Ísbjarnarkoma

16.07.2020
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1955)
Dating
Day sent: 16.07.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-2-10
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Questions / Answers
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei.

Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Bara í fréttunum.

Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Verða viðskila við hópinn. Leita að æti.

Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Skjóta þá, éta og stoppa síðan upp. Hef aldei étið ísbjarnarkeét . Viss um það líka, að þú, sem lest og ferð yfir hefur ekki heldur gert það?? Láttu mig vita, ef þú lendir í þannig hagstæðri kviðfylli að gera mér viðvart og ég mæti óétinn með öllu-:) Ekki hlusta á kjaftæði um kvikasilfursmengun i kjetinu?? Þú drepst hvort sem er og ekki verra að þurfa ekki að láta kryfja sig þar sem menn myndu þá vita um ástæðu dauða þíns-:) Sparar í heilbrgiðiskerfinu mikið við það-:)

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei, alls ekki.

En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Eðlilegt að þeir drepi allt kvikt sem er, þar sem þeir eru svangir. Mannakjét þykir þeim vera afbragð hið bezta, þar sem það er svoooooo mjúkt og meirt.

Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Verð skíthræddur um að verða étinn, þótt sé bara tæp 70 kíló, og margir aðrir Íslendingar mýkri undir tönn.

Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Nei, en bara heyrt um að þeir séu skotnir. Sums staðar skotið í þá svæfingarlyfi til að koma þeim til heimkynna sinna.

Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Já, í safninu á Dalvík. Þar hef ég klappað bangsa.

Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Verða ekki allt of vænn að vallarsýn, sem annar hver kjaftur á Íslandi er, til þess að eiga auðveldara með að hlaupa undan þeim og flýja.

Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei.myndi ekki vilja reyna að vingast við hann og klappa eins og á Dalvíkinni Manst yrði étinn með húð - ekki hári - þar sem ég er gersamlega staðgreiddur og ekki er neitt hár á hausnum á mér-:( Er tveggja kónga kall þar með.

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Nei, enda orðinn malbiksbarn fyrir allt of mörgum árum síðan-:(

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Nei, þarna fell ég gersamlega á prófinu, og kann ekkert svar við þesu frá ykkur. Hef reyndar heyrt jú, að ekki skuli reyna að drepa ísbjössana að fyrra bragði nema í vörn, og þá er líka átt með vörn fyrir aðra en sjálfa sig.

Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Nei, því miður engan bjössabrandara-:(

Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.

Á ekkert tengt ísbjörnum eða man eftir listaverkum með þeim. Bara myndum af þeim úr blöðum, þegar þeir voru drepnir, sem þykir jú vera fréttnæmt.

Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei, ekki neitt sem minnir á, Ekki einu sinni bók um þá eða kver.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ísbjarnarkoma
Keyword:
Ísbjörn
Keyword:
Ísbjarnarkoma