Brennimark, á húsdýrum

Brennimark grafið á það Kolviðarh.( e. Kolviðarhóll ). Skúli Helgason fann það af tilviljun í járnarusli (sorphaug) fyrir vestan húsin á Kolviðarhóli í Ölfusi. Brennimarkið er með skafti og lítt slitið og skemmt. Notað á tól og vagna sem oft voru lánaðir. Kolviðarhóll var um langt skeið helsti áningarstaður ferðafólks á leið yfir Hellisheiði. Þar bjuggu gestgjafar sem veittu gistingu og sáu um veitingar. Kolviðarhóll sem áningarstaður mátti lifa þrjú tímabil. Fram til aldamóta 1900 voru það klyfjahestarnir, svo kom annað tímabilið hestvagnaöldin og mátti sjá fjölmarga hestvagna á hlaði Kolviðarhóls. Upp úr 1920 koma bílar til sögunnar og var á fyrstu áratugum bílaaldar venja að komið væri við á „Hólnum“. Kolviðarhól var lokað árið 1952 og stórt og reisulegt hús eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar var rifið af Reykjavíkurborg árið 1970.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: BÁ-581
Dimensions
35 x 0 cm Lengd: 35 cm
Place
Staður: Kolviðarhóll, Ölfus
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Skúli Helgason: Saga Kolviðarhóls. (Selfoss, 1959).

Place of origin

64°3'1.2"N 21°24'5.3"W