Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1993)
Dating
Day sent: 16.07.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-2-4
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Questions / Answers
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei.
Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Nei.
Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Ég þekki ekki ástæðurnar að baki, en ég hef heyrt að ísbirnir ferðist mjög langt, en dettur helst í hug að þeir leiti sunnar í leit að bráð. Kannski er það bara tilviljun að þeir lendi hér, en þeir eru samt mjög ratvísir og klárir svo kannski er það frekar viljandi heldur en óvart.
Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Það væri mjög gott ef það væri hægt að svæfa dýrið og flytja það, en ég skil samt vel ef það er tæknilega ómögulegt, þó að ég viti það reyndar ekki. Það væri óásættanlegt að það sé ekki gert vegna þess að það væri of dýrt, en þetta er mjög stór dýr, sem er kannski erfitt að svæfa og halda sofandi í flutningi.
Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei, hef heyrt einmitt öfugt, þegar ég silgdi um Svalbarða 2019 og fór í land í ferðir með leiðsögumönnum var mér sagt að ísbirnir séu mjög forvitnir, og sækjast í fólk ef eitthvað er. Þeir væru þá ekki endilega á veiðum, en myndu allavega vilja leika sér að fólki. En var líka sagt að þeir éti það sem þeir geta, og myndu ráðast á fólk ef það kæmi of nálægt. Það var á okkar ábyrgð að skapa aðstæður þannig að engin hætta skapist, þ.e. hætta fyrir ísbirnina, því leiðsögumennirnir kæmust ekki hjá því að skjóta björn ef við færum óvart of nálægt þeim. Þeir skjóta reyndar fyrst upp blysi, en helsta vörnin er að vakta svæðin sem við erum á í allar áttir, fylgjast með sporum og forða okkur ef einhver grunur er um að birnir séu á ferð. Það getur samt verið að þeir forðist bæi, en okkur var í raun sagt að bæir eru hættulegri en óbyggðir því maður sér ekki eins langt, það var mér reyndar sagt í yfirgefnum bæ þar sem birnir hefðu getað komið sér fyrir, en ekkert fólk bjó. Maður átti allavega helst ekki að fara neitt einn í bænum (Longyearbyen), og mér skilst að fólk sé vopnað og stöðugt að fylgjast með hvort það sé björn í bænum. En vonandi vita birnirnir að það sé hættulegt fyrir þá að fara í bæi.
En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Já, þeir drepa fólk og önnur dýr. Ég heyrði sögur þegar ég var á Svalbarða um að ísbirnir séu nýlega farnir að veiða hreindýr, sem þeir annað hvort gerðu ekki áður eða þá að það sást ekki til þeirra gera það. Þeir veiða annars seli, og eru best undir það búnir að veiða í vatni. Þeir eru klunnalegri á landi, en samt mjög hraðir og sterkir. En svo drepa þeir fólk, já, eins og ég sagði að ofan, í leik og forvitni, en svo éta þeir það sem þeir geta.
Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Ég upplifði mjög fjölbreyttar tilfinningar við að komast í kynni við ísbirni, sem gerðist heil þrjú skipti á tveggja vikna siglingu um Svalbarða. Áður en fyrstu kynnin áttu sér stað sáum við spor í snjó, sem leiðsögumaðurinn elti, við hópurinn á eftir honum. Hún hlítur að hafa vitað að björninn var ekki að fela sig bak við næsta hól, en tilfinningin var sú að hann gæti verið hvar sem er. Við sáum hvernig sporin hurfu í sjóinn, og að tveir húnar væru með í för. Leiðsögumennirnir mátu það nógu öruggt að halda leiðangrinum áfram, þangað til þeir sáust í fjarska, en reyndar alls ekki langt í burtu, og voru á leiðinni í áttina að okkur. Við höfðum æft hvernig eigi að flýta sér í gúmmíbátana sem fara svo með okkur í öruggt skjól á seglskipinu, og þarna urðum við að láta reyna á þá æfingu. Við náðum öll að forða okkur og sáum hvernig mamman og tveir húnar þefuðu af sporunum okkar á ströndinni. Ég hafði aldrei upplifað að finnast ég ekki eiga heima einhvernstaðar í náttúru, að ég sé aðskotahlutur sem setji annað dýr í hættu, vegna þess að það gæti gert mér mein. Við lærðum líka að það má ekki týna blóm, ekki stíga á mosa, ekki lyfta steini og ekki skilja eftir spor í drullu. Á sama hátt vildi maður ekki raska lífi ísbjarnanna, þetta var þeirra svæði ekki okkar. En það var ótrúlega spennandi að finna fyrir návist þeirra, og þar áður mögulegri návist þeirra. Við gátum svo fylgst lengi með þeim af skipinu. Leiðsögumennirnir höfðu komist að því að það væri hvalreki utar í firðinum, og birnirnir vor á leiðinni þangað. Það var auðvelt að manngera þá svo, húnarnir léku sér að söl og hoppuðu af steinum. Mamman lá letilega í smá fjarlægt