Svunta
1959 - 1960

In preservation at
Reykjavík City Museum
Svuntan var skyldustykki í 11 ára bekk. Hún er mittissvunta með smekk, en búið er að klippa hann af. Svuntan er bundin saman að aftan. Böndin eru földuð í saumavél en hliðarnar á svuntunni eru faldaðar í höndum. Hægra megin að framan er lítill vasi.
Útsaumur: Breiður munsturbekkur er neðan á svuntu og aðeins mjórri bekkur á vasa. Saumgerðir: Augnspor, klóspor og krosssaumur.
Svuntusmekkur sem búið er að klippa af svuntunni fylgir. Smekkurinn var utanáliggjandi á svuntunni og náði niður á hana í miðju að framan og myndaði þar spíss (hvass oddur). Útsaumur á smekk er sami útsaumsbekkur og á svuntu. Fangamarkið KÞ er saumað með krosssaumi á smekkinn.
Handavinnukennari Kristínar í Miðbæjarskólanum var Guðrún Sigurðardóttir, F.15.7.1905. D.15.7.1995. Við bendum á fróðlega grein sem Guðrún skrifaði í tímarit Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Hugur og hönd árið 1983. Þar skrifar hún um handavinnukennslu í Barnaskóla Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, en hún kenndi við skólann frá 1930-1969.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Kristín Þórðardóttir, Attributed
Donor: Kristín Þórðardóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Kristín Þórðardóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Title
Proper noun: Svunta
Dating
1959 - 1960
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-30-5
Dimensions
0 x 42 x 52 cm
Breidd: 42 Hæð: 52 cm
Place
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Skólahandavinna
Place of origin
64°8'42.0"N 21°56'20.8"W


