Bútur, skráð e. hlutv.

In preservation at
Reykjavík City Museum
Bútur af regnbogafána.
í byrjun ágúst 2022 var regnbogafáni Sjóminjasafnsins í Reykjavík skorinn niður þar sem honum var flaggað í tilefni Hinsegin daga sem stóðu 1. - 7. ágúst. Starfsfólk safnsins sá að það var búið að rífa fánann niður þegar það mætti til vinnu föstudaginn 5. ágúst og brugðust við með að setja strax upp annan regnbogafána. Þetta var einn af mörgum regnbogafánum sem voru skornir niður árið 2022 sem hefur verið tengt við bakslag í baráttu hinsegin fólks og aukna fordóma í samfélaginu. Ræman sem varð eftir af fánanum á Sjóminjasafninu er heimild um hvar baráttan var stödd árið 2022.
Borgarsögusafn hlaut Regnbogavottun Reykjavíkurborgar árið 2022. Markmið vottunarinnar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Main information
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2023-28-2
Place
Staður: Grandagarður 8, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Grandi, Ísland
Record type
Keywords
Place of origin
64°9'11.5"N 21°56'56.2"W