og horfði á. Hún gekk alltaf aðeins á undan og stoppaði og leit óþolinmóð við þegar húnarnir fylgdu ekki eftir heldur léku sér bara, og mér fannst ég sjá hvað hún var að hugsa. En þetta eru auðvitað mjög flóknar og framandi verur sem fúnkera á allt annan hátt en ég get ímyndað mér. Við sáum birni við tvö önnur tækifæri, eitt svangt karldýr á skeri sem skipið silgdi alveg upp að, en við sáum svo eftir því að trufla hann. Það var mjög skemmtilega óvænt að það var refur sem fylgdi honum, sem er víst algengt að þeir geri til að narta í afgangs selshræ, en þessi var sérstaklega frakkur og ekkert að passa sig á birninum. Björninn hafði nýlega veitt sel sem við sáum glitta í, og refurinn var fljótur að grípa tækifærið og fá sér þegar við á skipinu fældum burt björninn. Þriðja skiptið var á mjög langri göngu meðfram nesi úr einum firði í annan, meðfram sjónum svo það var alltaf hægt að sækja okkur ef eitthvað kæmi upp á. Björninn sást úr mikilli fjarlægt, á leið burt frá okkur, en samt í dal þar sem sæist vel í okkur og hann væri ekki lengi að snúa við og kíkja á okkur. Svo göngunni lauk yst á nesinu þar sem skipið sótti okkur. Spenna, já, ótti, JÁ, hrifning já, af stærð, fegurð, lipurð, persónuleika, kænsku, styrk og þoli.
Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Engin sérstök saga kemur upp í hugann, bara það að íbirnir séu drepnir þegar þeir koma til Íslands, og að það kemur fyrir að þeir verði drepnir annars staðar þar sem þeir finnast ef þeir koma of nálægt bæjum. Ég sé bara fyrir mér að ísbirnir séu skotnir, en væntanlega voru þeir drepnir með spjótum áður.
Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Ég á frænda, bróðir pabba, sem hefur mikið unnið á Grænlandi, og heima hjá honum í stofunni á gólfinu er ísbjarnar feldur með áföstum haus og klóm og öllu. Feldurinn hefur verið þar lengi, svo ég man eftir því að hafa velt þessu fyrir mér sem barn, til dæmis hvað það kemur á óvart hvað feldurinn er ekki það mjúkur, það stingur smá að sita á honum, hárin eru smá eins og örþunnar gler nálar. Klærnar eru svartar, og ekki það stórar, en það er væntanlega búið að pússa þær niður svo maður meiði sig ekki á þeim. Pabbi á líka ísbjarnarhauskúpu, sem er á hillu í forstofunni, og er alltaf getraun í matarboðum þegar það kemur einhver nýr í heimsókn. Sumir giska (á) ljón. Svo hugsa ég líka um sýningu Bryndísar Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson um uppstoppaða ísbirni, ég hef séð fyrirlestur frá þeim um sýninguna en man ekki alveg út á hvað hún gekk, eitthvað um að koma uppstoppuðum ísbjörnum aftur saman sem er búið að dreifa um allan heim. Ég geri ráð fyrir því að uppstoppaðir ísbirnir séu veiddir, að einhver hafi leitað hann uppi og selt svo fyrir stórfé. En svo hef ég aðrar tilfinningar til veiða innfæddra á norðurslóðum á ísbjörnum, ef ísbjörn ógnar heimkynnum einhvers, og þau neyðast til þess að skjóta hann til að verja sig, og nota svo leifarnar í eitthvað nytsamlegt.
Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Það er smá fyndið hvað ég þekki fá ráð miðað við að hafa ferðast um heimkynni ísbjarna. Mín ímynd er ef til vill sú að það er lítið sem þú getur gert nema að vera var um þig og forða þér í tæka tíð. Ég hef eitthvað heyrt um að kasta frá þér flík sem getur dregið athygli frá meðan þú forðar þér, en birnir geta hlaupið svo hratt að ég efast um að það breyti nokkru þó að húfa dreifa athygli frá í smá stund. Það er gott að vera nálægt sjó, og hoppa upp í bát, það gildir kannski það sama um önnur ökutæki, bíla, en við vorum aldrei á bíl. Svo er hægt að frussa vatni með mótornum á báti. En annars bara forða sér.
Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei, engin. Mér dettur bara í hug að ísbjörninn Knut í dýragarðinum í Berlín var mjög ástsæll, og mjög leiðinlegt að hann hafi dáið fyrir aldur fram af hjartaáfalli. En það eru ekki vinsamleg samskipti að ísbirnir skuli búa í dýragörðum.
Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Húnaflói? Dettur ekkert í hug.
Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Þekki ekkert.
Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Nei.
Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Ég þekki verk þeirra Bryndísar Snæbjörnsdóttir and Mark Wilson sem ég nefndi í fyrri svörum, svo minnir mig að það sé Banksy veggjakrot af ísbirni við jökulsárlón: https://live.staticflickr.com/8201/8241665817_de46357a54.jpg
Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?

Questionnaire
Record type
Keywords