Folk Customs Response

04.01.2022
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-605
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég myndi kallast Vistkeri. Borða almennt ekkert kjöt nema fisk nema þegar ég var ólétt brá ég frá þeirri reglu. Vel frekar jurtsmjólkurmat en dýra.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Hef viðhaft þetta mataræði í um 6 ár. Með hléum

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Systir mín varð grænmetisæta 1996 þegar ég var 1 árs og hún 6 ára því ólst ég upp við mikinn grænmetismat þó þess tíma. Því hefur það verið mjög eðlilegt fyrir mér að borða ekki kjöt síðan ég var lítil. T.d var alltaf bæði hnetusteik og lambakjöt í boði á jólum. Ég hafði fundið eftir að ég fór að fullorðnast að flest kjöt fór illa í mig og vildi því prufa að taka kjötið út.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég hef smám saman farið að taka út fleiri dýraafurðir. Svo eftir stendur 3 tegundir fiska, ostur, smjör og rjómi. Auk þess að lesa ekki innihaldslýsingar á pakkavöru nákvæmlega með tilliti til dýraafurða annara en bókstaflega kjöts

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég geri meira ráð fyrir að fólk borði meira jurtatengt en fyrir áratug t.d. Finnst fáránlegt að heyra fólk segja t.d við börnin sín að það verði að borða smá kjöt ef það er í boði.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Minni magavandamál,finn mikinn mun ef ég hef borðað smá kjöt.Fæ nábít. Er orkumeiri ef ég borða hollari grænmetismat

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Verka oftast í krónunni. Hvað er hentugt að elda ræður miklu auk vana. Sniðgeng vörur frá Ísrael.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott aðgengi

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef fremur mikinn áhuga á matargerð og bakstri. Rækta eigin súr og kryddjurtir. Finnst gaman að gera grænmetis útgáfur af kjötréttum.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Gott bragð og heillandi lykt skipta mestu.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Pæli ekki svo mikið í hvort varan sé unninn dagsdaglega. Þykir gervikjöt frekar vont og vil ekki finna kjötkeim af matnum mínum. Þá gæti ég allt eins bara borðað kjöt.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei nema kannski nautasteik úr öðru hverju.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Elda flesta daga. Nota mikið töfrasprota og steypujárnspott

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer nokkuð reglulega út að borða. Suður og suðvesturasískir staðir verða gjarnan fyrir valinu. Enda oftast í boði mikið úrval bæði fyrir kjöt og grænmeti á slíkum stöðum. Sem hentar vel þar sem aðrir fjölskyldumeðlimir borða kjöt.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Erum 3 í heimili. Eitt 2 ára barn og önnur fullorðin. Þau borða bæði kjöt en heima eldum við venjulega grænmetismat. Stundum er sett kjötálegg á t.d pizzu öðru megin. Þau borða svo bara kjötmeti i leikskólanum og vinnu og í öðrum aðstæðum utan heimilis.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Nei flestum þykir það eðlilegt í dag og kannski enn frekar vegna þess að ég er ekki alfarið grænmetisæta.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Ég ólst upp við að það væri bæði í boði grænmetiskkostur og kjöt a hátíðum svo ég hef haldið í þær hefðir.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Stundum borða ég áður eða borða einfaldlega matinn sem í boði er. En mitt nánasta fólk er oftast með bæði í boði. Svo viðhorfið er yfirhöfuð jákvætt

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Já það þykir eðlilegra að konur eða kynseginfólk sé grænmisfolk en t.d karlar

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Netið aðallega á hinum og þessum síðum.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Sóa minna, nýta betur

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Vel uppbyggð máltíð næringarlega séð sem er jafnframt bragðgóð og veitir þannig ánægju

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei finnst að mataræði annara komi mér ekki við svo ég ræði það lítið við aðra.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Við hvað starfar þú?
Ég er aðstoðarkona í menntaskóla

Hver er menntun þín?
Þjóðfræðingur