Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-608
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða ekki dýraafurðir, hvorki kjöt, fisk eða afleiddar afurðir eins og egg eða mjólkurafurðir. Þar með flokkast mataræði mitt sem vegan en ég skilgreini mig ekki endilega þannig - það er einfaldara fyrir fólk að skilja að ég borða ekki dýraafurðir.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég hef haldið mig við þetta mataræði frá því snemma í júní 2019.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Upphaflega voru það umhverfissjónarmið og kolefnisspor framleiðslu dýraafurða, þá heilsufarsástæður og svo dýravelferð. Nú hefur dæmið snúist við og ég get ekki hugsað mér að dýr séu alin eða veidd til þess eins að drepa þau til matar þegar ég hef aðgengi að fjölbreyttri annarri fæðu (plöntumiðaðri) og þarf ekki að drepa dýr til að lifa af. Umhverfis- og heilsufarssjónarmiðin koma svo fast á eftir dýravelferðarvinklinum.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Það eru nokkur ár síðan. Ég hafði lengi borðað lítið kjöt og fisk (meira flexi) en svo var þetta ákvörðun sem við hjónin tókum saman einn daginn og hentum okkur samdægurs inn í nýtt mataræði án dýraafurða.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nei, ekkert sem ég get sett hönd á.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Nei, engar breytingar sem ég merki sérstaklega.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla helst í stórmarkaði eins og Krónunni en reyni líka að fara reglulega í Veganbúðina til að styðja við reksturinn þeirra. Ég horfi í uppruna vara og reyni að taka tillit til kolefnisspor innkaupanna hverju sinni. Vel frekar lífrænt ef ég get - reyni frekar að kaupa minna en betra. Kaupi svo að segja bara íslenskt grænmeti og sleppi frekar að kaupa til að mynda paprikur þegar innlend framleiðsla er ekki í boði. Markaðssetning og auglýsingar skipta mig litlu og það sama gildir um uppröðun í búðinni.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Aðgengið er mjög gott.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef yfirhöfuð lítinn áhuga á mat og matargerð. Borða vegna þess að ég þarf að nærast, ekki út af því að mér þyki matur svo sérlega góður. Hugsa ekki mikið um matseld en er engu að síður orðin duglegri við það í seinni tíð - það er auðvelt að veganæsa flestar uppskriftir og held mig þar.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ég er hrifnari af minna unnum mat en nota þó talsvert af tilbúnum soja- eða baunaafurðum (s.s. hakk, birtar etc) sem grunn við matseld
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég átti í upphafi erfiðast með að segja skilið við osta og egg en ég sakna þeirra ekkert í dag. Mataræði snýst um venjur og hefðir. Við þekkjum ákveðin brögð og áferð á mat og eigum í sumum tilfellum erfitt með að venjast nýjungum (bragðið af ólífum vafðist til að mynda lengi fyrir mér því ég var orðin fullorðin þegar ég smakkaði þær fyrst).
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda 1x á dag (kvöldmat). Þarf engin sérstök tæki eða áhöld til að fara eftir mínu mataræði.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer ekki oft út að borða. Úrvalið á veitingastöðum er að aukast jafnt og þétt og frábært hveru margir staðir bjóða upp á afburðagóðan vegan mat. Það er þó enn of algengt að veitingastaðir séu ekki að sinna þessum hópi af mikilli alvöru og bjóði upp á allt að því samtíning á disk (eða baunabuff í hamborgarabrauði...)
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Helsu hindranirnar eru skoðanir annarra. Einkennilegt að finna hversu mörgum finnst þetta mataræði vera ógn við sína tilvist og finnst þetta jafnvel öfgar. Það vefst fyrir fólki að bjóða upp á mat án dýraafurða í veislum eða matarboðum og "tiktúru" stimpillinn vill loða við mann. Ég er svo heppin að á mínum vinnustað er mötuneyti þar sem það er alltaf boðið upp á vegan valkosti í hádeginu svo í það heila eru ekki margar hindranir í hversdeginum.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum tvö og 17 ára unglingur sem er í menntaskóla (heimavist). Allur matur sem er eldaður hér er án dýraafurða og unglingurinn fylgir því mataræði hér heima fyrir án vanræða. Hann borðar engu að síður dýraafurðir í skólanum eða annarsstaðar þar sem hann er.

Questionnaire
Record type