Main information
Gender / Year of Submittee
Óþekkt (Age not defined)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-613
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Borða fjölbreytta fæðu vikulega. Það er, kornvörur, mjólkurvörur, grænmeti og ávexti, kjöt og fisk.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Frá barnæsku.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Var alin upp að borða allt án fordóma.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Engin breyting hefur orðið og spurningarnar því ekki viðeigandi.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nei.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Sjá svör að ofan - engar breytingar hafa orðið.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Kaup eru gerð í kjörbúðum, bakaríi, á grænmetis- og ávaxtamarkaði, heilsuverndarverslunum. Verðlag skiptir máli, sem og hvar vörurnar eru búnar til (uppruni) og hversu langt þarf að sækja þær í verslun, auk upplýsinga á pökkunum (varðandi t.d. aukaefni, litarefni og óæskilegar olíur).
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Matur og matargerð er mér mikilvæg og áhugaverð. 4-5 kist fara í matargerð og neyta matar á dag, u.þ.b. Iðulega prófa ég nýjar uppskrifir og aðlaga eldri með nýjum hugmyndum.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
samsetning hráefnanna og leyfa hverju þeirra að njóta sín, ekki spurning um fjölda þeirra heldur að eiginleikar þeirra komi fram. Skynfærin öll skipta máli: sjón, lykt, brag, útlit og áferð.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferksleiki þeirra skiptir fyrst og fremst máli, og sem minnst af aukaefnum eða viðbættum efnum.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Elda á hverjum degi. Fjölbreytt úrval grænmetis verður að vera til staðar, hrísgrjón og pasta, m.a. Góðir hnífar og skurðbretti, ofn og eldavél.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Rekst ekki á neinar hindranir.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Erum tvö, hjón. Börnin eru flutt að heiman. Við förum eftir sama mataræði.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Finn ekki fyrir neinni gagnrýni.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já, matarhefðir skipta máli. Fer eftir þeim án vandkvæða.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Þegar veislur og matarboð eru haldin, spyr ég ávallt boðsgesti hvort þeir hafi einhverjar sérstakar þarfir eða hvort það sé eitthvað sem þeir borða ekki. Mér finnst augljóst að spyrja því margar hafa óþol fyrir t.d. mjólkurvörum eða viðhafast sérstakt mataræði. Sjálfsagt að koma til móts við það.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei, engar.
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Mismunandi uppskriftabækur og nýjar uppskriftir frá vinum og vandamönnum.
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að nýta afurðina sem best, og endurnota úrgang í moltu ef hægt er. Kaupa afurði sem næst búsetu og nota ekki bíl til verslunakaupa.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Að hann sé ferskur og sem minnst unnin. Uppruni hans frá vistbænu búi og matræddur með virðingu fyrir hverju hráefni.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Ekkert sérstaklega. Mataræði mitt hefur ávallt tíðkast og er ekkert nýtt.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, eftir því sem ég best get. Hef minnkað við kjötneyslu og reyni að neyta aðeins hráefnis frá vistvænum búum eða grænmetisbændum.
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Ekki sem ég man eftir.
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei. Bestu kveðjur
Við hvað starfar þú?
Fræðimennsku.
Hver er menntun þín?
Doktorspróf í listfræði.

Questionnaire
Record type