Fáni

In preservation at
Reykjavík City Museum
Regnbogafáni.
Regnbogafáni sem var keyptur í Hinsegin kaupfélaginu sem Samtökin ’78 halda úti. Borgarsögusafn flaggar regnbogafánum á hverju ári í tengslum við Hinsegin daga í Reykjavík. Markmiðið er að auka sýnileika hinsegin samfélagsins á safninu og samfélaginu.
Árið 2023 var ákveðið að bæta við regnbogafánadögum á safninu og flagga bæði úti og inni á öllum stöðum safnsins eftirtalda daga:
17. maí – Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks
vikan eftir verslunarmannahelgi – Hinsegin dagar í Reykjavík
13.-20. nóvember - Vika vitundarvakningar um málefni trans fólks
Borgarsögusafn hlaut Regnbogavottun Reykjavíkurborgar árið 2022. Markmið vottunarinnar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Main information
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2023-28-1
Place
Staður: Grandagarður 8, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Grandi, Ísland
Record type
Keywords
Keyword: Fáni
Place of origin
64°9'11.5"N 21°56'56.2"W
