Copyright: Myndstef, Steina

Machine Vision

= 1978, Steina
In preservation at
National Gallery of Iceland
Ólíkt flestum verkum Steinu sem eru varðveitt sem stafrænar skrár og miðlað um skjá eða varpa er í Alsýn og Vélsýn notast við lifandi streymi þar sem áhorfendur sjá sjálfa sig birtast í myndavélunum. Eins og Steina hefur útskýrt taka þessi vélrænu myndskot enga afstöðu til þeirra sem þar sjást: „Sýnin, myndefnið og hreyfingarnar helgast af sjálfri innsetningunni sem er kóreógraferuð og forrituð út frá hringrásinni sem felst í vélrænni framkvæmdinni.“ Þegar verkin í Vélsýn-röðinni urðu til höfðu ýmsir listamenn notast við spegla og myndavélar á lokaðri rás í verkum sínum. Spegillinn var þar gjarnan nýttur til að sýna sjálfsmynd í mótun, og lokaðar rásir vísuðu til valdakerfa. Steina hafði hinsvegar mun minni áhuga á menningar- og hugmyndafræðilegum skírskotunum af þeim toga. Það sem hún setti fram var áhorf sem var ekki mennskt – sjón sem er óútskýranleg en um leið einhvern veginn saklaus. Unlike most of Steina’s other works, which today exist as digital media files transmitted through a monitor or projector, Allvision and Machine Vision (together known as the Machine Vision series) employ live video feeds in which viewers observe themselves being captured by cameras. As Steina has explained, these mechanized camera feeds are indifferent to their subjects: “The act of seeing, the image source, and the kinetic resources come from the installation itself, choreographed and programmed by the cyclical nature of its mechanized performance.” By the time the Machine Vision series was created, several other artists had incorporated mirrors and closed-circuit systems into their work. Often the mirror was used to demonstrate the formation of the self, and the closed-circuit referred to systems of control. Steina, however, was far less concerned with such cultural or ideological associations. What she proposed instead is non-human vision: a form of sight that is unaccountable and yet also somehow innocent.

Main information

Title
Art title: Machine Vision Alternative title: Vélsýn English art title: Machine Vision
Dating
= 1978
Object-related numbers
Museumnumber a: LÍ-9143
Dimensions
Stærð breytileg
Exhibition text
Listrænn áhugi Steinu og Woodys þróuðust í sitt hvora áttina um miðjan áttunda áratuginn þar sem þau kenndu við miðlunardeild State University of New York í Buffalo, við hlið frumkvöðla í tilraunakvikmyndagerð þess tíma (m.a. Paul Sharits, Hollis Frampton og Tony Conrad). Á þessum tíma tók Steina að rannsaka margbrotna og allt að því útópíska möguleika á „greindri en þó ekki mennskri sýn“ í Vélsýn, tilraunakenndri röð gjörninga og myndbanda þar sem hún nýtti sér myndavélar á hreyfingu, snúningsborð og spegilhnetti. „Mig langaði að búa til hreyfimyndir sem væru ekki hreyfðar með vöðvaafli listamanns heldur á vélrænan máta,“ sagði hún um tildrög verkanna. Í sal 4 á Listasafni Íslands koma nú allir hlutar Machine Vision-raðarinnar saman, auk myndbandsverka sem gerð eru á einni rás þar sem Steina kafar dýpra ofan í hugmyndina um vélræna sýn.   Steina and Woody’s aesthetic interests diverged in the mid-1970s, at the Center for Media Study at the State University of New York at Buffalo, where they taught alongside the era’s leading experimental and structural filmmakers (Paul Sharits, Hollis Frampton, and Tony Conrad, among others). At this time, Steina began to explore the exuberant and even utopian possibilities of an “intelligent, yet not human vision” with Machine Vision (1975–)—an experimental series of installations and videotapes that incorporated moving cameras, turntables, and reflective orbs. “I wanted to have moving images that were moved not by the musculature of the hands of an artist, but moved in some kind of mechanical way,” she said of its genesis. The two primary “electro/opto/mechanical environments” that compose her Machine Vision series have been reunited in this gallery, shown alongside single-channel videos that further her concept of the non-human gaze.
Record type
Collection
Undirskrá: Aðalskrá
Copyright
Copyright: Myndstef Copyright: Steina