess að ég veiti því eftirtekt, stundum er eitthvað sett fremst í ávaxtadeild sem ég ætlaði ekki að kaupa en kaupi af því ég sé það. Reyni að kaupa vöru sem kemur úr nærsamfélaginu
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Góð
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ekki mikinn áhuga, borða til að lifa (lifi ekki til að borða) Matur og matargerð sem áhugamál finnst mér mjög neysluhyggjulegt og vestrænt ofneyslu-samfélagslegt... sem stystum tíma ca. 2 klst á dag er max. Ég hef samt gaman af að prófa nýtt - sulla gjarna saman einhverju frumlegu ef ég nenni. Ég rækta á sumrin eigin kryddjurtir og tómata (hef gert í nokkur ár), var með garð í gamla daga og smá ræktun 2-3 ár.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferksleiki er aðaðlatriði, ekki mikið steikt eða brasað. Bragð fái að njóta sín en líka ef er verið að nota krydd að blanda ekki öllu saman.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferkst. Borða helst ekki mikið unnin matvæli.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Já, kartöflur og brauð, sem mér fannst gott. T.d. baguette, snjóhvítt brauð, nýtt með brakandi skorpu. Mér fannst þetta gott. (Sakna örsjaldan rauða kjötsins)
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Næstum alla daga vikunnar. Ég kaupi inn líka ... ekkert sérstakt.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Sjaldan út að borða. Fer sjaldan á betri veitingastaði, stundum í mathöll (borða þó ekki pizzur eða hamborgarar)
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það er fátt . . .
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
2 í heimili, uppkomin börn koma einu sinni í viku. Eiginmaðurinn borðar unnin mat, bjúgu og fleira, hann borðar ekki kryddað svo það eru eldaðar variasjónir af matnum. Ég sér, hann sér.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Skiptir mig engu máli, ég ræði þetta ekki einu sinni við stórfjölskylduna eða vinnufélaga.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já, það er búinn til sérstakur "gervi-stúfur" (sem sé uppstúfur/jafningur með hangikjöti) úr laktósafrírri mjólk (eða haframjólk) og ekki notað smjör ... það finnur enginn muninn.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Læt sem ekkert sé, sleppi því sem ég vil sleppa. Smá vesen með brauðið stundum en þá borða ég bara álegg (án þess að vera með vesen)
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
nei
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Netið yggldrasill.is svo er síða fyrir glútenlaust...man ekki slóð, hun.is og svo er ég í áskrift hjá sharecare.com
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að flokka sorp þ.m.t. lífrænt , að borða úr nágrenni, að skila til baka eins og ég kom að. Fara með dósir og gler,
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fjölbreyttur matur, ferskur, ekki of mikið. (Gleymist að spyrja um vítamín og lýsi, se, sé bætiefni)
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Nei - ekki nema með kjötið sem er loftslagsmál
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Bara þetta með bætiefnin lýsi og vítamín ...
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Engir listar til að merkja við t.d. hvað er hollt, ég gleymdi alveg ávöxtum og grænmeti sem hollusut
Við hvað starfar þú?
kennari
Hver er menntun þín?
Háskólamenntun, framhaldsnám

Questionnaire
Record type