Ísbjarnarkoma

16.07.2020
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Karl (1956)
Dating
Day sent: 16.07.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-2-9
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Questions / Answers
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Ég þekki enga sem hafa orðið varir við ísbjörn. Hinsvegar fór ég til Kulusuk um aldamótin. Þar hafði ísbjörn drepið konu nokkrum dögum áður. Ástæðan var talin vera sú að hún var með vasaljós.

Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Sennilega oftast í útvarpsfréttum að sést hafi til ísbjarnar einhversstaðar fyrir norðan.

Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Þeir hrekjast á ísjaka eða lent í útistöðum við aðra birni.

Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Skjóta þá.

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Ég hef heyrt að svangur ísbjörn sé manninum hættulegur. Ég hef heyrt að saddur ísbjörn forðist menn.

En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Ég veit að þeir geta drepið fé en veit ekki hvort að slíkt hafi gerst hér.

Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Ég yrði smeykur ef ég væri í nágrenni við ísbjörn.

Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Ég man eftir að skipverjar á Vestfjörðum hengdu ísbjörn. Einn var skotinn á Skagaströnd að mig minnir. Annar á Grímsey.

Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Á flugvellinum í Kulusuk sá ég uppstoppaðan ísbjörn. Ég kann ekki sögu hans.

Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Ég veit að það má ekki hlaupa burt. Ísbjörninn tekur það sem áskorun. Hann hleypur miklu hraðar en manneskja. Eitt ráð er að halda höndum hátt á loft. Ísbirnir meta að það sé hæð manneskjunnar og þeir vita að sá sem er stærri sigrar í átökum. Eins er ráð að syngja. Söngrödd fólks hljómar líkt gráti í húnum.

Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei, hef ekki heyrt um slíkt.

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Bjarnastaðir, Húnaflói.

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Ég hef ekki heyrt neinar svona sögur. Ég veit ekkert um bjarnyl.

Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Man ekki eftir neinu slíku.

Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.

Ég hef séð gerviísbjörn sem skraut á Laugaveginum.

Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei, á ekkert slíkt.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Ísbjarnarkoma
Keyword:
Ísbjarnarkoma
Keyword:
Ísbjörn