Ísbjörn

16.07.2020
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1961)
Dating
Day sent: 16.07.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-2-26
Place
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Questions / Answers
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei

Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Bara sögur af landkomu ísbjarnar í Grímsey og svo í fréttum að landkomu bjarna unanfarin ár.

Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Heimskautaísinn bráðnar og birni skortir fæðu og þá fara þeir af stað í leit og vegna langsundsgetu enda þeir hér.

Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Oftast eru þeir orðinir svo illa haldnir næringarlega séð að ekki er annað hægt en að drepa þá, en auðvitað væri gott ef hægt væri að bjarga þeim, held bara að það sé ekki hægt.

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei, hef ekki heyrt neitt um það.

En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Já, hef heyrt að þeir séu stórhættulegir og drepi fólk.

Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Sorg, aðallega þar sem þeirra heimkynni eru að hverfa og að þegar þeir koma hingað þarf iðulega að drepa þá. Það er samt alltaf pínu spennandi að fylgjast með þegar ísbjörn kemur, hvar er hann (og) hvað gerist!

Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Ég heyrði af komu ísbjarnarins til Grímseyjar og að hann var stoppaður upp og er á Ólafsfirði. Svo 2008 kom björn á Skaga sem var skotinn, eins og þeir sem ég hef heyrt um, en veit ekki hvað var gert við hræin.

Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Ég veit um ísbjörninn í Pálshúsi á Ólafsfirði sem var drepinn í Grímsey og var stoppaður upp.

Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Það sem mér var kennt og á við um aðra birni líka var að standa kjurr og látast vera ekki lifandi.

Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei, ekki svo ég muni, annars las ég bók fyrir syni mína sem heitir Auðunn og ísbjörninn, en það er svo langt síðan að ég man lítið eftir söguþræðinum og búin að láta ömmubörnin fá bókina.

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Bjarnagil í Fljótum en þekki ekki frásögn af þessu örnefni.

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Því miður er kofinn tómur hér hjá mér.

Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Þekki ekkert.

Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Á heimilinu er til bókin Hvítabirnir á Íslandi, en ég hef ekki gefið mér tíma til að kíkja í hana.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ísbjörn
Keyword:
Ísbjarnarkoma
Keyword:
Ísbjarnarkoma