Heimilisfólk

1898
In preservation at
National Museum of Iceland
Reyðarvatn í Rangárvallahreppi - Íbúðarhús og heimilisfólk. Íbúðarhús, heimilisfólk, karlmaður, konur, strákur, stelpa, hestur. „Ég hef verið að lesa bók Frank Ponzi “Ísland Howells-Howell’s Iceland,” þar sem þessi mynd af heimilisfólki Reyðarvatns er birt, en ég er ættaður þaðan í beinan karllegg og sá sem stendur þarna í dyragættinni er því langafi minn Tómas Böðvarsson (1854-1935) ásamt eiginkonu hans, og uppeldismóður afa míns Tómasar Tómassonar, henni Guðrúnu Árnadóttur (1857-1931), sem stendur við hina dyragáttina. “Á leiðinni að Heklu fór ferðafólki aftur yfir Markarfljót og kom öðru sinni að Stórólfshvoli áður en það hélt áfram förinni að Reyðarvatni. Reyðarvatn var þá fastur áningarstaður ferðamanna. Á myndinni sést heimafólkið reiðubúið að taka á móti ferðafólki sem væntanlegt er til hádegisverðar. Bóndinn Tómas Böðvarsson (46 ára) stendur í bæjardyrum með kúluhatt að heldri manna sið og virðulegan Dannebrogskrossinn nældan á brjóstið. Kona hans Guðrún Árnadóttir (43 ára), ber sparihöfuðbúnað kvenna, skotthúfu með silfurhólk, eins og konurnar sem sitja hægra megin á myndinni, en ein þeirra er 17 ára gömul dóttir hjónanna, Guðrún að nafni. Þrjú af fjórum börnum þeirra eru á myndinni, hestastrákurinn er annaðhvort Böðvar (14 ára) ellegar Árni (13 ára), en feimin stúlka, Árný Ingibjörg (9 ára) stendur þétt við hlið móður sinnar. Hvorug konan talaði tungumál hinnar, svo að þær notuðu merkjamál sín í milli og þannig gat frú von Thiel áttað sig á ætterni barnanna sem seinna birtust á bænum.” (Ponzi, 2004, bls. 75-76) (ÁT 2026)

Main information

Dating
1898
Object-related numbers
Museumnumber a: FWH-103
Place
Staður: Reyðarvatn, 851-Hellu, Rangárþing ytra
Record type
Collection
Undirskrá: Frederick W W Howell (FWH)
Keywords
Depiction: Heimilisfólk
Depiction:
Hestur
Depiction:
Karlmaður
Depiction:
Kona
Depiction:
Stelpa
Depiction:
Strákur
Depiction:
Íbúðarhús
Picture Taken
Reyðarvatn

Place of origin

63°51'14.6"N 20°9'23.6"W