Bátur, líkan

In preservation at
Akranes Folk Museum
Skipslíkanið sýnir áttæring og voru skip af þessari gerð (og með þessum seglaumbúnaði) algeng við Faxaflóa og á Suðurnesjum fram eftir öldinni ,en viku smám saman fyrir þeirri gerð skipa sem kennd eru við Engey (fyrstu skipin með því lagi smíðuð þar).
Hafliði Hafliðason skipasmiður í Reykjavík gerði uppdrátt fyrir Helga ,er hann fór eftir við smíði skipsins.
Líkanið smíðaði Helgi S. Eyjólfsson frá Litlabakka á Akranesi og færði það Byggðasafninu að gjöf á sjómannadaginn 1967 til minningar um Helga Sveinsson á Litlabakka sem hann er heitinn eftir.
Helgi Sveinsson (1849-1898) Borgfirðingur og drukknaði 8.2.1898. Var hann á leið á fjögurramannafari frá Borgarnesi til Akraness með rjúpnafarm. Hann var formaður á bátnum og með honum fjórir menn.Hrepptu þeir suð-austan rok og fórst báturinn undan Melabökkum í Melasveit og með honum allir er á honum voru. Helgi bjó á Litlabakka kvæntu Guðnýju Jónsdóttur .Eftir lát manns síns tók hún Helga S.Eyjólfsson kornungan í fóstur og ólst hann upp hjá henni á Litlabakka.
Börn Guðnýjar og Helga: Margrét húsfreyja í Rvk., Jón B.Helgason kaupm. í Rvk. og Sigmundi er drukknaði af Kútter Svaninum frá Reykjavík 1912.
Main information
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1959-173-1
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords



