Folk Customs Response

06.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-610
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Morgunmatur: 2 (stundum 3) ristaðar brauðsneiðar (gróft brauð) með t.d osti, marmelaði, gúrkusneiðum. Uppáhellt kaffi, stöku sinnum ávaxtasafi. Hádegi: t.d epli, brauðsneið m. osti, tómat, gúrku Síðdegi: kaffi, kex stundum sætabrauð Kvöldmatur: Oft pönnusteiktur eða ofnbakaður fiskur (oftast ýsa, smálúða einstöku sinnum bleikja) kartöflur eða hrísgrjón og e.t.v gulrætur eða hrásalat eða annað grænmeti. Um helgar oftast kjöt, t.d kjúklingur eða stöku sinnum lambahryggur og alltaf grænmeti líka. Sunnudagar oft afgangar frá laugardegi. Borða mjög sjaldan unnar kjötvörur og lítið af söltuðum eða reyktum mat. Elda oftast frá grunni. Myndi bara skilgreina mitt mataræði sem frekar venjulegt.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Bara svipað heillengi.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla yfirleitt í Krónuverslun næst heimilinu, kaupi samt fisk í fiskbúð og fer stundum í kjötbúð líka

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Aðgengi að matarverslunum ágætt

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hugsa mis mikið um mat eða matargerð, frekar leiðinlegt að ákveða hvað á að vera í matinn daglega. En stundum gaman að elda eitthvað fínna.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskt hráefni skiptir mestu máli

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Kaupi frekar ferskar vörur, mjög sjaldan unnar kjötvörur. Skoða alveg viðbætt efni þegar ég kaupi unnar vörur.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Hef ekki breytt neinu neitt sérstaklega nema þá að í dag hef ég meiri efni á að kaupa betri mat en áður fyrr.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Elda yfirleitt á hverju kvöldi. Góðir pottar og pönnur og góðir hnífar eru mikilvægir hlutir

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer ekki mjög oft út að borða. Staðir t.d eins og Nauthóll, Jómfrúin eða Hamborgarafabrikkan.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Engar hindranir

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Tveir fullorðnir í heimili, borðum yfirleitt sama matinn

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Hef aldrei vitað að fólk borði misjafnlega eftir kyni eða að viðhorf til matar fari eftir því, nema að margir karlmenn borða e.t.v aðeins meira magn

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Leita stundum á netinu að uppskriftum, engar sérstakar netsíður

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fjölbreytni í fæðuvali, bæði kjöt, fiskur, grænmeti og kornvörur mikilvægt

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Finnst einkennilegt að könnunin geri ráð fyrir að maður hafi breytt mataræði sínu eitthvað mikið, hef borðað eins og ég geri árum saman. Mundi bara segja að ég reyni að borða fjölbreyttan hollan mat, með áherslu bæði á grænmeti og dýra afurðir. Með einstaka freistingum samt (súkkulaði, ís t.d.)

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Finnst undarlegt að það er nánast gengið út frá því að maður hafi gert miklar breytingar á mataræði sínu. Hef í raun ekki gert það nema að í dag fæst auðvitað margt sem ekki fékkst áður og þannig hægt að borða fjölbreyttari fæðu.

Við hvað starfar þú?
Eftirlaunaþegi, starfaði áður sem kennari

Hver er menntun þín?
BA próf