Jóladúkur, útsaumsprufa

In preservation at
Reykjavík City Museum
Nemendavinna úr Klébergsskóla Kjalarnesi árið 1995. a) Jóladúkur. Efni: Bómull. Tækni: Útsaumur. Nemendavinna úr Klébergsskóla Kjalarnesi árið 1995. Hvítur útsaumaður jóladúkur saumaður af Sigurborgu dóttur Jónínu þegar hún var 11 ára. Sigurborg mátti ráða miklu um dúkinn. Hún vildi sauma jóladúk og skoðaði munsturbækur. Hún valdi munstur í hornin og vildi láta það nægja en kennarinn hvatti hana til að sauma einnig munstur í miðjuna. Sigurborg var aldrei sátt við miðjumunstrið. b)Útsaumsprufa. Efni: Bómull. Tækni: Útsaumur. Nemendavinna úr Klébergsskóla Kjalarnesi skólaárið 1985-1986. Lítil, hvít útsaumsprufa. Birnir sonur Jónínu saumaði prufuna í 10 ára bekk. Útsaumsspor talin ofan frá: Þrefalt þræðispor með ídrætti og tvöfalt þræðispor með ídrætti. Krókspor, tvær línur saumaðar hvor yfir aðra. Stök greinaspor (Y spor) tvær línur, krókspor, tvær línur saumaðar hvor yfir aðra og neðst er skásaumað lykkjuspor. Fangamarkið BKEsaumað með stórum krosssaumssporum neðst á prufuna og ein lína með litlum krosssaumssporum saumuð undir stafina. Mislöng tunguspor (kappmelluspor) eru saumuð í kantinn utan um prufuna og efnið rakið upp að tungusporinu. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Main information

Title
Proper noun: Jóladúkur, útsaumsprufa
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-40-2
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Jóladúkur
Keyword:
Skólahandavinna