Folk Customs Response

15.12.2021
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-1-603
Questions / Answers
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég skilgreini mig sem grænmetisætu sem borða ekki egg (kallað lacto-vegetarian á ensku). Ég reyni síðan að velja vegan kosti eins oft og hægt er en nota oft mjólkurvörur í eldamennsku þar sem sambýlismaður minn er ekki nálægt því að vera vegan og vill yfirleitt frekar mjólkurvörurnar en vegan valkostina. Ég borða líka alveg kökur og svoleiðis með eggjum í ef ég er t.d. í veislu en nota aldrei egg í eldamennsku sjálf.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég hef verið grænmetisæta í 6 ár, og hætti að borða egg fyrir u.þ.b. 4 árum.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Það var aðallega útaf dýrunum. Ég elska dýr og gat ekki lengur hugsað mér að borða kjöt þegar ég byrjaði að hugsa meira um hvað er á bak við framleiðsluna. Ég gat ekki lengur tekið þátt í þjáningu dýranna en ég átti erfitt með að stíga skrefið vegna þess að á þeim tíma var það „óvenjulegt“ og er erfiðara að vera grænmetisæta. Í dag finnst mér óhugsandi að ég hafi nokkurn tímann borðað dýr. Núna verður mér óglatt við tilhugsunina.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég hafði aldrei verið mikil kjöt- eða fiskiæta, þegar ég var lítil borðaði ég eiginlega bara kjúklingabringu og skinku. Ég borðaði aldrei lambakjöt, nautakjöt eða steikur og fannst það alltaf ógeðslegt. Mér fannst fiskur aldrei góður en píndi hann í mig vegna þess að hann átti vera svo hollur. Systir mömmu minnar hafði verið grænmetisæta í mörg ár, ég heyrði fyrst af þessu mataræði útfrá henni en þá var það svo óvenjulegt á þeim tíma að mér datt ekki einu sinni í hug að ég gæti verið grænmetisæta líka. Hún var eina manneskjan sem ég vissi um þegar ég var yngri sem var grænmetisæta. Í mörg ár vildi ég ekki borða kjöt og fisk í útlöndum, þá varð ég tímabundið grænmetisæta. Þarna var mér byrjað að finnast þetta vera rangt en var ekki búin að hugsa það alla leið. Svo fattaði ég hægt og rólega að ég gat alveg sleppt öllu kjöti og fisk en það var erfitt að taka skrefið alveg þegar maður er svona vanur því að það sé uppistaðan í mataræðinu sínu. Ég hafði verið að sjá myndbönd á facebook af kjötframleiðslu og kjötiðnaði en gat ekki horft á það án þess að líða hræðilega illa og tók þá ákvörðun um að það væri hræsni að halda áfram að borða kjöt þegar ég gat ekki horft á hvernig kjöt er gert. Einnig man ég eftir að hafa pantað kjúkling á veitingastað í Frakklandi af því það var ekkert grænmetis í boði á þessum veitingastað, en þegar ég fékk matinn í hendurnar þá gat ég ekki hugsað mér að borða hann. Eftir þessa Frakklandsferð tók ég fljótlega ákvörðun um að verða alveg grænmetisæta. Mér leið svo vel eftir að ég tók þessa ákvörðun og það var þungu fargi af mér létt. Ég hef ekki séð eftir því í eina sekúndu síðan þá. Ég vildi bara að ég hefði fattað að gera það miklu miklu fyrr.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já, ég hef farið nær því að verða vegan heldur ég var fyrst og hætti að borða egg að mestu leyti. Ég er alltaf að prufa nýja vegan rétti og matvörur og elska t.d. að fara í Vegan búðina og skoða úrvalið þar. Þegar ég uppgvötaði hvað er gert við kjúklinga og hænurnar í eggjaframleiðslu gat ekki ég haldið áfram að borða egg. Núna finnst mér egg vera mjög ólystug.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég er orðin miklu minna matvönd og eftir að ég varð grænmetisæta upplifði ég miklu meira frelsi í matargerð sem hljómar kannski kaldhæðnislega þar sem ég var að taka út heilan matarflokk. En þegar ég varð grænmetisæta byrjaði ég að prufa alls konar nýtt grænmeti og rétti sem ég hafði ekki vitað af áður og fannst það allt svo ótrúlega gómsætt. Áður en ég varð grænmetisæta fannst örugglega ýmsum ég vera „matvönd“ vegna þess að ég borðaði eiginlega ekkert kjöt eða fisk nema það væri matreitt á ákveðin hátt. Ég er á allt öðru mataræði núna en þegar ég var yngri og mér líður miklu betur, bæði á líkama og sál. Ég elska allt grænmeti og finnst svo gaman að prufa að gera nýja rétti eða prufa nýtt grænmeti. Samfélagslegt viðhorf og framboð á grænmetis/vegan mat hefur líka breyst svo hratt og mikið síðan ég varð grænmetisæta eða þetta er orðið allt annað líf. Núna er yfirleitt alltaf a.m.k einn vegan réttur á matseðlum á veitingastöðum og núna er lagt vinna og metnaður í vegan réttina. Þegar ég var nýorðin grænmetisæta þá fannst veitingastöðum bara nóg að vera með salat sem eina grænmetisréttinn þannig það var oft ekki spennandi fyrir mig að fara út að borða. Það sem hefur breyst mest er áhugi minn á dýravernd, þegar ég var yngri elskaði ég dýr mjög mikið en hugsaði kannski ekki mikið um hvað var að gerast í heiminum varðandi dýraníð og kjötframleiðslu. Eftir að ég varð grænmetisæta fór ég að lesa mér meira til um dýravernd og er núna mikill dýraverndunarsinni. Á seinustu árum hefur svo verið talað mikið um hvernig áhrif kjötiðnaðurinn er að hafa áhrif á umhverfið og ef ég væri ekki grænmetisæta útaf dýrunum hefði ég örugglega orðið það á endanum útaf umhverfisvernd. En fyrst og fremst tók þessa ákvörðun útfrá dýraverndunarsjónarmiðum.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla aðallega í Krónunni og Vegan búðinni. Stundum í Hagkaup og Bónus. Ég veit hvaða vörur mér finnst vera góðar og kaupi þær alltaf aftur og aftur. Ég reyni að hugsa um umhverfið þegar kemur að matvælakaupum og ef vörurnar eru merktar sem „grænar“ (þ.e. betri fyrir umhverfið á einhvern hátt) þá kaupi ég þær frekar. Ég var hætt að kaupa grænmeti í pakkningum áður en Covid byrjaði og tók alltaf með mér mína eigin grænmetispoka. Eftir að Covid byrjaði þá kaupi ég frekar í umbúðum til þess að minnka áhættuna á smiti. Ég ELSKA þegar vörur eru merktar á einfaldan hátt sem Vegan eða Vegetarian friendly, svo maður þarf þá ekki að lesa alla innihaldslýsinguna til þess að vera viss um að það sé í lagi fyrir mig. Krónan merkir t.d. vörur sem Vegan (man ekki hvort það sé merkt með litlu V hjá verðinu eða eitthvað svoleiðis) sem gerir innkaupin svo miklu auðveldari fyrir mann. Ef vara er merkt á þennan hátt er miklu líklegra að ég kaupi hana heldur en ef það er óljóst hvort hún sé vegan/vegetarian friendly eða ekki. Ég kaupi helst íslenskt ef það er í boði en annars horfi ég á hvort vörurnar séu merktar t.d. fairtrade eða með svansmerkinu. Ég kaupi t.d. mikið Gron balance vörurnar í Krónunni. Ef uppruni vöru og framleiðsluferli er skýrt þá er líklegra að ég kaupi þá vöru heldur en einhverja aðra, svo lengi sem að hún er ekki margfalt dýrari en sambærileg vara sem er ekki merkt sérstaklega.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott, það er mikið úrval og létt fyrir mig að kaupa í matinn. Þetta hefur breyst svakalega mikið á seinustu ca. 3 árum, áður fyrr var þetta erfiðara.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mikinn áhuga á matargerð og finnst gaman að elda góðan mat. Ég vil að hann sé hollur og góður, dýravænn og umhverfisvænn eins og hægt er. Einnig vil ég að hann sé gerður frá grunni eins og hægt er. Ég eyði í kringum 30 mín-1,5 klst á dag í að gera kvöldmat en það fer samt alveg eftir því hversu upptekin ég er þann daginn. Ég eyði minni tíma í t.d. hádegismat en þá borða ég yfirleitt eitthvað fljótlegt eins og afganga frá kvöldinu áður eða jógúrt með ávöxtum og múslí. Ég prófa oft nýjar uppskriftir og aðlaga oft uppskriftir þannig að þær henti mér betur. Ég hef breytt mörgum kjötuppskriftum sem ég borðaði áður en ég varð grænmetisæta og sett grænmæti eða baunir í staðinn fyrir kjöt.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Mér finnst að það þurfi að krydda grænmetismat almennilega og mér finnst mikilvægt að það sé góð áferð á matnum. Ég t.d. borðaði aldrei ákveðnar tegundir af kjöti vegna þess að mér fannst áferðin svo skrítin. Ég á erfitt með að borða Tófú útaf áferðinni. En mér finnst flest grænmeti hafa góða áferð.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Já, ég vil að vörurnar séu sem minnst unnar og með viðbættum efnum. Ég vil helst gera matinn minn frá grunni en það er oft ekki tími til þess að gera allt frá grunni þannig ég vel að hafa ákveðna hluti tilbúna, t.d. tortilla kökur, naan brauð og pizzasósu, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki tíma til að gera allt frá grunni. Ég reyni alltaf að velja vörur með sem minnstum sykri og salti í, t.d. kaupi ég bara niðursoðnar baunir sem eru ekki með neinu viðbættu salti eða sykri (Biona organics merkið í Krónunni t.d.).

