Askja, skráð e. hlutv.
1850 - 1930

In preservation at
Skagafjörður Heritage Museum
Askja eða skrín, 11,5 x 9 x 5 cm að stærð. Að innan er askjan úr viðarþynnum en klædd þunnu leðri, styrkt með þykku pappaspjaldi. Þynnurnar hafa orpist dálítið og sveigst. Lokið er laust nú en var sýnilega áfast áður. Meðfram köntum mótar fyrir gylltu skrauti. Á miðju loki er útskorin mynd úr beini (þá er lokið eins konar myndarammi utan um útskurðinn). Myndefnið er í asískum stíl, tvær manneskjur standa við hlið trés og annars gróðurs. Skrínið er aðeins farið að gliðna, sérstaklega á einu horni þar sem reynt hefur verið að líma hliðarnar saman.
Main information
Dating
1850 - 1930
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: BSk -5326
"Museumnumber b": 2019-5
Dimensions
11.5 x 9 x 5 cm
Lengd: 11.5 Breidd: 9 Hæð: 5 cm
Place
Staður: Miklibær, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Blönduhlíð, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Place of origin
65°30'32.7"N 19°17'46.8"W
