Skatthol
1860 - 1870

In preservation at
Akureyri Museum
Brúnmálað skatthol
úr eik. Skattholið er í tveim hlutum, í neðri hluta eru þrjár stórar skúffur
og á hverri kringlótt skráarlauf úr kopar og tveir kringlóttir koparskildir
með áföstum griphringum. Í efri hlutanum er halllok sem lagt er niður
á útdrög og þá notað sem skrifborð. Neðan við halllokið og á milli útdraganna
er ein skúffa 7 sm djúp. Á henni er samskonar skráarlauf og griphringir
og á fyrrnefndum skúffum en á útdrögum eru koparhúnar. Þegar halllokið
er opnað blasa við sex skúffur, þrjár til hvorrar handar en á milli þeirra
er hurð á hjörum með skrá og koparlaufi og innan við hana er hólf og tvær
litlar skúffur. Á öllum skúffunum innan við halllokið eru litlir koparhúnar.
Neðst á skattholinu er utanáliggjandi sökkull 10 sm. breiður og 3 sm. þykkur.
Skattholið hefur verið hinn prýðilegasti gripur en er nú mjög af sér gengið
og þarfnast mikilla aðgerða. Það hefur oft verið málað þykkri málningu
sem hlaupið hefur í hnökra, slíka málningu þarf að fjarlægja. Skattholið
var fyrst í eigu Jóhanns Pálssonar Fornhaga og gæti verið frá því um 1860-1870.
Main information
Dating
1860 - 1870
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: 3364
Dimensions
110 x 560 x 100 cm
Lengd: 110 Breidd: 560 Hæð: 100 cm
Place
Staður: Fornhagi, 601-Akureyri, Hörgársveit, Hörgárdalur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Keywords
Keyword: Skatthol
Place of origin
65°43'46.9"N 18°21'3.7"W