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei, eiginlega ekki. Það eina sem ég sakna er að geta ekki keypt tilbúnar samlokur í matvöruverslunum, það er eiginlega aldrei til vegan/grænmetissamlokur. Þær eru yfirleitt alltaf búnar og ef þær eru til þá eru þær annað hvort með vegan kjöti, sem ég vil ekki borða, eða með eggi sem ég vil heldur ekki borða. Ég sakna þess líka að borða túnfisksalat en ég elskaði það áður en ég varð grænmetisæta. Ég er alltaf að leita að salati sem myndi virka í staðinn fyrir túnfisksalat.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda oftast daglega heima hjá mér. Grunnvörur sem mér finnst gott að eiga: salt og pipar, krydd, grænmetis- og sveppateningar. Tómatar, zuccini, sveppir, avocado, paprika. Kjúklingabaunir, svartar baunir, linsurbaunir og tómatar í dós. Heilhveitispagettí, grjón og vefjur. Ostur og vegan-majónes, ab-mjólk, sýrður rjómi, tómatsósa. Ef eitthvað af þessu er til get ég yfirleitt mallað mér eitthvað gómsætt. Ég nota töfrasprota og blandara mikið í matargerð. Annars skiptir ekkert öllu máli hversu mikið pláss er eða hvað áhöld ég er með.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei, ég myndi ekki segja að ég fari oft út að borða. Staðirnir sem ég panta oftast take-away á eru t.d. dragon dim sum, sali thai, american style, hraðlestin, dominos og spaðinn. Það getur verið erfitt ef ég vil breyta rétti á matseðlinum. T.d. eru margir veitingastaðir með vegan kjöt sem vegan réttina en mér finnst það ekki gott og vil ekki borða það. Þannig ég panta oft t.d. samloku en bið um mínus kjöt en vil halda ostinum. Það er oft sem það mistekst en ef maður biður um að sleppa kjötinu ákveða þeir oftast að maður vill heldur ekki ostinn. Ef ég fer út að borða þá prófa ég oft nýja staði en finnst t.d. Sumac og Punk vera með æðislegan mat.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það er kannski aðallega að kjötneysla er ennþá „default“ mataræðið þannig maður þarf alltaf að taka fram að maður sé grænmetisæta og ég þarf alltaf að spyrja sérstaklega hvort það verði ekki örugglega grænmetismatur í boði ef ég er t.d. að bara í matarboð eða veislur. Það er dálítið þreytandi að þurfa að gera það en er samt oftast eitthvað í boði fyrir mig.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý með sambýlismanni mínum og ketti. Sambýlismaður minn er mikil kjöt- og mjólkurvöruæta en honum finnst samt yfirleitt grænmetismaturinn sem ég elda vera góður. Hann þarf að borða öðruvísi mat en ég til þess að verða saddur þannig ég myndi örugglega borða öðruvísi ef ég væri bara að elda fyrir sjálfa mig (myndi t.d. nota minna mjólkurvörur og brauð, hrísgrjón og myndi borða meira salat og léttari mat). Ég myndi örugglega vera alveg vegan ef sambýlismaðurinn minn væri með mér í því en hann er mikil kjöt-, fisk og mjólkuræta. Við hittumst í miðjunni með mataræðið þar sem ég sleppi öllu kjöti og fisk en nota enn mjólkurvörur. Hann sér svo alveg um kjötmatvæli en ég kem ekki nálægt þeim. Ef hann vill fá sér kjöt þá gerir hann það en ég vil ekki elda það né kaupa.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ég hef aðallega uppfliða stuðning en það er alltaf einhverjir sem skilja þetta ekki. Þetta hefur reyndar breyst mikið á nokkrum árum og flestir farnir að sætta sig við að aðrir séu á þessu matarði. Ég hef reyndar oft lent í því að fólki finnist það þurfa að réttlæta kjötneyslu sína fyrir mér og kemst jafnvel í uppnám þegar maður byrjar að rökræða við það. Ég nenni varla lengur að taka þátt í þessari umræðu þannig ég reyni að sleppa því að tala um þetta ef ég get. Fólk fer í svo mikla vörn og hættir að hugsa rökrétt þegar kemur að þessum málum Það stuðar alveg suma að heyra að ég sé grænmetisæta en sem betur fer eru flestir sem ég umgengst opnir og jákvæðir fyrir þessu mataræði.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei, það skiptir mig ekki miklu máli. Ég reyni bara að gera vegan eða grænmetis hátíðarmat í staðinn fyrir kjötið sem er venjulega borðað. Ég elska t.d. sveppa wellington og góðar hnetusteikur og finnst það alveg koma í staðinn fyrir kjötið.