Copyright: Kristján Davíðsson-Erfingjar, Myndstef
Copyright: Kristján Davíðsson-Erfingjar, Myndstef
Copyright: Kristján Davíðsson-Erfingjar, Myndstef
Copyright: Kristján Davíðsson-Erfingjar, Myndstef

Sef

In preservation at
National Gallery of Iceland
Kristján Davíðsson fæddist í Reykjavík en ólst upp á Patreksfirði. Hann sótti kvöldskóla Finns Jónssonar og Jóhanns Briem í Reykjavík veturinn 1935-36, og frá 1945 til 1947 stundaði hann myndlistarnám í Bandaríkjunum við Barnes Foundation í Merion í Pennsylvania. Þar sótti hann heimspekilega umræðutíma Dr. Barnes og kynntist kenningum John Dewey. Í heimsókn til New York 1946 hreifst hann meðal annars af verkum Jeans Dubuffet og Pauls Klee sem hann sá þar. Árið 1949 hélt Kristján til Lundúna og Parísar þar sem hann kynntist Michel Tapié, formleysislist eða art informel, tassisma og svokölluðu „art brut“-málverki Parísarskólans. List Kristjáns mótaðist einnig af bandarískum abstrakt-expressjónisma eftirstríðsáranna, og fljótlega varð hann einn af fremstu fulltrúum ljóðrænnar abstraktlistar á Íslandi, eins og verkið Sef er lýsandi dæmi um. Í fyrstu spönnuðu verk hans hið hlutbundna jafnt sem hið óhlutbundna en smám saman þróaðist stíllinn sem hann er þekktastur fyrir: flæðandi pensilstrokur sem skírskota til náttúru og veðurs. Verk þessi einkennast gjarnan af hreyfingu út frá miðju myndflatarins þar sem iðandi litafletir virðast ýmist leysast í sundur eða rekast á en leita jafnframt út í myndjaðrana þar sem þeir þjappast saman. Kristján var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1984.   Kristján Davíðsson was born in Reykjavík but brought up in the West Fjords. He attended the evening school of Finnur Jónsson and Jóhann Briem in Reykjavík in the winter of 1935-36 and from 1945 to 1947 he studied fine arts in the United States where he enrolled at the Barnes Foundation in Merion, Pennsylvania. During this time, he attended Dr. Barnes’ philosophical discussions and became acquainted with the theories of John Dewey. In 1949 he embarked on a long trip to London and Paris where he met Michel Tapié. Davíðsson’s art was influenced by American postwar Abstract Expressionism, and by Art Informel and Art Brut in Paris and soon he became one of the most prominent exponents of free-form abstraction in Iceland, as the painting Sedge bears witness to. At first his works ranged between the figurative and the abstract, but gradually the style evolved for which he is best known: flowing brushstrokes with strong evocative allusions to nature and the weather. A prominent characteristic of these works is a clear centrifugal force whereby different coloured surfaces diverge and collide on the background, compressing together at the edge of the canvas. Kristján Davíðsson represented Iceland at the Venice Biennale in 1984.

Main information

Title
Art title: Sef Alternative title: Entengrütze (þýska) English art title: Sedge
Dating
= 1963
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: LÍ-1278
Dimensions
150 x 130 x 0 cm Stærð með ramma: 155 x 135 x 5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Aðalskrá
Inscription
Labels: ath miðar frá sýningu í Strassborg og Skagens bibliotek eru aftan á LÍ 1599. 
Keywords
Art Content: Abstrakt
Art Content:
Gróður
Copyright
Copyright: Kristján Davíðsson-Erfingjar Copyright: Myndstef