Main information
Gender / Year of Submittee
Karl (1977)
Dating
Day sent: 16.07.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-2-7
Place
Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður
Questions / Answers
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Já, það sást til ísbjarnar á Hrauni á Skaga (Skagafirði) fyrir u.þ.b. 6-7 árum. Dóttir hjónnanna á bænum sá dýrið þegar hún var að athuga með lambfé á bænum. Hún hljóp til bæjar og sagði frá dýrinu. Viðeigandi ráðstafanir voru svo gerðar og dýrið fellt, minnir mig.
Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Já, frétti af þessari ísbjarnarkomu á Hrauni í gegn um Facebook. Líst svipað og í fyrra svari.
Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Vegna þess að ísjakar brotna frá landi og dýrin lenda á hrakningi, býst ég við. Nei - það hefur svosem alltaf verið svoleiðis í aldanna rás.
Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Drepa þá.
Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei, ekki heyrt um það sérstaklega. En get ímyndað mér að ísbirnir forðist fólk frekar en hitt, ef þeir eru ekki sérstaklega svangir.
En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Hef heyrt að soltnir ísbirnir ráðist á nánast hvað sem er.
Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Frekar hlutlaus tilfinning - en ef þeir væru nærri mér stæði mér ekki á sama - því ísbirnir sem koma til Íslands eru iðulega soltnir og illa til reika og þess vegna líklegra að þeir ráðist á það sem á vegi þeirra verður.
Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Lesið mér til um það - og sá umræður um drápið á birninum sem kom á land á Hrauni á Skaga. Það dýr var skotið af vönum veiðimanni. Skrokkurinn var gefinn á náttúruminjasafnið á Sauðárkróki, ef mig minnir rétt.
Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Einn uppstoppaður ísbjörn í Varmahlíðarskóla í Skagafirði. Var drepinn í Fljótum í Skagafirði milli 1980 og 1990 minnir mig.
Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Nei, get ekki sagt það.
Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei, en rámar í einhverja þjóðsögu þar um. Man hana samt ekki.
Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Húnavatnssýslur, Húnavatn, Bjarnarhöfn...
Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Hef svosem lesið ýmsar þjóðsögur og frásagnir tengdar ísbjörnum en man nú ekki neina þeirra neitt sérlega.
Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Viltu ís Björn?
Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Þekki það ekki.
Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei.

Questionnaire
Record type
Keywords