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Já, ég þarf alltaf að athuga hvort það sé ekki alveg örugglega eitthvað í boði fyrir mig svo ég komi ekki sársvöng í matarboð þar sem ég get ekkert borðað. Þá vil ég frekar vera búin að borða á undan eða koma með minn eigin mat. En ég lendi eiginlega aldrei í því að það sé ekki eitthvað fyrir mig. Fólk er eiginlega alltaf yndislegt við mig en finn alveg stundum að fólk skilur þetta ekki alveg og finnst þetta óþarfa vesen. En það er mjög sjaldan, yfirleitt reynir fólk sitt besta við að búa til góðan mat fyrir mig. Mér þykir mjög vænt um þegar fólk reynir sitt besta að gera góðan grænmetismat fyrir mig og aðrar grænmetisætur. Mér fannst t.d. ótrúlega krúttlegt þegar ég var í hádegismat hjá Ömmu og afa og þau höfðu keypt vegan hamborgarabuff sérstaklega fyrir mig. Amma fékk sér meira að segja vegan hamborgara með mér sem mér fannst dásamlegt, en þau eru sko alls ekki vön því að borða þannig mat sjálf. Mér finnst oft leiðinlegt að þurfa að vera með vesen í kringum mataræði og stundum langar mig helst að sleppa matarboðum ef ég veit að það er mikið vesen fyrir gestgjafann að gera sérstakan mat fyrir mig.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Já, ég alveg tekið eftir því að það telst vera kvenlegt að vera grænmetisæta. Ef ég er t.d. að tala um einhvern vin minn sem er vegan þá spyrja mjög margir hvort hann eigi þá kærustu sem er vegan og sé bara að gera þetta útaf henni. Eins og karlmenn geti ekki tekið þess ákvörðun sjálfir.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég skoða mikið pinterest og fæ síðan líka uppskriftir frá vinum og vandamönnum sem eru líka vegan eða grænmetisætur. Það er auðvelt að finna uppskriftir á google eða pinterest með því að googla uppskrift eða hráefni og setja "vegan" eða "vegetarian" með. Hérna eru nokkrar vefsíður sem ég hef notað í gegnum árin: https://www.jamieoliver.com/recipes/category/special-diets/vegan/ https://www.jamieoliver.com/recipes/category/special-diets/vegetarian/ https://www.himneskt.is/uppskriftir/ http://www.veganistur.is/ https://grgs.is/ https://deliciouslyella.com/recipes/ https://ljufmeti.com/ https://minimalistbaker.com/

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að reyna að kaupa sem mest local, t.d. grænmeti og annað sem er búið til á Íslandi. Reyna að sóa eins litlum mat og hægt er og nýta allt sem maður kaupir. Reyna að kaupa umbúðalaust ef það hægt.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur er matur sem er gerður sem mest frá grunni og inniheldur eins mikið grænmeti og hægt er. Mikilvægt er líka að borða fjölbreytt svo maður fái sem mesta mismunandi næringu úr mataræðinu. Reyna að sleppa sykri eins og hægt er og passa sig að hafa ekki of mikið af salti eða unninni matvöru.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Já, ef fólk sýnir því áhuga er mjög spennt að hjálpa þeim og fræða það um mataræðið. Ég nenni yfirleitt ekki að þræta eða rífast við fólk um hvers vegna það er gott að vera grænmetisæta samt. Mér finnst það leiðinleg umræða og hefur ekkert upp á sig. Mér hefur fundist það bera mestan árangur að vera grænmetisæta en gera lítið mál úr því. Að vera ekkert að reyna að troða mínum skoðunum á aðra því þá fer fólk í vörn. Ef ég sýni þeim í staðinn fram á það hvað grænmetismatur getur verið góður og lítið mál að elda þá er líklegra að það beri árangur. Ég tala samt oft um dýravernd og kjötiðnaðinn og hvað hann er slæmur en tala þá um það út frá því sjónarmiði að mataræði getur verið fjölbreytt og jafnvel það að sleppa því að borða kjöt einu sinni í viku getur verið frábært skref að taka.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, ég mun aldrei borða kjöt eða fisk aftur.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei, engar athugasemdir.

Við hvað starfar þú?
Ég vinn í verslun.

Hver er menntun þín?
Ég er með BA-gráðu í hönnun.