Sýnishorn kennara
1974 - 1975

In preservation at
Reykjavík City Museum
Sýnishorn kennara. Unnið á meðan kennari var í starfi við Breiðagerðisskóla árið 1974-1975.
Handavinnupoki. Verkefni fyrir 4. bekk (9 ára).
Sýnishorn kennara skólaárið 1974-1975 þegar námskráin frá 1960 var í gildi.
SG (annar skrásetjarinn) studdist við gildandi námskrá en breytti ýmsu. Megin áherslan var á nútímalegri verkefni en tekið var mið af þeim færniþáttum sem námskráin sagði til um. Undirbúningur kennara fólst aðallega í tilraunavinnu við að þróa ný verkefni. Það var ekki lögð áhersla á að vinna tilbúin sýnishorn fyrir nemendur, nema í einstaka tilfellum. Handavinnupokinn er eina verkefnið (kennslusýnishorn) sem Sigrún hefur haldið upp á.
Lýsing á handavinnupoka. Efnið er bómullarefni frá Verslun Friðriks Bertelsen, en verslunin / heildsalan var með mikið úrval af gæða bómullarefnum frá Finnlandi. Efnin voru mikið notuð í grunnskólum og þekkja skrásetjarar efnin m.a. úr handavinnukennaranámi sínu (1967-1969). Efnin voru mjúk og það var gott að vinna með þau.
Gömlu handavinnupokarnir voru saumaðir í höndum en þessi er bæði saumaður í vél og í höndum. Pokinn er sniðinn í einu lagi, hann er saumaður saman á annarri hliðinni og að neðan. Framstykkið er röndótt en bakhliðin einlit. Rendurnar í efninu eru þannig að það skiptast á þéttar rendur og einlitir fletir. Það var því hægt að sníða pokana á fleiri vegu.
Útsaumur: Saumað er í rendurnar á efninu 8 lóðréttar línur með útsaumssporum framan á pokann. Útsaumsspor: Lykkjuspor, afturstingur og leggsaumur (kontorstingur, varpleggur). Nemendur gátu valið hvar þau saumuðu í línurnar og fjöldi lína var mismunandi eftir getu nemenda. Það reyndist ekki svo erfitt að sauma með ullargarni í bómullarefnið því efnið var frekar lipurt og gott að draga nálina í gegnum það. Það má þó vera að einhverjir nemendur hafi saumað með perlugarni.
Frágangur á poka. Brotið er inn af brúnum á hlið pokans og þær lagðar saman. Síðan er hliðin saumuð saman í höndum með skáspori fram og til baka eins og gert var á gamla handavinnupokanum. Skilið er eftir op efst á pokanum fyrir snúruna. Brotið er inn af pokanum að ofan og faldurinn saumaður niður í saumavél. Pokinn er einnig saumaður saman að neðan í saumavél. Að lokum er snúin bómullarsnúra dregin í pokann að ofan.
Þetta var eina árið sem SG kenndi við Breiðagerðisskóla og óvíst að þessi tegund af handavinnupoka hafi verið saumuð aftur.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Sigrún Guðmundsdóttir, Used by
Donor: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Title
Proper noun: Sýnishorn kennara
Dating
1974 - 1975
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-36-6
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Handavinnupoki
