Útsaumaður púði

1952 - 1953
In preservation at
Reykjavík City Museum
Nemendavinna úr Austurbæjarskóla 1952-1953. Lítill útsaumaður púði. Á púðanum er útsaumuð mynd með krosssaumi (lítið hús í landslagi). Utan um myndina er saumaður taukantur úr ljósgrábleiku efni. Sama efni er á bakhlið. Púðinn er upplitaður því hann var lengi í dúkkuhúsi sem stóð á lóð fjölskyldunnar. Á þessum árum voru í gildi námskrárdrög frá 1948. Púðinn var svokallað aukastykki, unninn í 9 ára bekk. Nemendur sem luku skyldustykkjum sínum samkvæmt námskrá gátu unnið aukaverkefni að vild. Yfirleitt höfðu nemendur frjálst val um verkefni sem hæfðu getu þeirra. Handavinnukennarar í Austurbæjarskóla á þessum árum voru Elísabet Helgadóttir F.26.11.1898, D.01.11.1982 og Rannveig Jónasdóttir F.18.10.1903, D.02.01.1994. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Main information

Title
Proper noun: Útsaumaður púði
Dating
1952 - 1953
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-50-6
Place
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Púði
Keyword:
Skólahandavinna

Place of origin

64°8'32.0"N 21°55'25.7"W