Handavinnupoki
1958 - 1962

In preservation at
Reykjavík City Museum
Handavinnupoki saumaður í 9 ára bekk 1957-1958. Nemendavinna úr Miðbæjarskóla. Pokinn er allur handsaumaður. Skylduvinna í 9 ára bekk samkvæmt námskrárdrögum frá 1948. Önnur hlið pokans er skreytt þéttum útsaumslínum sem liggja þvert á pokann. Útsaumsspor, talin að ofan: Augnspor, klóspor, krosssaumur, ídregið krókspor, leggsaumur (kontorstingur, varpleggur), afturstingur, skáþræðispor með krosssaumi (vantar heiti á saumsporið), ídregið þrefalt þræðispor. Munstrið speglast niður pokann. Á hinni hliðinni er fangamarkið KÞ, ártalið 1958, lítil munstur og hundur saumuð með krosssaumi. Faldur er brotinn á rönguna og gengið frá honum í höndum. Pokinn er saumaður saman með fínum sporum í brúnirnar. Hann er dreginn saman að ofan með heklaðri snúru. Stærð: 29 x 24 sm.
Handavinnukennari Kristínar í Miðbæjarskólanum var Guðrún Sigurðardóttir, F.15.7.1905. D.15.7.1995. Við bendum á fróðlega grein sem Guðrún skrifaði í tímarit Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Hugur og hönd árið 1983. Þar skrifar hún um handavinnukennslu í Barnaskóla Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, en hún kenndi við skólann frá 1930-1969.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Kristín Þórðardóttir, Attributed
Donor: Kristín Þórðardóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Kristín Þórðardóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Title
Proper noun: Handavinnupoki
Dating
1958 - 1962
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-30-3
Dimensions
0 x 24 x 29 cm
Breidd: 24 Hæð: 29 cm
Place
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Place of origin
64°8'42.0"N 21°56'20.8"W




