Tóbaksdós

1860 - 1900
Neftóbaksdós, sporöskjulaga úr messingblöndu með silfurplatta á loki sem á stendur JÓN. Sett saman úr þremur einingum botn, hliðar og lok en lokið er með hjörum. Úr eigu afa gefenda, Jóns Eiríkssonar bónda á Stóra-Ármóti í Hraungerðishreppi frá 1860 til 1898. Það má ætla að neftóbaksbyttur/dósir/baukar hafi verið hið mesta þarfaþing. Ponta var líka til, þá var talað um að stúta sig eða snússa sig, þegar hellt var úr pontu upp í nef sér. Um tóbaksnotkun segir: „Sumir stútuðu sig helst úti í vindi. Flestir tóku af handarbaki. Úr dósum tóku flestir milli fingra sér og stungu í nefið. Einstaka miklir tóbaksmenn ráku nefið niður í dósina og sugu fast.“ Nú er úti nauð og þá nú er duggan komin. Nú er tóbak nóg að fá nú skal fylla kvominn.

Main information

Dating
1860 - 1900
Object-related numbers
Museumnumber a: BÁ-3002
Dimensions
6.2 x 4.8 x 1.4 cm Lengd: 6.2 Breidd: 4.8 Hæð: 1.4 cm
Place
Staður: Stóra-Ármót, 801-Selfossi, Flóahreppur
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Tóbaksdós

Place of origin

63°59'9.0"N 20°55'53.1"W