Upptökutæki Vaxspólutæki / Hreinsitæki

1900 - 1930
In preservation at
Skógar museum
Upptökutæki. Árið1877 gerði Edison tilraunir til að taka upp hljóð á vaxborinn hólk og spila það aftur. Honum tókst að fullkomna tækið. Hann notaði svipaðan hljóðnema og Bell, enda voru þeir báðir búnir að þróa frumgerð  af  kolkorna hljóðnema fyrir símtæki. Edison kallaði tækið Phonograph. (Hljóðritari).  Hann fékk einkaleyfi  24. desember 1877. Árið 1896 hefst framleiðsla á tækjum og vaxspóluhólkum. Árið1901 voru komnir betri hólkar með lengri upptökutíma. Tækin og spólurnar voru framleidd í fjöldamörg ár. Ríkisútvarpið notaði þessi tæki lengi vel eftir stofnun þess 1930.  Danska útvarpið sendi t.d. jólakveðjur á vaxhólkum  til Íslands  skömmu fyrir 1950. Tækin komu frá RUV. Afspilunartækinu var bjargað úr geymslum RUV 1922 þegar þær voru rýmdar en hreinsitækið var komið áður í geymslu Skógarsafns. Framleiðandi:  National Phonograph Company USA Riðstraumstæki: 110 -  220 volt Hollvinafélag um sögu útvarpstækni á Íslandi bjargaði mörgum tækjum úr geymslum RUV bæði í útvarpshúsinu í Efstaleiti 1 og Langbylgjustöðinni á Vatnsenda sem átti að verða safn. Þetta tæki er úr því safni. Heimild:   Sigurður Harðarson rafeindavirki

Main information

Title
Proper noun: Upptökutæki Vaxspólutæki / Hreinsitæki
Dating
1900 - 1930
Object-related numbers
Museumnumber a: SHR-12
Dimensions
45 x 45 x 110 cm 50 kg Lengd: 45 Breidd: 45 Hæð: 110 cm
Place
Staður: Útvarpsstöðin, Vatnsendahæð, Kópavogsbær, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Samgöngusafnið Undirskrá: Fjarskiptasafn Sigurðar Harðarsonar
Keywords