Klippimynd
1982 - 1983

In preservation at
Reykjavík City Museum
Nemendavinna úr Framhaldsdeild handlista við KHÍ árið 1982-1983 og eftir að námi lauk. Umsjónarmaður námsins var Fríður Ólafsdóttir, dósent.
Þórleif Drífa var kennsluráðgjafi á vegum Menntamálaráðuneytisins á árunum 1981-1990. Eftir að hún lauk námi við Framhaldsdeildina 1983 kynnti hún ýmsar nýjar aðferðir fyrir textílkennara í gegnum námskeið á haustþingum kennara víða um land.
a) Fixativ sprautuaðferð.
Efni: Bómull.
Tækni: Fixativ sprautuaðferð. Vélsaumur.
Fixativsprautun með nokkrum litum. Munstrið er byggt upp með láréttum línum og ferningum. Vatt er sett undir myndina til að ná dýpt og vattstunguáferð. Saumavélin er notuð til að skerpa línur og form. Saumað er með beinu spori einu sinni eða tvisvar í línurnar til að fá misjafnlega sterkar / grófar línur. Hér er saumavélin notuð til að þjálfa færni nemenda á vélina og í eigin myndgerð. Aðferðin varð geysilega vinsæl meðal nemenda og kennara því hún bauð upp á mikla möguleika í skapandi verkefnagerð. Vekjum athygli á að það er bómullarvatt í myndinni, en í dag er eingöngu notað vatt úr gerviefni. Fóðrið er úr þunnri bómullargrisju. Stærð: 34 x 34 sm.
Fixativ er sprautuaðferð þar sem taulit er úðað á efni í gegnum munnsprautu. Mjög einföld og góð skreytiaðferð sem varð vinsæl í skólum. Litunaraðferðirnar marmorering og klessuaðferð voru einnig notaðar í grunnskólum en urðu ekki jafn vinsælar og fixativ aðferðin. Dæmi um verkefni sem urðu til með þessum litunaraðferðum: Púðar, töskur, pennaveski, símahulstur, nálapúðar, myndir og fleira. Þórleif Drífa kynntist aðferðunum í Framhaldsdeild handlista við KHÍ árið 1982-1983. Finnskur lektor, Maja Leena Seppålå kom frá Kennaraháskólanum í Helsinki og kenndi nýjustu aðferðir í vélútsaumi (útsaumur með saumavél).
b) Fixativ sprautuaðferð.
Efni: Bómull. Gervi.
Tækni: Fixativ sprautuaðferð. Vélsaumur.
Fixativ sprautun með nokkrum litum. Munstrið er klippimunstur byggt á mjúkum línum sem ganga þvert yfir myndina. Sjá lið e). Vatt er sett undir myndina til að ná dýpt og vattstunguáferð. Saumavélin er notuð til að skerpa línur og form. Saumað er með beinu spori og þéttu sikk sakk spori einu sinni eða oftar í línurnar til að fá misjafnlega sterkar / grófar línur. Vélin er einnig notuð til að teikna nýjar línur. Aðferðin þjálfar færni nemenda á saumavélina og í eigin myndgerð. Í þessari mynd er vattið úr gerviefni og fóðrið úr bómullarflóneli. Vattið nær ekki undir allan myndflötinn. Stærð: 34 x 28 sm.
c) Klessuaðferð með litum.
Efni: Bómull.
Tækni: Klessuaðferð. Vélsaumur.
Klessuaðferð á textíl. Speglun. Liturinn settur á annan helming efnisins. Efnið brotið saman þannig að liturinn smitast á hinn helminginn og munstrið speglast. Unnið með saumavél í munstrið. Þessi aðferð var notuð í hin ýmsu verkefni.
Litunaraðferðirnar fixativ, marmorering og klessuaðferð voru mikið notaðar í grunnskólum en fixativ aðferðin var þó vinsæust. Dæmi um verkefni sem urðu til með þessum litunaraðferðum: Púðar, töskur, pennaveski, símahulstur, nálapúðar, myndir og fleira. Þórleif Drífa kynntist aðferðunum í Framhaldsdeild handlista við KHÍ árið 1982-1983. Finnskur lektor, Maja Leena Seppålå kom frá Kennaraháskólanum í Helsinki og kenndi nýjustu aðferðir í vélútsaumi (útsaumur með saumavél).
d) Marmorering.
Efni: Pappír.
Tækni: Marmorering. Litur.
Marmorering á pappír. Þrjár myndir. Aðferðin var notuð í grunnskólum sem ein af mörgum litunaraðferðum. Uppistaðan í litabaðinu er terpentína og olíulitur. Litablandan gaf frá sér sterka lykt sem var óþægileg og hentaði illa börnum.
e) Klippimunstur.
Efni: Pappír.
Tækni: Klippimunstur.
Klippimunstur. Tvær síður. Dæmi um einfalda munsturgerð hvernig hægt er að vinna með munstur.
Þórleif Drífa var kennsluráðgjafi á vegum Menntamálaráðuneytisins á árunum 1981-1990. Eftir að hún lauk námi við Framhaldsdeildina 1983 kynnti hún ýmsar nýjar aðferðir fyrir textílkennara í gegnum námskeið á haustþingum kennara víða um land.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Attributed
Donor: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Dating
1982 - 1983
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-49-18
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords











